Sagnir - 01.04.1984, Page 19

Sagnir - 01.04.1984, Page 19
TÓMTHÚSMENN í BÆJARPÓLITÍKINNI aðist skólahaldið. Fór svo að Reykvíkingar voru barnaskóla- lausir allan sjötta áratuginn. Bæjarbúum blandaðist þó ekki hugur um nauðsyn og gagnsemi barnafræðslu. Eins og oft vill verða strandaði á hver ætti að greiða fyrir skólahaldið. Ymsar hugmyndir voru viðraðar um hvernig afla mætti fjárins, t.d. var lagt til á Alþingi að tolla alla áfengissölu í landinu. Vitanlega þótti þingmönnum annarra fjórð- unga súrt í broti að þurfa að drekka dýrt brennivín til að Reyk- víkingar gætu rekið skóla. Að endingu var málið lagt í salt. Bæjarbúar skiptust þó áfram á skoðunum um barnaskólann. Sögðust tómthúsmenn vera á móti reglulegu skólahaldi, þótt þeir teldu skólann nauðsyn. Þetta kann að hljóma sem mótsögn en er þó auðskýrt. Mestu hefur ráðið að þeir óttuðust aukin útsvör, sem af hlytust. Allra síst gengust þeir undir slíkar álögur til að koma á fót hálfdönskum borgaraskóla eins og gamli skólinn virðist hafa verið. Þegar þess er gætt að tómt- húsmannafulltrúinn í bæjarstjórn neitaði að ræða barnaskólamálið á fundi, vegna þess að málskjölin voru á dönsku en ekki móðurmál- inu, má ljóst vera að ólíkrar þjóð- ernislegrar afstöðu gætti nokkuð í þessu máli. í ljósi þessarar afstöðu tómt- húsmanna eru málalok enn ein- kennilegri. Árið 1859 var sam- þykkt að leggja skatt á öll tómthús og óbyggðar lóðir í Reykjavík til að kosta skólann. Enn verða árekstrar Áður en barnaskólamálið var til lykta leitt reis enn ágreiningur. Þetta var árið 1857 er til stóð að selja Laugarneslandið. Bæjar- stjórn fékk áhuga á að eignast það og þóttist mega hafa af nokkrar tekjur. Nær allir tómthúsmenn voru fylgjandi kaupunum og renndu hýru auga til úthaganna fyrir hesta sína og aðrar skepnur. Meira að segja reyndust efnamenn meðal þeirra og kaupmanna fúsir til að lána útborgunina, svo af þessu gæti orðið. Þá risu upp tutt- ugu borgarar í bænum, einkum embættis- og verslunarmenn, og mótmæltu þessum fyrirætlunum þar sem þær væru einungis tómt- Guðmundur Þórðarson, tómthúsmaður og bcejarfulltrúi. húsmönnum og e.t.v. fáeinum kaupmonnum til hags. Hér kvað við annan tón frá því rætt var um barnaskólann. Þá var tómthúsmönnum ekki ofgott einum að bera allan kostnað þó að þeir væru á móti reglulegu skóla- haldi. Hvort sem mótmæli borgar- anna réðu nokkru um, fékkst leyfi stiftsins fyrir kaupunum ekki. Ellefu bæjarmenn keyptu Laug- arnesið því sjálfir fyrir 5500 ríkis- dali. Þeirra á meðal voru sex tómthúsmenn. Reykjavíkurbær eignaðist Laugarnesið 28 árum síðar, árið 1885. Ymsir kaupmenn höfðu auga- stað á Grófinni sem athafnasvæði. Þar höfðu reykvískir sjómenn haft uppsátur fyrir báta sína frá ómunatíð og urðu oft smáskærur þegar kaupmenn reyndu að bola tómthúsmönnunum frá. Deilan varð fyrst stórmál árið 1865 þegar eigendur Glasgowverslunarinnar sóttu um leyfi til að reisa tveggja hæða geymsluhús á kambinum fyrir ofan Grófina. Bæjarstjórnin taldi að tómthúsmenn yrðu að víkja, en ófært væri að svipta þá ævagömlum rétti án þess að þeim væri útvegað nýtt uppsátursstæði í staðinn. Verslunarstjóri Glas- gowverslunarinnar varð því að bíða með framkvæmdir sínar en tómthúsmenn settu áfram upp báta sína í Grófinni. Að komast frá kelling- unni upp á gamla móðinn Af því sem á undan er gengið sést að tómthúsmenn þurftu sífellt að vera á verði þegar borgararnir reyndu að skara eld að sinni köku. Þó kastaði fyrst tólfunum seint á sjöunda áratugnum þegar fiski- mönnum á landinu var gert að gangast undir stóraukin útgjöld vegna bættrar læknisþjónustu landsmanna. Áhafnir báta lögðu árlega einn hlut af dagsafla sínum til svokall- aðs læknasjóðs. Var þetta framlag þeirra nefnt spítalafiskur því upp- haflega rann það til holdsveikra- spítala landsins, en sjálfir töluðu sjómenn um að „skipta kelling- unni hlut“. Þegar rætt var á Alþingi árið 1867 um fjáröflunar- leiðir til að bæta læknaþjónust- una, lá því beint við að staðnæm- ast við spítalafiskinn. Ávöxtur Alþingisumræðnanna var tilskipun frá 10. ágúst 1868. Ekki er nokkur vafi á að mörgum fiskimanni hefur brugðið í brún við þessar breytingar og þeir viljað fegnir fá „að komast frá kellingunni upp á gamla móðinn" eins og segir í Þjóðólfi árið 1869. í SAGNIR 17
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.