Sagnir - 01.04.1984, Page 24

Sagnir - 01.04.1984, Page 24
BRENNIVÍNIÐ FÆR Á SIG ÓORÐ brennivínsstaupið frá ráðsmann- inum, Gissuri. Sigurður ritar: hann hafði alltaf nóg af því. Hann vakti mig með kaffinu á morgnana og var oft brennivín í því. “ Reykvískir sjómenn voru í hópum á Vatnsleysuströnd á vetrarvertíð fram undir sumarmál eða þangað til fiskur var kominn á heimamið þeirra, einkum Sviðið. Þá fluttu þeir sig inn eftir. Lýsingar af Ströndinni geta því gilt fyrir Reykjavík líka. Brennivín var mjög í hávegum haft á Ströndinni. Gamall Strand- arbúi, Benjamín Halldórsson, segir frá: Það var talið svo sem alveg sjálfsagt að stórbændurnir færi á „túr“ þegar þeir fóru í kaup- stað. Kom það þá fyrir að þeir gleymdu sér, svo að sækja varð þá eftir viku eða hálfan mánuð. (Strönd og Vogar, 60) Kristleifur á Kroppi var við róðra á Ströndinni 1879-88. Hann ritar: Þá þóttu drykkjulæti vottur hreysti og hreinlyndis og öpuðu minniháttar nrenn hina ríku stórbændur í því efni. Léku alla kæki og tiltæki þeirra og þóttust menn að mciri. Loks skal getiðjóhanns V. Daní- clssonar, síðar kaupmanns, sem var hjá Agli í Austurkoti á Vatns- leysuströnd veturinn 1882. Hann segir að Egill hafi átt tíu tunnur brennivíns í upphafi vertíðar og ritar um vínsölu hans: Á þessum árum höfðu menn mikið vín um hönd ... Þegar sjómenn komu úr róðri, þreýttir, blautir og svangir, varð sumum það að fá sér á flösku til að hressa sig en það kostaði vænan fisk. (Strönd og Vogar, 103) Brennivínsgjafir og búðarstöður Brennivínið vætti saltar kverkar á Vatnsleysuströnd og menn voru líka þorstlátir í Reykjavík. Tæpast munu margir hafa fundið að því þótt reykvískir sjómenn fengju sér brennivínstár þegar þeir komu úr róðri eða skvettu duglega í sig á tímamótum og tyllidögum. Nei, umkvörtunarefnið fram um 1880 var öðru fremur búðar- stöður. Svo er að sjá að sjómenn hafi haft lítið annað fyrir stafni í landlegum en að drabba í búðum kaupmanna og var þá brennivín jafnan á dagskrá. Menn slógu saman í pela, fengu sér stundum kisu til að ylja sér, en svo nefndist brennivín blandað kirsuberjavíni. Var ekki vanþörf á ylnum því að búðirnar voru óuppkyntar og búðarþjónar, sem færðu í kladda, urðu stundum að bera blekið innan á sér til að það frysi ekki. Svo voru lekabytturnar, lekar vínámur, sem kaupmenn létu fyrir lítið, og yfirleitt voru þeir ósínkir á vín, gáfu í staup við ýmis tækifæri, jafnvel í pela. Benedikt Gröndal segir frá brennivínsber- serkjum bæjarins, sem hann nefnir svo; einn „... beit í brýni fyrir kaupmenn og fékk hálfpela í staðinn". Brennivínið lá mjög á lausu og í landlegum viku sjó- menn víst varla úr búðunum nema þegar þeir brugðu sér heim í mat og kaffi. Þá voru híbýli manna of þröng til að þar yrði safnast saman og um aðra sam- komustaði en búðir var tæpast að tala. Pólitísk afneitun brennivíns Innflutningur brennivíns til Reykjavíkur virðist hafa aukist mjög á sjötta og sjöunda áratug 19. aldar. Árið 1849 fluttust til bæjarins tæpir 40.000 pottar, árið 1855 tæpir 60.000 en voru orðnir 120.000 árið 1864. Verðið var mjög viðráðanlegt enda var allt vín tollfrjálst. Árið 1865 mátti fá pott brennivíns (fjóra pela) fyrir tæpt kíló af þurrkuðum saltfiski. í mars 1984 kostaði pottur af brennivíni 628 krónur en kíló af útvötnuðum saltfiski út úr búð kr. 67.25. Tölurnar eru ekki vcl sam- bærilegar en veita vísbcndingu um mikinn verðmun víns á okkar tíð og hinni fyrri. Ekki fór hjá því að útlendingar tækju eftir drykkjusiðum í Reykjavík. Þannig eru aðalatriðin í þeirri mynd sem Kaliforníubú- inn J. Ross Browne dregur upp af lífinu í Reykjavík árið 1862: „... nokkrir verklausir íbúar og drukknir sjómenn sem slöngruðu á milli brennivínsknæpanna [væntanlega búðanna], fylking sterklegra, veðurbitinna kvenna ... hópur lítilla, kafloðinna hesta ... nokkrir grindhoraðir hund- ar ...“ Honum finnst reykvísku sjómennirnir „of oft drukknir“. Annar túristi, Englendingurinn Richard F. Burton, var hér á ferð þccjar þú drckkur vín, þd skaltu heilsunn- ar vcgua drckka hiö bczta. llvar er nú bezt vin i Bcylcjavik ? Emjinn cfi d þvi, grisku vínin hjd porldki Ó. Johnson—þau cru holl, Ijújfcnij oj atls clcki dýr—t. d. Kalliste (tjctt Portvín) fi. 2,55. Achaicr (tjúffcngt Shcrry) fi. 3,00. Bombúla (hvilt vin) fi. 2,50. Moscato (sœll vin) fi. 3,00. Grtslcu vinin hafa þaö Lit sins djcetis frani yfir hin unjvcrsku vín, og önnur vin, aö þau cru tjettari og ekki cins iicit. Auglýsing um hollustu- vín Þorlákur Ó. Johti- son kaupmaður auglýsti m.a. „heilsubótarviskí" og „þjóðfrelsisviskí". Hér er auglýsing Þorláks tir ísafold frá árinu 1883. Árið 1885 gekk Þorlákur í stúku, hætti þá að auglýsa áfenga drykki og mun hafa látið af sölu þeirra. 22 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.