Sagnir - 01.04.1984, Síða 41

Sagnir - 01.04.1984, Síða 41
OPNIR BÁTAR Á SKÚTUÖLD samt sem áður hörð og áhættu- söm. Um það vitna ótal hindur- vitni tengd förinni á sjóinn. Krist- leifur Þorsteinsson úr Borgar- firði, sem var vermaður syðra um árabil, segir svo frá: Ekki mátti prjóna lykkju eða sauma nálspor á sunnudegi í þá flík, er menn áttu að klæðast í á sjó. Og ekki mátti leggja afstað frá heimili sínu nema vissa vikudaga, er til sjávar var farið. (Ur byggðum BorgarJJarðar II, 225) Enginn vissi hvort sjómennirnir kæmu aftur, þegar þeir lögðu af stað á vetrarvertíð í kafaldsbyl. Á vetrarvertíðinni reru Reyk- víkingar og Seldrningar ýmist heiman frá sér eða fóru í ver suður með sjó, en um það réðu fiski- göngur mestu. Verferðir þeirra suður á Vatnsleysuströnd, í Voga og Njarðvíkur, urðu þó ekki tíðar fyrr en um 1850, þegarkaupmenn byggðu þar verbúðir fyrir þá aðkomnu. í þeim voru einnig salt- geymslur, og nefndust húsin „an- leggshús“. Vorvertíðina voru Innnesja- menn aðallega á heimamiðum og einnig framan af haustvertíðinni. Þegar kom fram í nóvember var oft orðið fiskilítið á Sviðinu og öðrum heimamiðum, og fóru menn þá svokallaða „suðurtúra“ á sexæringum og áttæringum. Það voru ekki verferðir, heldur sigldu menn suður í Garðsjó og Leirusjó og fóru heim samdæg- urs, ef vel aflaðist og veður leyfði. Oft var þó ekki siglt heim fyrr en daginn eftir ef ekki hafði tekist að fylla bátinn, og fengu sjómenn- lrnir þá gistingu hjá ábúendum þar suðurfrá. Þessir „suðurtúrar“ stóðu oft yfir fram í miðjan janú- ar. Varla er mögulegt að þessar ferðir hafi verið farnar fyrr en að Engeyjarlagið og hinn nýi segla- búnaður varð algengur á árunum eftir 1865-70. Annað hefði verið ofurmannlegt. um netin allt fram undir aldamót- in 1900. Reynsla manna afnetun- um hafði verið misjöfn, og börð- ust sumir háttsettir embættis- menn hatrammlega gegn þeim. Fleiri urðu þó cinnig til að andæfa netunum og ollu þau mörgum 19. aldar manninum brúnaþyngslum. Aðalorsök andstöðunnar var sú ríkjandi skoðun, að þverrandi afli á grunnmiðum stafaði af of mikilli netanotkun. Grunnmiðin höfðu hingað til verið aðalveiði- svæði opinna báta, því þeir höfðu að jafnaði ekki komist langt frá landi á árunum einum. Sérstak- lega áttu netin að vera skaðleg væru þau notuð á djúpmiðum, því þá myndu þau hreinlega girða fyrir fiskigengd á grunnslóð. Mismunandi skoðanir voru á lofti um hvaða leið væri vænleg- ust til úrbóta. Sumir vildu banna netaveiðar þar sem þær höfðu ekki verið stundaðar áður og hópur manna vildi banna allar þorskveiðar í net. Ekki voru samt allir sannfærðir um að netin væru aðalskaðvaldarnir og vildu heldur kenna um „niðurburði", sem skútur og erlendir togarar fleygðu fyrir borð. Fiskifræðingurinn Bjarni Sæ- mundsson vék að þeirri skoðun sinni í grein í Atidvara árið 1897, að báðar þessar röksemdir væru heldur haldlitlar. Hann sagði augljóst að fiskigengd við Faxa- flóa hefði breyst mikið á síðari tímum, fiskurinn kæmi æ sjaldnar á grunnslóð, en héldi sig á djúp- miðum í Garðsjó, Leirusjó og á Sviðinu. Veðráttan hefði þarna einhver áhrif, sérstaklega norð- vestanstormarnir, en annars væri vænlegra að leita orsakanna í þátt- um tengdum fæðu, hrygningu, straumum og sjávarhita. En á meðan Innnesjamenn mokfiskuðu og margfylltu báta sína á djúpinu og Útnesjamenn fengu lítið sem ekkert á grunnslóð uppi við land, dugðu rök um strauma og sjávarhita skammt. Net og rányrkja Á svipuðum tíma og Reykvíking- ar og Seltirningar byrjuðu veiðar með Engeyjarlagsbátunum og komust á fjarlægari mið, hófu þeir netaveiðar og veiddu vel. Neta- veiði við Faxaflóa var sjaldséð fyrir 1870, þegar Innnesjamenn riðu á vaðið, þótt hún hafi eitthvað þekkst á grunnslóð við Hafnarljörð og Garðskaga frá miðri 18. öld. Netin höfðu, eins og lóðirnar, aðeins verið notuð samhliða handfærinu, sem enn var aðalveiðarfærið. Víða um land hófust netaveiðar ekki fyrr en löngu eftir aldamótin. Eins sakleysisleg og net voru á þurru landi, jafn ískyggileg gátu þau virst þegar búið var að leggja þau. „Netabrúkunin" varð tilefni háværra deilna, og stóð mikill styr SAGNIR 39
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.