Sagnir - 01.04.1984, Side 66
GEIR ZOÉGA
ert varð úr því. Geir var maður
þilskipanna og þegar blómatíma
þeirra lauk settist hann í helgan
stein.
„Blautfiskverzlun og
bróðurkærleiki“
Atvinnurekstur Geirs Zoéga sner-
ist vitanlega ekki um það eitt að
gera út þilskip og sækja á þeim
gull í greipar Ægis. Aflann þurfti
að meðhöndla á þann hátt sem er-
lendir neytendur gátu sætt sig við.
Fiskurinn var saltaður og þurrk-
aður og síðan sendur yfir hafið til
gamalgróinna neysluþjóða í Suð-
ur-Evrópu. Eins og gefur að skilja
var því mikið um að vera í landi á
vegum Geirs Zoéga, svo um-
fangsmikill sem rekstur hans var
um langt skeið. Purfti jöfnum
höndum góðan mannafla við
verslunina og alla vinnuna við
fiskinn sem var ekkert smáræði,
frá því tekið var á móti honum við
bryggju og þar til hann hafði verið
fluttur um borð í millilandaskip
fullverkaður.
Geir Zoéga lét sér ekki nægja að
hafa hönd í bagga með verkun
þess fisks sem aflaðist á hans eigin
skip. Hér á landi hafði löngum
tíðkast að kaupmenn keyptu fisk
óverkaðan af útvegsmönnum og
sjómönnum og verkuðu síðan
sjálfir. Nefndist slíkt blautfisk-
verslun og færðist hún í aukana
víða um land á síðustu áratugum
19. aldar. Geir Zoéga var einn
þeirra sem tóku upp þennan versl-
unarmáta og varð það kveikjan að
einni hörðustu ádeilu sem hann
varð fyrir á ferli sínum sem stór-
útgerðarmaður.
Pað var Gestur Pálsson, skáld
með meiru, sem árið 1888 sendi
frá sér bæklinginn Blautfiskverzlun
og bróðurkœrleiki. Tilefnið var það
að Geir Zoéga og ymsir aðrir
kaupmenn í Reykjavík höfðu
tekið upp þann hátt að kaupa fisk-
inn nýjan af sjómönnum á róðrar-
Ónýtur í landi, en full-
góður á skútu.
Eitt sinn heima hjá Geir, áttum
við tal saman um örðugleika við
mannaráðningar á fyrstu árum
þilskipaútgerðarinnar, og sagði
hann, að það hefði verið lélegur
mannskapur, því flestir hefðu
verið óvaningar nema yfir-
mennirnir. Hann sagði að það
hefði verið álit manna, að það
væri aðeins atvinna fyrir amlóða
og ónytjunga að vera „til sjós“
því það hefði verið máltækið
„ónýtur í landi en fullgóður á
skútu.“ (Matthías Þórðarson:
Litið til baka II (1947)212).
bátum, verka hann sjálfir og selja
fyrir eigin reikning. Verslun þessi
mun hafa orðið kaupmönnum
mjög ábatasöm árið 1888 því að
fiskur fór þá hækkandi í verði.
Afkoma margra sjómanna var
ekki betri en svo að þeir neyddust
til að selja aflann jafnóðum til að
geta dregið fram lífið þó að líkur
væru fyrir drjúgum hærra verði ef
fiskurinn væri ekki seldur fyrr en
fullverkaður.
í bæklingi sínum fór Gestur
hörðum orðum um blautfisksöl-
una og beindi spjótum sínum þá
einkum að Geir Zoéga, hélt því
fram að hann hefði fyrstur tekið
að falast eftir blautfiski og ýmsir
kaupmenn í bænum síðan fetað í
fótspor hans. Sagði Gestur full
líkindi vera til þess að sjómenn
fengju ekki nema sáralítið fyrir
fisk sinn í samánburði við það sem
þeir ættu að fá og gætu fengið ef
þeir söltuðu hann sjálfir, verkuðu
og geymdu svo til næsta sumars:
Það er sagt, að Geir Zoéga
kaupmaður sé búinn að fá 500
skippund af blautum fiski.
Hvað mörgum þúsundum
króna hafa ekki fátæklingarnir,
sem sízt mega krónurnar missa,
tapað á þessum 500 skippund-
um? ... Geir er líka forkólfurinn
í þessari blautfisksberserkja-
þvögu. Hann kvað hafa byrjað
fyrstur kaupmanna í haust, en
vitaskuld er það, að svo tóku
aðrir upp sama sið. Það þarf
ekki nema einn Geir í hverri
veiðistöðu. (bls. 4—5)
Ekki þarf að efast um að blaut-
fiskverslunin var sjómönnum á
ýmsan hátt mjög óhentug en jók
gróða kaupmanna að sama skapi.
Á þessum tíma höfðu kaupmenn
sterk tök á viðskiptamönnum sín-
um. Sjómenn og aðrir voru iðu-
lega skuldugir kaupmönnum og í
krafti þess gátu hinir síðarnefndu
heimtað greiðslu í fiskinum
nýdregnum úr sjó. Þegar sam-
keppni um fiskinn harðnaði var
gatan greidd fyrir blautfiskversl-
unina; kaupmenn vildu tryggja
sér greiðslu fyrir það sem sjó-
mönnunum hafði verið lánað í
verslununum.
Vitanlega verður að ætla að
gróðavonin hafi ráðið miklu um
það að Geir Zoéga og fleiri tóku
upp blautfiskverslun. Hins vegar
verður að hafa í huga að vaxandi
saltfiskframleiðsla á síðustu ára-
tugum 19. aldar ýtti með vissum
hætti undir þennan verslunar-
máta. Ymsir þeir menn sem tóku
að reka stórútgerð stunduðu jafn-
framt verslun. Þessir menn komu
sér margir upp góðri aðstöðu til
að verka mikið af fiski og var alls
ekki óeðlilegt þó þeir sæju sér leik
á borði og tækju til verkunar þann
fisk sem þeir keyptu af öðrum auk
þess fisks sem veiddur var á þeirra
eigin vegum. Má raunar með
vissum hætti líta á blautfiskversl-
unina sem dæmi um vaxandi
verkaskiptingu í þjóðfélaginu á
þessum tíma. Geir Zoéga var
meðal þeirra sem kusu að fara
þessa leið. Fyrir það sætti hann
ámæli Gests Pálssonar auk þess
sem ýmsir töldu sig bera skarðan
64 SAGNIR