Sagnir - 01.04.1984, Síða 109

Sagnir - 01.04.1984, Síða 109
STRÍÐSBRÖLT OG STJÓRNFRELSI framúrskarandi hin síðari ár; til stjórnar veljast helst ofsamenn og óbilgjarnir... Pað óheillamál sem mesta eða alla sök á í þessu er þrælamálið, sem nú lítur út að ætli að verða banamein ríkis- ins. (Skírnir 1861, bls. 103- 104). Þarna var vakið máls á vanda sem mjög vafðist fyrir stjórnmála- hugsuðum 19. aldarinnar. Lýð- ræðið virtist haldið þeirn ágalla að hinir verri menn ryddu þeim betri úr vegi í kosningum með skrumi og ábyrgðarlausum gylliboðum. Þessi veikleiki lýðræðisins var tal- inn önnur af orsökum þess að ríkið var að liðast í sundur. Hin ástæðan var álitin vera hið tak- markalausa efnahagslega frelsi, sem að vísu hafði fært lands- mönnum mikið „veraldargengi" en hafði það illt í för með sér „að föðurlandsást og góðir siðir hafa þorrið að líku hófi sem auðurinn óx.“ Þannig var viðhorf þessara manna til frelsisins fyrst og fremst af pólitískum toga líkt og hjá John Lock, því ekki voru þeir upp- næmir fyrir yngri og hagfræði- legri hugmyndum. Konungsveldi eða lýðstjórn. Hér að framan höfum við kynnst hugmyndum um samhengi gall- aðra stjórnarhátta og upplausnar eða ófriðar. Veita þær hug- leiðingar innsýn í stjórnmála- skoðanir sem telja verður dæmi- gerðar fyrir evrópska mennta- menn um miðja síðustu öld. í þeim birtist andúð á einræðis- legum stjórnarháttum en jafn- framt vantrú á gagnsemi róttækra breytinga. Það var skoðun þeirra sem vitnað hefur verið til í þessu greinarkorni að bæði einræði og lýðræði væru afarkostir fyrir stjórnskipun hverrar þjóðar. í staðinn væri æskilegast að leita millivegar sem hefði friðvænlegri áhrif á þjóðlífið. Þetta fyrir- myndar stjórnarform þóttust margir sjá í Englandi, þar sem menn „þekkja hið sanna stjórn- frelsi og vald það er almennings- álitið hefir gegnum blöð og tíma- rit, þar sem því er eins vel stjórnað og þar í landi.“ (Norðri 15. sept. 1861, bls. 72.) Áhrif fólksins voru talin sjálfsögð og nauðsynleg en ótakmörkuð völd fjöldans voru álitin jafngilda skrílræði eða anar- kisma á sama hátt og ótakmarkað konungsvald leiddi til harðstjórn- ar. Því yrði að takmarka bæði konungsvaldið og kosningarétt almennings. Flestir þeir sem fylltu flokk frjálslyndra þjóðernissinna töldu að sönnu stjórnfrelsi væri best borgið undir konungsstjórn, senr nyti aðhalds þjóðkjörinna þinga. í stuttu máli var ályktunin sem fjarlægir áhorfendur drógu af átökunum á Ítalíu og í Bandaríkj- unum sú að óhjákvæmilegt væri að takmarka frelsi einstaklinganna í þágu heildarinnar. Þetta er hlið- stæð skoðun og Jón Sigurðsson orðaði svo allmörgum árum áður: Enginn getur... komið eins miklu illu af stað og einvaldur konungur, ef hann er ónýtur eða illviljaður, en ekki er betra að ríkismennirnir svæli allt undir sig, og eyði fyrst fátækl- ingunum og síðan hverr öðrum og öllu landinu; og þó fer einna verst þegar skríllinn, sem ekki hefir vit á neinu á að fara að ráða fyrir löndum og lýðum. (Jón Sigurðsson: Hugvekja til ís- lendinga, bls. 4.) -1865. Norðri VII-IX. ár, Akureyri 1859 -1861. Skírnir XXXII-XXXIX ár, Kaupmannahöfn 1858-1865. Stromberg, R.N.: An Intellec- tual History of Modern Europe, New York 1975. Pjóðólfur XI-XVII. ár, Reykjavík 1859-1865. Heimildaskrá: Hearder, H.: Europe in the Ninete- enth Century 1830/1880, Lon- don 1974. Hegel, G.W.F.: Philosophy of Right. Translated with notes by T.M. Knox, Oxford 1980. Hobsbawn, E.J.: The Age of Revolution. Europe 1789-1848, London 1977. Norðurfari I. ár, Kaupmannahöfn 1848. íslendingur I-IV. ár, Reykjavík 1860-1865. Jón Sigurðsson: Hugvekja til ísletidinga. Úrval úr ritum og ræðum Jóns Sigurðssonar til loka þjóðfundar. Með inngangi eftir Sverri Kristjánsson, Reykjavík 1951. Norðanfari I-IV. ár, Akureyri 1862 SAGNIR 107
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.