Sagnir - 01.04.1984, Page 120
ÍSLANDSSAGAN UMRITUÐ
Islandssagan lunrítin
Snorra Sturluson AÐFÖR AÐ
BS bavíanaþJÓÐERNINU
isianassagan er GioPPurísögunni
kennd og veroiir kennd stafa af fjárskortí
Fráleitt að sleppa heilum Söguskilningur
,, , - f i . •• kommúnisKc'í?
timabilum ur Islandssogu
iu.
Wv^
Samfélag bavíana
í íslandssögu en
„Bændamenningin" virðist vera á undanhaldi
,\ umscínií) nær
vjir i:Oúr afllOO
áru IslanJssögu
Ekki rétt að sögukennslan ein-dssagail þarf a5
skorðist við 120 ara tmiabd^ { þjó5arsálinni
miðað við að kenna staglsamari
greinar. Þctta stafar af því að í
sögukennslu fer fram tjáning frá
einu tímaskeiði til annars, frá einu
samfélagi til annars. Sagan er stór-
kostleg aðferð til þess að draga
nemendur út úr búrum sínum og
hún veitir þeim tækifæri til að
þjálfa og þroska viðhorf sín á alla
lund. Merkilegast hefur mér
fundist hve nemendur á raun-
greinabrautum taka sögunni vel
en skýring þeirra sjálfra er einföld.
í sögutímum mega þeir og eiga að
hafa skoðanir og láta þær í ljósi en
aðrar námsgreinar rúma slík við-
brögð í miklu minni mæli. Af
þessum sökum er saga ekki aðeins
efni til fróðleiks heldur líka aðferð
til náms og þroska. Þess vegna er
hún listgrein og kennsla hennar
verður óhjákvæmilega mjög háð
kennaranum á hverjum stað. En
af því að hún er list krefst hún
mcira af leiðbeinandanum en
bókarbundnari greinar gera og
því er hún erfið. Aldrei dcttur
nemendum í hug að krefjast þess
af stærðfræðikennara að hann sé
alúðlegur, hýr og skemmtilegur.
Þurrleg og tilbreytingarlítil sögu-
kennsla er hins vegar fordæmd.
Til okkar eru gerðar miklar og
réttmætar kröfur sem við verðum
að standast, ef við viljum að grein
okkar sé metin sem alvörugrein
en ekki talin eyðufylling í stunda-
skrá. Allt þctta gerir sögukennslu
að forréttindum en um leið heim-
ilar það sögukennurum að krefjast
mjög vel unninna kennslugagna.
Næg er heimavinnan samt.
Ég er sannfærður um að flest
börn og unglingar hafa mikinn og
eðlislægan áhuga á fortíð sinni og
annarra og þau eru í cðli sínu afar
móttækileg fyrir umíjöllun um
liðna atburði. Þennan áhuga er
síðan ýmist hægt að glæða eða
kæfa með námsefni og/eða
kennslu.
En höldum okkur við efnið og
ítrekum upphaflega spurninguna.
Hvernig á góð sögukennslubók
að vera?
Svona á góð sögu-
kennslubók að vera
í septemberhefti Noter 1983 er
samantekt langrar umræðu meðal
danskra sögukennara um
118 SAGNIR