Sagnir - 01.04.1984, Side 138

Sagnir - 01.04.1984, Side 138
EFNISFLOKKUN SAGNA 1.-5. ÁRGANGS Sagnfræði og félagsvísindi, 4. árg. 1983, bls. 26. Sveinbjörn Rafns- son og Gísli Gunnarsson svara þeirri spurningu hvort sagnfræðin hafi einhverja sérstöðu meðal fél- agsvísindagreina. Staða íslenskrar sagnfrœði. Hring- borðsumræður, 1. árg. 1980, bls. 30-37. í þessum umræðum spjalla þeir Helgi Þorláksson, Ingólfur Á. Jóhannesson og Sigurður Ragnarsson vítt og breitt um stöðu íslenskrar sagnfræði. Ma. ræða þeir tengsl sagnfræðinnar við aðrar greinar, störf sagnfræð- inga, alþýðlega söguiðkun, hag- nýtan tilgang sagnfræði, stöðu sögunnar í skólakerfi landsins og framtíðarhorfur sagnfræðinnar. 3. Sagnfræðinám Bjarni Kjartansson, Að nema fyrir „westan“, 2. árg. 1981, bls. 53-54. Bjarni segir frá fyrirkomulagi sagnfræðináms í Bandaríkjunum. Björn Th. Björnsson (viðtal), Inn- virki sögunnar, 1. árg. 1980, bls. 7- 9. í viðtali þessu ræðir Björn ma. hugmyndir um skiptingu sögu- kennslu í tvær brautir: almenna sögu annars vegar, þe. atburða- stjórnmála- og hagsögu, og menningarsögu hins vegar. Þá svarar hann spurningum um lista- sögukennslu í Háskóla íslands og ráðagerðir um að auka hana. Gunnar Karlsson, Draumórar um sambættingu inngatigsfræði og sögu, 2. árg. 1981, bls. 55-57. Gunnar segir ma. að reynsla sín sé sú, að aðferðafræðikennsluna í sagn- fræði við HÍ skorti efni og efnis- kennsluna skorti aðferðir. Gerir hann síðan grein fyrir hug- myndum sínum um það hvernig mætti samþætta aðferðafræði- kennsluna og kjarnaþættina í sögu. Ingi Sigurðsson (viðtal), Skap- endur en ekki þiggjendur, 1. árg. 1980, bls. 53-56. Ingi svarar ma. spurningum um fyrirkomulag sagnfræðináms í Edinborgarhá- skóla og að hvaða leyti það gæti orðið til fyrirmyndar sagnfræði- námi við Háskóla íslands. Sigurgeir Þorgrímsson, Sagn- fræðinám við Árósaháskóla, 2. árg. 1981, bls. 100-104. Lýst er skipan og nýjungum í sagnfræðinámi við Háskólann í Árósum. Sigurgeir Þorgrímsson, Sagn- fræðinám við Oslóarháskóla, 1. árg. 1980, bls. 74-79. í þessari grein dregur Sigurgeir saman ýmsar upplýsingar sem hann aflaði sér hjá Knut Kjeldstadli, kennara við sagnfræðistofnun Oslóarháskóla, um námið þar. Trausti Einarsson, Punktar um sögunám á la frangaise, 2. árg. 1981, bls. 58-59. Trausti segir frá námi í Frakklandi. 4. Sögukennsla í grunn- skólum og framhalds- skólum (ýmislegt) Bragi Guðmundsson, Kæru kol- legar, 3. árg. 1982, bls. 115-117. Bragi veltir fyrir sér hvernig kennslu og kennslubókum í íslandssögu er háttað í framhalds- skólum landsins og bendir á að í þeirn efnum sé ýmsu ábótavant. Bragi Guðmundsson og Ingólfur Á. Jóhannesson, Sagan og grunn- skólinti, 2. árg. 1981, bls. 11-14. Höfundar taka til meðferðar stöðu sögukennslu í grunn- skólum og varpa ma. fram þeirri fullyrðingu, í ljósi könnunar sem gerð hefur verið, að þeir nem- endur 9. bekkjar sem velji samfé- lagsfræði hafi að jafnaði lægri ein- kunnir upp úr 8. bekk en þeir sem velji raungreinar. Bragi Guðmundsson, íslandssagan umrituð, 5. árg. 1984, bls. 117-20. í þessari grein ritar Bragi um til- gang sögukennslu og hvernig góð kennslubók eigi að vera. Það séu ákveðin forréttindi að vera sögu- kennari vegna þess að sagan sé ekki aðeins efni til fróðleiks heldur einnig aðferð til náms og þroska. Ingólfur Á. Jóhannesson, Til- gangur sögukennslu í grunnskólum, 3. árg. 1982, bls. "112—114. í grein sinni segir Ingólfur ma. að hann telji eitt af mikilvægustu mark- miðum náms í hvers konar sam- félagsfræðum vera að auðvelda nemendum að hafa áhrif í samfé- laginu, nemandinn verði að fá skilning á því hver séu hreyfiöfl þjóðfélagsins og hvernig hann geti haft áhrif á þau. Vilfred Friborg Hansen, Saga í dönskum skólum, 1. árg. 1980, bls. 9-11 og bls. 56. Höfundur fjallar ma. um þær breytingar sem orðið hafa í danskri sögukennslu frá því um 1970, breytta kennsluháttu og tilraunir með nýjungar. Spurningar úr íslatidssögu, 3. árg. 1982, bls. 118-120. Hér eru birtar niðurstöður könnunnar sem nem- endur í Menntaskólanum við Hamrahlíð gerðu snemma árs 1982 á þekkingu fólks á ákveðn- um þáttum í íslandssögu. 5. Ymsar greinar og við- töl Árni Björnsson, Um útleiðslu Ing- vars úr Tjarnarbúð, svipmynd úr stjórnmálasögu 7. áratugarins, 3. árg. 1982, bls. 66-68. Hér er á ferðinni ljóðabálkur sem til varð vegna framboðsmála Alþýðu- bandalagsmanna í Reykjavík fyrir Alþingiskosningar 1967. Björn Þorsteinsson, Aumastir allra, 5. árg. 1984, bls. 121-25. Fyrirlestur haldinn á árshátíð Sagnfræðingafélagsins 1983. Um vandamál sagnfræði og sagn- fræðinga í nútíð og fortíð. 136 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.