Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2007, Side 10
miðvikudagur 22. ágúst 200710 Fréttir DV
Réttarhöld eru hafin yfir fimmtán samstarfsmönnum Saddams Hussein í Írak. Þeir
eru ákærðir fyrir glæpi gegn mannkyni. Talið er að hátt í hundrað þúsund manns hafi
verið drepin í aðgerðum gegn sjíum í kjölfar Persaflóastríðsins.
EFNAVOPNA-ALI
Á SAKABEKKINN
Réttarhöld yfir fimmtán samstarfs-
mönnum Saddams Hussein, fyrrver-
andi forseta Íraks, eru hafin. Ákær-
urnar á hendur þeim tengjast þætti
þeirra í að kveða niður uppreisn sjía-
múslíma árið 1991 í kjölfar Persaflóa-
stríðsins. Talið er að allt að hundrað
þúsundir hafi látið lífið í aðgerðum
hers Íraks á þeim tíma.
Meðal ákærðu er frændi Sadd-
ams, Ali Hassan al-Majid, en hann
er betur þekktur sem Efnavopna-Ali.
Dauðadómur hefur nú þegar verið
kveðinn upp yfir honum í réttarhöld-
um vegna glæpa Íraksstjórnar gegn
Kúrdum í norðurhéruðum landsins.
Auk hans hafa tveir hinna ákærðu,
Hashim al-Tai, fyrrverandi varnar-
málaráðherra, og Hussein Rashid
al-Tikriti, háttsettur stjórnandi í her
Íraks, hlotið dauðadóm fyrir sömu
sakir.
Kaldrifjuð manndráp
Í aðgerðum hers Íraks gegn sjía-
múslímum, var öllum meðulum beitt
og engu eirt. Sakborningar eru born-
ir þeim sökum að hafa staðið fyrir og
tekið þátt í kerfisbundnum morðum
á almennum borgurum og kom fram
í opnunarræðu ákæruvaldsins að
um hefði verið að ræða kaldrifjaðar
aftökur þegar uppreisnin var kveð-
in niður. Enginn greinarmunur var
gerður á uppreisnarmönnum sjía og
óbreyttum borgurum. „Þyrlur létu
sprengjum rigna yfir borgir og hí-
býli fólks. Fangar voru drepnir,“ sagði
saksóknarinn.
Samkvæmt ákærum tók Ali Hass-
an al-Majid virkan þátt í aðgerðun-
um, „Majid kom gjarnan í fanga-
búðir, batt hendur fanga og skaut
þá síðan í höfuðið. Líkin voru síðar
grafin í fjöldagröfum.“ Á undanförn-
um árum hafa fundist margar fjölda-
grafir þar sem grafin eru hundruð
manns. Hátt í hundrað einstakling-
ar munu bera vitni við réttarhöldin,
auk þess sem stuðst verður við hljóð-
snældur og skjöl. Hvað varðar beinar
skipanir um aðgerðirnar er talið að
Saddam Hussein hafi látið eyða flest-
um skjölum þar að lútandi.
Ofsóttur meirihluti
Sjía-múslímar eru um sextíu pró-
sent íröksku þjóðarinnar og sættu
miklum ofsóknum á valdatíma Sadd-
ams Hussein. Undir lok Persaflóa-
stríðsins árið 1991 voru þeir hvattir af
George Bush, forseta Bandaríkjanna,
„til að taka málin í sínar hendur“. Sjí-
ar í Najaf og Karbala gerðu því upp-
reisn með það að markmiði að steypa
stjórn Saddams Hussein. Þúsund-
ir uppreisnarmanna náðu fljótlega
völdum í Basra og í fjórtán af átján
héruðum í Írak og voru komnir í sex-
tíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborg-
inni, Bagdad. En það var skammgóð-
ur vermir því Bandaríkin sömdu um
vopnahlé við Íraka. Vopnahléð gerði
stjórnarhernum kleift að brjóta upp-
reisnina á bak aftur af fullri hörku.
Á sama tíma mynduðu banda-
rískar hersveitir griðasvæði fyrir
Kúrda í norðurhluta landsins og
komu þannig í veg fyrir aðgerðir hers
Íraka þar. Enn þann dag í dag kenna
margir sjíar Bandaríkjaforseta um
að uppreisnin tókst ekki og telja að
hann hafi gefið fyrirheit sem hann
sveik síðan á ögurstundu.
Af nógu er að taka
Dómari við réttarhöldin tilkynnti
sakborningum að þeir væru ákærð-
ir fyrir glæpi gegn mannkyni og að
hámarksrefsing, ef þeir yrðu sek-
ir fundnir, væri dauðadómur sem
framvæmdur væri með hengingu.
Embættismanna í stjórn Sadd-
ams Hussein bíða réttarhöld vegna
frekari glæpa. Má þar nefna aftökur
á meðlimum í ýmsum stjórnmála-
flokkum og trúarhópum, innrásina
í Kúveit, nauðungarflutninga þús-
unda Sjía-Kúrda frá norðurhluta
Íraks inn í Íran, aftökur á átta þúsund
meðlima kúrdíska Barzani-ættbálks-
ins og eyðingu votlendis í suðurhluta
landsins.
KOlbeinn þOrSteinSSOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
„Majid kom gjarn-
an í fangabúðir,
batt hendur fanga
og skaut þá síðan í
höfuðið. Líkin voru
síðar grafin í fjölda-
gröfum.“
Þróun borgarinnar helst ekki í hendur við fjölgun íbúa:
Of margir eiga heima í Peking
Peking, höfuðborg Kína, er of
mannmörg og fólksfjölgun þar er ör-
ari en svo að nauðsynleg þróun geti
fylgt með.
Í Peking búa nú um sautján millj-
ónir, en á síðasta ári ákváðu borg-
aryfirvöld að fjöldinn mætti að há-
marki vera átján milljónir árið 2012.
Ekki eru miklar líkur á að sú áætlun
standist því Ólympíuleikarnir verða
haldnir í Peking á næsta ári og mik-
ill fjöldi farandverkamanna hefur
streymt til borgarinnar. Reiknað er
með að um tvær milljónir manns
flytji til borgarinnar af tilefni Ólymp-
íuleikanna.
Undanfarin ár hefur þensla borg-
arinnar orsakað mikla mengun vegna
bifreiða og vegna stækkunar hennar
hefur sögufrægum stöðum sem voru
í nágrenni hennar verið fórnað vegna
gífurlegrar fólksfjölgunar. Íbúar borg-
arinnar og ferðamenn sem þangað
koma kvarta oft og tíðum yfir litlum
gæðum drykkjarvatns og háum raf-
magns- og gaskostnaði.
Ár svínsins
Þurrt loftslag hefur gjarnan hrjáð
Peking og stærstu vandamálin sem
standa borginni fyrir þrifum eru tak-
markaðar vatnsbirgðir og skortur
á öðrum náttúruauðlindum og að
mati sérfræðinga eru íbúar nú þeg-
ar þremur milljónum of margir til
að náttúruauðlindir hennar standi
undir þörf borgarbúa. Vatnsskortur
borgarinnar er staðreynd þrátt fyr-
ir að stjórnvöld hafi, í viðleitni til að
viðhalda örum efnahagsvexti, beint
í stórum mæli vatni úr Jangtse-ánni,
til borga í norðurhluta landsins, þar
á meðal Peking. Staðsetning Peking
veldur því að árstíðabundnir storm-
ar í eyðimörkum í Norður- og Norð-
vestur-Kína eru tíðir og bera með
sér ryk yfir borgina. Og til að bæta
gráu ofan á svart er ár svínsins í Kína
og því von á fjölgun fæðinga þar í
landi. Kínverjar telja að börn fædd
á ári svínsins njóti lukku í lífinu. Í
Kína búa um 1,7 milljarðar manna
og ekkert ríki í heiminum státar af
eins miklum fjölda. Þess má geta að
heildarfjöldi mannkyns er um sex og
hálfur milljarður.
Peking Íbúafjöldi borgarinnar nálgast áætlað hámark.
Fórnarlamb úr fjöldagröf frá 1991
þegar sjíar gerðu uppreisn gegn saddam
Hussein.
Fjöldagröf margar
fjöldagrafir frá stjórnartíð
saddams Hussein hafa
fundist í Írak.
efnavopna-Ali Fékk
dauðadóm fyrir þjóðarmorð.
Mótmæli á
ráðstefnu
Leiðtogar NAFTA-ríkjanna,
Kanada, Bandaríkjanna og Mex-
íkó, funda nú í Kanada. Við-
ræðurnar taka meðal annars til
viðskipta- og öryggismála, en
fríverslunarsamningur er í gildi
milli landanna. Ekki eru allir á
eitt sáttir um fyrirætlanir þeirra
og auk mótmæla frá verkalýðsfé-
lögum og bændum hafa þær sætt
hörðum mótmælum frá demó-
krötum í Bandaríkjunum, enda
stutt í kosningar þar í landi. Búist
er við að andstæðingar heims-
væðingar fjölmenni til mótmæla
á meðan á ráðstefnunni stendur,
en lögreglan hefur lokað af tut-
tugu og fimm kílómetra svæði í
kringum fundarstaðinn.
erLendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Uppgangur
nýnasista
Yfirvöld í Berlín í Þýskalandi
eru uggandi vegna aukinnar
tíðni árása nýnasista á útlend-
inga í austurhluta landsins. Nýj-
asta dæmið átti sér stað í smá-
bænum Mügeln, ekki langt frá
Leipzig. Um fimmtíu nýnasist-
ar réðust þar gegn indverskum
ferðamönnum á meðan aðrir
bæjarbúar stóðu aðgerðarlausir
hjá. Indverjunum tókst að flýja
inn á veitingastað en allt kom
fyrir ekki og þegar lögreglan
kom á staðinn höfðu nýnasist-
arnir brotið sér leið þar inn. Bæj-
aryfirvöld hafna alfarið að atvik-
ið tengist hægri öfgamönnum.
Ferjuslys
Óttast er að allt að hundrað
manns hafi farist er ferju hvolfdi
úti fyrir strönd Taílands í gær. Að
sögn lögregluyfirvalda voru um
hundrað farþegar auk áhafn-
ar um borð í ferjunni er henni
hvolfdi vegna öflugs vinds. Leit
stendur yfir, en ekki liggja fyrir
nánari upplýsingar, en talið er
að einhver hluti farþeganna hafi
verið ferðamenn. Ferjuslys eru
mjög tíð í Taílandi og ofhlaðnar
ferjur og lágar öryggiskröfur eru
yfirleitt orsakir slysanna.
Eftirlýstar
mæðgur
Raghad Hussein, elsta dóttir
Saddams Hussein, er eftirlýst
af alþjóða-
lögreglunni
Interpol og
írökskum
stjórnvöldum.
Hún er sökuð
um að hafa
fjármagnað
og skipulagt
hryðjuverka-
hópa í Írak. Raghad hefur búið í
Jórdaníu, undir verndarvæng Ab-
dullahs konugs, síðan Bandaríkin
réðust inn í Írak árið 2003. Ef hún
verður framseld til Íraks gæti hún
átt yfir höfði sér dauðadóm. Móð-
ir Raghad, Sadija, er einnig eftir-
lýst, en hún hefur búið í Katar.