Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2007, Page 12
Menning
miðvikudagur 22. ágúst 200712 Menning DV
Tónleikar
í Hömrum
Síðustu sumartónleikarnir
í Hömrum á Ísafirði fara fram í
kvöld þegar Sólrún Bragadótt-
ir sópransöngkona og Sigurður
Flosason saxófónleikari
flytja þekkt íslensk sönglög og
þjóðlög í óvenjulegri sam-
setningu. Yfirskrift tónleik-
anna er Dívan og djassmaður-
inn. Tónleikarnir eru jafnframt
fjórðu og síðustu áskriftartón-
leikar Tónlistarfélags Ísafjarðar á
starfsárinu 2006 til 2007 en þeir
eru haldnir í samvinnu við Félag
íslenskra tónlistarmanna.
Halla Margrét í Salnum
Halla Margrét Árnadóttir óperusöngkona syngur ásamt kór Skálholtskirkju
og öðrum gestum á styrktartónleikum fyrir Bergmál í Salnum í Kópavogi í
kvöld. Á efnisskránni verða frægar og elskaðar söngperlur og dúettar úr
óperum og óperettum auk íslenskra sönglaga. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er
miðaverð 2.500 kr. Eldri borgarar, námsmenn og öryrkjar fá miðann á 1.500
kr.
BÓKMENNTIR
LEIKHÚS
Camilla Läckberg heldur fyrirlestur á Reyfi-hátíðinni í kvöld:
Hagfræðingur gerðist sakamálahöfundur
„Ég sat á sunnudagskvöldum
með magaverk yfir því að eiga
heila vinnuviku fram undan. Mér
fannst ég svo rangstæð, leið eins
og ferhyrningi í kringlóttu gati.“
Þetta sagði sænski sakamálahöf-
undurinn Camilla Läckberg, sem
er nú stödd hér á landi, í viðtali
við sænska Ríkisútvarpið fyrr í
sumar. Á þeim tíma sem hún tal-
ar um vann Läckberg sem hag-
fræðingur. Stuttu seinna hóf hún
að skrifa sína fyrstu bók og í dag
er hún einn vinsælasti rithöfund-
ur Norðurlanda, 33 ára að aldri.
Läckberg, sem mun flytja
framsögu á Reyfi-hátíðinni í Nor-
ræna húsinu í kvöld, hefur öðl-
ast mjög skjótan frama á rithöf-
undarferlinum. Fimm bækur hafa
komið út eftir hana á jafnmörgum
árum og hafa bækur hennar selst
í 1,8 milljónum eintaka í 14 lönd-
um. Tvær bóka hennar hafa ver-
ið þýddar á íslensku, Ísprinsess-
an og Predikarinn. Þriðja bókin,
Steinsmiðurinn, er væntanleg í
íslenskri þýðingu. Anna Ingólfs-
dóttir hjá Ara útgáfu, sem gefur
út bækur Läckberg, segir Camillu
afar góða sögumanneskju. „Hún
heldur hæfilegu tempói, hefur
góða innsýn í mannlega þætti og
heldur mörgum boltum vel á lofti.
Camilla er ung og á því örugg-
lega margt eftir. Það renna upp úr
henni sögurnar og fólk dettur inn
í þær og les og les og les.“
Nýlokið er við að kvikmynda
tvær fyrstu bækur Läckberg, Ís-
prinsessuna og Predikarann, og
verða tveir 60 mínútna þættir úr
hvorri bók sendir út á Norður-
löndunum í október og nóvem-
ber. Ekki liggur fyrir hvort Ísland
verði þar á meðal.
Fyrirlestur Läckberg í Norræna
húsinu í kvöld hefst kl. 19.
Rokkópera, dansleikhús og
trúðasýning eru á meðal þess sem
Borgarleikhúsið býður upp á á
komandi leikári. Átta nýjar sýning-
ar verða á fjölunum auk nokkurra
sem halda áfram frá fyrra leikári.
Eins og áður hefur komið fram
verður Superstar, sem er kannski
betur þekkt sem Jesus Christ Sup-
erstar, sett upp á Stóra sviðinu í
haust. Þessi rokkópera eftir Tim
Rice og Andrew Lloyd Webb-
er, sem frumsýnd var árið 1970,
er vitanlega löngu orðin sígild.
Á meðal leikara eru Krummi,
söngvari Mínuss, og Jenni, söngv-
ari Brain Police, en Björn Hlynur
Haraldsson leikstýrir. Gamanleik-
urinn Lík í óskilum eftir Anth-
ony Neilson verður settur upp á
Litla sviðinu í leikstjórn Stein-
unnar Knútsdóttur. Verkið fjallar
um óborganlegt lögguteymi sem
fær það hlutverk að boða eldri
hjónum váleg tíðindi á aðfanga-
dagskvöld. Á meðal leikara eru
Eggert Þorleifsson, Helga Braga
Jónsdóttir og Laddi. Á Litla svið-
inu verður einnig sýnt verkið Fýsn
eftir Þórdísi Þorvaldsdóttur Bach-
man en verkið hlaut fyrstu verð-
laun í leikritasamkeppni Borg-
arleikhússins, Sakamál á svið, á
síðasta leikári.
Hetjur, gítarleikarar og Gosi
Á Nýja sviðinu verða sýnd þrjú
ný verk í vetur. Fyrst má nefna
Hetjur eftir Gerald Sibleyras sem
er grátbroslegt verk um vinskap
þriggja fyrrverandi hermanna úr
seinni heimsstyrjöld sem dvelja
saman á elliheimili. Gömlu stríðs-
hetjurnar eiga í baráttu við valda-
mikla forstöðukonu hælisins en þá
langar að leita á vit ævintýranna.
Verkið vann til Laurence Olivier-
verðlaunanna sem besti nýi gam-
anleikurinn þegar það var sett upp
í West End á síðasta ári.
Ræðismannsskrifstofan eftir Jo
Strömgren, sem einnig sér um leik-
stjórn, er annað verk á fjölum Nýja
sviðsins. Um er að ræða frumlegt
og fyndið verk á bullmáli en Ström-
gren hefur skapað mjög sérstætt
sviðstungumál og hafa sýningar
hans ferðast til yfir 40 landa. Loks
verða Gítarleikararnir eftir Line
Knutzon, „hlýlegur gamanleikur
með lifandi tónlist“ eins og segir
í umsögn, sýndur á Nýja sviðinu.
Hilmir Snær Guðnason leikstýrir.
Börnin gleðjast væntanlega yfir
því að ævintýrið um Gosa verð-
ur sett á svið Stóra sviðsins í vet-
ur. Leikstjóri er Selma Björnsdótt-
ir en leikgerðina vann Karl Ágúst
Úlfsson.
Þá verða Dauðasyndirnar 7,
trúðasýning fyrir fullorðna í leik-
stjórn Rafaels Bionciotto, sett upp
í Borgarleikhúsinu. Verkið fjallar
um hinn sígilda vanda sem felst í
því að lifa lífinu og er frjálsleg túlk-
un á Guðdómlegum gamanleik
Dantes.
Einn af hápunktum leikársins
er svo Dansleikhússamkeppni LR
og Íslenska dansflokksins. Á með-
al þeirra sýninga sem halda áfram
frá fyrra leikári eru Grettir, Ást,
Dagur vonar og Laddi 6-tugur.
kristjanh@dv.is
Killer Joe
aftur á svið
Leiksýningin Killer Joe verð-
ur tekin aftur til sýninga í Borg-
arleikhúsinu í byrjun septem-
ber og er miðasala þegar hafin
á vef leikhússins. Sýningin hlaut
einróma lof bæði gagnrýnenda
og áhorfenda í vor og alls átta
tilnefningar til Grímunnar, þar
á meðal fyrir bestu sýningu
ársins. Þröstur Leó Gunnars-
son landaði svo Grímunni sem
besti karlleikari í aukahlutverki.
Fyrstu sýningar haustsins eru
6. september og 13. september.
Um takmarkaðan sýningarfjölda
er að ræða.
Borgarleikhúsið hefur nú lagt spilin á borðið með hvaða verk verða á fjölum þess á
komandi vetri. Átta ný eða nýleg verk eru á dagskránni. Einn af hápunkt-
um leikársins er svo Dansleikhússamkeppni Leikfélags Reykjavíkur og Ís-
lenska dansflokksins.
ROKKÓPERA,Pabbinn seldurSýningin Pabbinn eftir Bjarna Hauk Þórsson, gaman-samar hugleiðingar um föður-hlutverkið, sem gekk fyrir fullu
húsi í Reykjavík síðastliðinn
vetur, hefur verið seld til allra
norrænu landanna. Uppsetn-
ingarnar verða í byrjun fjórar
talsins en gæti fjölgað og verða
frumsýningar á árunum 2008 og
2009. Viðræður standa yfir um
sölu á verkinu við leikhúsfram-
leiðendur í Þýskalandi, Hol-
landi, á Spáni og víðar. Pabbinn
var frumsýnt í Iðnó í janúar á
þessu ári og var sýnt fyrir fullu
húsi rúmlega 50 sinnum fram í
júní. Bjarni Haukur heldur í ferð
um landið með sýninguna nú
í haust.
Löggugamanleikur Leikritið Lík í
óskilum er á meðal nýrra sýninga
Borgarleikhússins.
Fjölskyldudrama úr sýningunni dagur
vonar sem var valin besta sýning síðasta
leikárs á grímunni í júní. verkið heldur
áfram á fjölunum í haust.
Camilla Läckberg rithöfundur
Bækur Läckbergs hafa selst í 1,8
milljónum eintaka í 14 löndum.
dansleikhús og
trúðasýning