Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Blaðsíða 4
Þriðjudagur 11. september 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Ríkissaksóknari hefur kært Katr- ínu Stefaníu Klemenzardóttur, Óskar Hjartarson og Sólveigu Sigurðardótt- ur fyrir fíkniefnasmygl. Þremenning- arnir eru ákærðir fyrir stórfellt fíkni- efnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á tæpum sjö hundr- uð grömmum af kókaíni frá Hollandi til Íslands þriðjudaginn 13. febrúar á þessu ári. Í ákærunni segir að inn- flutningur efnisins hafi að verulegu leyti verið ætlaður til söludreifingar í ágóðaskyni. Óskar er ákærður fyr- ir að hafa afhent Sólveigu fíkniefnin í Amsterdam í því skyni að þau yrðu síðar flutt til Íslands. Konurnar tvær fluttu síðan fíkni- efnin til landsins með flugi Icelandair frá Amsterdam til Keflavíkurflugvallar. Við tollskoðun kom í ljós að konurn- ar höfðu hvor um sig tæplega þrjú hundruð og fimmtíu grömm af kóka- íni í fórum sínum. Efnið földu kon- urnar bæði innan klæða og innvortis, eftir því sem fram kemur í ákæru rík- issaksóknara. Konurnar voru hand- teknar við komuna í Leifsstöð. Ein hinna ákærðu, Katrín Stefan- ía Klemenzardóttir, skipaði annað sæti á framboðslista Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs í Suður- landskjördæmi fyrir Alþingiskosn- ingarnar árið 1999. Þrír ákærðir sakborningarnir reyndu að flytja sjö hundruð grömm af kókaíni til landsins. Klóraði konu í leigubíl Karlmaður hefur verið ákærð- ur fyrir líkamsárás með því að hafa veist að konu í leigubifreið á Bústaðavegi þann 2. september í fyrra. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa tekið um háls konunnar með þeim afleiðingum að hún hlaut klórfar hægra megin á hálsi og eymsli yfir hálsvöðum að aftan- verðu. Konan krefst 350 þúsund króna í skaðabætur vegna árásar- innar. Þá gerir hún kröfu um að maðurinn greiði 197 þúsund krón- ur vegna útlagðs málskostnaðar. Gæslukjötið enn í frystinum „Kjötið er ennþá í okkar vörslu,“ segir Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði. Þann 25. júní í sumar birti DV frétt um að Landhelgisgæslan hefði komið með 600 kíló af kjöti til landsins í varðskipi. Tollgæslu- menn á Seyðisfirði gerðu kjötið upptækt og settu það í frysti þar sem ekki var leyfilegt að koma með svo mikið magn af kjöti til landsins. Lárus segir að fátt bendi til þess að málið leysist á næstu vikum. Hann segir að ekki sé ólík- legt að kjötinu verði fargað þar sem reglur kveða á um að ótoll- afgreiddur varningur verði gerð- ur upptækur í ríkissjóð. Þar sem ekki má selja kjötið verður því líklega fargað. Lárus segir að auk þess sé það kostnaðarsamt fyrir bæinn að geyma kjötið þar sem um 600 kíló er að ræða. Frambjóðandi til Alþingis ákærður fyrir fíkniefnasmygl: Handtekin með 700 grömm af kókaíni Þórarinn rit- stýrir Mannlífi Mikael Torfason, ritstjóri á Séð og heyrt og aðalritstjóri Birtíngs, lét af störfum að eigin ósk í gær. Marteinn Jónasson auglýsingastjóri lét einnig af störfum. Loftur Atli Eiríksson tekur við ritstjórn Séð og heyrt og Þórarinn Þórarinsson verð- ur ritstjóri Mannlífs. Ekki verð- ur ráðið í stöðu aðalritstjóra hjá Birtíngi en ritstjórar félags- ins munu bera ábyrgð sínum blöðum. Birtíngur gefur út átta tíma- rit en félagið er einnig í náinni samvinnu um útgáfu DV. Elín Ragnarsdóttir er framkvæmda- stjóri beggja félaganna. Boða mótmæli Aðgerðasamtökin Saving Ice- land halda alþjóðlegan dag gegn stóriðju á morgun. Í tilkynningu frá samtökunum segir að mót- mæli af ýmsum toga gegn stór- iðju víða um heim verði haldin við Stjórnarráðið á hádegi og við Þjórsá þar sem gengið verður að Urriðafossi klukkan 15. 12. september varð til sem alþjóðlegur dagur gegn stóriðju á alþjóðlegri ráðstefnu Saving Ice- land um hnattræn áhrif stóriðju sem haldin var í sumar. Slasaðist á höfði Tuttugu og fjögurra ára karl- maður slasaðist á höfði er hann fékk spítu í sig á byggingarsvæði í Hafnarfirði. Maðurinn var við vinnu við Kirkjuvelli í Hafnarfirði þegar slysið varð. Maðurinn var á jörðu niðri en vindhviða feykti spít- unni af þriðju hæð hússins og lenti hún á manninum. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu var maðurinn ekki álitinn alvarlega slasaður en var færður til skoðunar á slysadeild. Lögreglan var einnig kölluð til vegna manns sem hafði dottið og slasað sig. Að sögn lög- reglunnar var maðurinn ölvaður. Jónínu Thorarensen brá í brún þegar hún fékk í hendurnar hund sem hún keypti eftir myndum. Hann var með tvíbrotna rófu, lyktaði illa og var horaður. Jónína vill kæra hundaræktandann. Ættbókin átti að kosta hundrað þúsund krónur aukalega. „Þegar hann kom til okkar var hann með tvíbrotna rófu, lyktaði illa, var horaður og með mattan feld.“ RÓFUBROTINN OG HORAÐUR „Við bara treystum honum. Okkur datt ekki í hug að þetta væri einhver svindlari,“ segir Jónína Thorarensen sem nýverið festi kaup á rottweiler- hvolpinum Ozzy fyrir 140 þúsund krónur. „Þegar hann kom til okkar var hann með tvíbrotna rófu, lyktaði illa, var horaður og með mattan feld.“ Hún segist alls ekki vilja skila Ozzy en vill koma sögu sinni á framfæri til að fleiri láti ekki plata sig. „Mig langar að kæra hann fyrir dýraverndarsamtökunum.“ Dýraníð Seljandinn, Davíð Örn Þorkelsson, segist hafa hugsað vel um hundinn og finnst að mannorði sínu vegið enda sé hann heiðarlegur maður. „Ég hef fengið miklar ákúrur á netinu, bæði um dýraníð og annað. Það er verið að ganga á æru mína.“ Fyrir hálfum mánuði sá Jónína rottweiler-hvolp auglýstan til sölu. Þar sem fjölskyldan býr á Vesturlandi gat hún ekki skoðað hundinn og lét sér nægja myndir. Davíð Örn segist hafa boðið Jónínu hvolpinn á 250 þúsund krónur með ættbók en hún hafi falast eftir léttgreiðslum og hann þá boðið henni hundinn á 150 þúsund án ættbókar. Davíð segir eiginmann Jónínu hafa prúttað verðið niður í 140 þúsund. Jónína staðfestir að þau hafi borgað þá upphæð og að þeim hafi verið nokk sama um ættbókina. Þegar hundurinn kom vestur með flugi fóru þó að renna á hana tvær grímur. „Hann var í slæmu ásigkomulagi og það fylgdi honum ekki einu sinni heilsufarsbók.“ Davíð segist hafa látið bæði ormahreinsa og bólusetja hundinn. Hvað örmerkingu varðar segist Davíð hafa það látið fyrirfarast viljandi svo að hundinum væri ekki alltaf skilað til hans ef hann týndist. „Ég hefði haldið að það væri einfalt að breyta skráðu heimilisfangi,“ segir Jónína og skilur ekkert í þessari skýringu. 250 þúsund Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, hér- aðsdýralæknir Vestfjarðaumdæmis, segist hafa skoðað Ozzy og ekki þor- að annað en að gefa honum ormalyf þar sem ekki var hægt að fá staðfest að hann hefði áður fengið þau. „Það er algjört lágmark að ormahreinsa.“ Hún segir eðlilegt að kaupandi fái heilsufarsvottorð með hundi og hef- ur orð á því að feldur hvolpsins hafi verið mattur. Þegar Jónína fór að efast um að ekki væri allt með felldu óskaði hún eftir ættbókinni frá Davíð. Hún segist halda að hann hafi upphaflega boðið henni 250 þúsund með ættbók svo að hún yrði afhuga því. „Síðan ætlaði hann að láta mig borga hundrað þúsund fyrir að fá ættbókina sem mér finnst alveg út í hött.“ Jónína segist hafa það frá Davíð að hvolpurinn sé undan hundi og tík með ættbók frá Hundaræktarfélagi Íslands. Í samtali við blaðamann vildi hann þó hvorki gefa upp nöfn „foreldranna“ né hvaðan ættbók þeirra komi. Jóna Theodóra Viðarsdóttir, for- maður Hundaræktarfélagsins, segist ekki geta tjáð sig um einstök mál en þekkir ekki til þess að fólk selji hunda undan ættbókarfærðum hundum án þess að ættbækur fylgi. „Ég sé hvorki ástæðu né tilefni til þess.“ Í reglum fyrir félaga Hundarækt- arfélagsins segir að þeim sé óheimilt að krefjast fullrar greiðslu fyrir hund fyrr en við afhendingu ættbókarskír- teinis, heilsufarsvottorðs og bólu- setningarvottorðs. Erla HlynsDóTTir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Hvolpurinn Ozzy jónínu langar að kæra fyrri eiganda Ozzys fyrir dýraverndarsamtökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.