Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Blaðsíða 32
Þjófur stal bíl sem
átti að henda
Eigandi bíls sem stolið var á
Akureyri tilkynnti l�greglu um
þjófnaðinn en lagði litla áherslu á að
bíllinn fyndist. Ástæðan er einf�ld.
Bíllinn er verðlaus og átti að henda
honum.
Eigandinn hafði afskráð bílinn og
var á leið með hann í endurvinnslu
þegar hann hvarf frá heimili manns-
ins. Að s�gn varðstjóra hjá l�gregl-
unni á Akureyri var bíllinn þó gang-
fær og lagði eigandinn ekki mikla
áherslu á að bíllinn fyndist. Fimmt-
án þúsund krónur fást fyrir að fara
með ónýta bíla til endurvinnslu.
L�greglan fékk um helgina til-
kynningar um innbrot í þrjá bíla og
var stolið úr þeim geislaspilurum.
Fj�gur systkin hafa stefnt sveitarfé-
laginu Vogum fyrir að hafa tekið land
þeirra ól�glega og nýtt það sem úti-
vistarsvæði án þess að greiða fyrir
það.
Í gær var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjaness mál systkinanna
gegn sveitarfélaginu. Að s�gn Hild-
ar Sólveigar Pétursdóttur, l�gmanns
systkinanna, tók bærinn landið ekki
eignarnámi heldur gerðu sveitar-
stjórnarmenn ráð fyrir útivistarsvæði
í aðalskipulagi bæjarins sem fyrst tók
gildi árið 1994. Skipulagið hefur hins
vegar gengið í gegnum þó nokkrar
breytingar síðan þá og var því breytt
árið 2000, 2001 og nú síðast árið
2006. Í þessu skipulagi var gert ráð
fyrir útivistarsvæði en þar sem systk-
inin telja sig eiga landið vilja þau fá
greiðslu eða bætur fyrir sem þau
hafa ekki fengið.
Svæðið sem um ræðir er í miðjum
bænum á besta stað. Á svæðinu má
ekki byggja en á því er tj�rn, g�ngu-
stígar og bekkir en það er í heildina
6.970 fermetrar að stærð. Að s�gn
Hildar liggur ekki fyrir hversu háar
bætur systkinin vilja þar sem verð í
bænum sé mj�g breytilegt frá ári til
árs. Mikil uppbygging hefur verið í
bænum undanfarin ár og hefur íbú-
um fj�lgað t�luvert. Því má gera ráð
fyrir að verðmæti landsins hafi auk-
ist umtalsvert á undanf�rnum árum
og komi til með að aukast enn frekar
með meiri uppbyggingu. Hvað sem
því líður telur Hildur að verðmætið
hlaupi á tugum milljóna króna. Hún
segir að sykstkinin myndu sætta
sig við að bærinn tæki landið eign-
arnámi og greiddi fyrir það viðun-
andi bætur. Þessi ráðst�fun bæjar-
yfirvalda í Vogum hefur valdið því
að þau hafa ekki getað hagnýtt sér
landið eins og þau hefðu annars
getað gert.
Málinu í gær var frestað til sátta-
umleitana í þrjá mánuði og hafa
málsaðilar tíma til 12. desember til
að koma málum á hreint. Hildur seg-
ir að systkinin muni gefa sér þessa
mánuði til að ræða við bæjaryfirv�ld.
Takist það ekki mun málið fara aftur
fyrir dómstóla.
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri
Voga, vildi ekki tjá sig um málið þeg-
ar til hans var leitað við vinnslu þess-
arar fréttar.
einar@dv.is
Guðleifur Sigurðsson byggingaverktaki
horfir fram á fj�lda málsh�fðana frá
eigendum íbúða sem telja eignir sín-
ar stórlega gallaðar. Hann hefur þegar
hlotið dóm fyrir slælegan frágang hús-
eignar við Hólmasund í Reykjavík. Þá
var hann dæmdur til að greiða húseig-
anda bætur og málskostnað upp á 1,5
milljónir króna.
Húsfél�g og íbúar í fj�lbýlishús-
um sem Guðleifur reisti íhuga alvar-
lega málsh�fðun gegn honum. Hús-
in standa við Hólmasund, Reiðvað
og Kristnibraut. Í �llum tilvikum eru
íbúarnir ósáttir við galla á húsunum.
Dæmi eru um að baðk�r halli þannig
að vatn nái ekki að renna úr þeim og
íbúar þurfa því að ausa úr þeim vatn-
inu. Þá eru gólf mishæðótt og niðurf�ll
ekki rétt frágengin.
Óvönduð vinnubrögð
Í fj�lbýlinu við Reiðvað eru 36 íbúð-
ir. Fljótlega kom í ljós óánægja meðal
íbúanna og þeir hafa leitað til l�gfræð-
ings. Allir húseigendur í húsfélagi við
Hólmasund 4–20 hafa sameinast um
að h�fða mál gegn Guðleifi. Málið var
þingfest í síðustu viku.
Húseigendur við Kristnibraut 2–12
í Grafarholti vinna að því að taka sam-
an atriði sem þeir telja tjón vegna frá-
gangs. H�skuldur Jónsson, fyrrverandi
forstjóri ÁTVR, er meðal íbúanna við
Kristnibraut og staðfestir að þeir séu
að kanna rétt sinn. „Eigendur hér eru
að kanna sinn rétt og safna g�gnum í
samráði við l�gfræðinga. Vandinn er
sá að þessi mál taka langan tíma í úr-
vinnslu og við eigum eftir að taka af-
st�ðu til þess hvort við f�rum í mál.
Ég myndi flokka þetta sem óv�nduð
vinnubr�gð og það er alveg rétt að það
er leiðinlegt að horfa upp á að menn
komist endalaust upp með slíkt.“
Skemma fyrir sjálfum sér
Fasteignasalan Eignamiðlun sér
um s�lu allra eigna fyrir Guðleif. Þar
reyndist erfitt að fá sv�r er blaðamaður
gerði til þess tilraunir í gær.
Guðleifur segist miður sín yfir
óánægjunni. „Það er allt lagað sem
beðið er um því mér þykir vænt um
mína viðskiptavini. Að miklu leyti er
þetta smotterí og sumir hlutir hafa
ekkert með mína vinnu að gera. Ég
laga allt sem ég er beðinn um.
Ég hef ekki áður fengið svona
óánægju á mig og mér finnst þetta
leiðinlegt. Auðvitað getur alltaf komið
fyrir að fólki finnist einhverjar sprung-
ur eiga ekki að vera eða að einhverjir
hlutir eigi að vera �ðruvísi en þeir eru.
Mér finnst æran mikilvægari en aur-
arnir og því geri ég allt til að laga hlut-
ina. Ég held að fólk græði ekki mikið á
því að auglýsa hús sín sem óm�guleg.“
þriðjudagur 11. sepdember 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
FréttaSkot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Er ekki einmitt málið að
halda vatninu í baðinu?
BYGGINGAVERKTAKI Í
ENDURTEKNUM DEILUM
Kærumálin hanga yfir Guðleifi Sigurðssyni byggingaverktaka:
Halda heim á leið Skemmtiferðaskipið Grand Princess er eitt síðasta skip sinnar tegundar sem kemur við í Reykjavík þetta árið.
Prinsessan lagði úr höfn í gær og mættu síðustu ferðamennirnir í blálokin eftir að hafa kvatt land og þjóð. DV-MYND STEFÁN
Systkin stefna sveitarfélaginu Vogum fyrir að taka jörð án greiðslu:
Segja bæinn stela jörð þeirra
Foreldrar földu
líkið af Madeleine
Madeleine litla McCann lést
m�gulega af ofskammti lyfja, að því er
kom fram í portúg�lskum dagbl�ðum
í gær. Búist er við að l�greglan leggi
fram g�gn sem sýna fram á að Kate
McCann, móðir Madeleine, hafi gerst
sek um manndráp af gáleysi með því
að gefa dóttur sinni óvart of stóran
skammt af róandi lyfjum. Portúgalska
l�greglan segir að þáttur f�ðurins sé
enn óljós en hann er talinn hafa að-
stoðað við að fela lík barnsins.
Madeleine sem er fj�gurra ára
hvarf í maí.
Girðingarefni
stolið frá bónda
Nokkrir óprúttnir aðilar gerðu
sér lítið fyrir og stálu t�luverðu
magni af girðingarefni frá Baugs-
st�ðum, rétt austan við Stokks-
eyri.
Þjófnaðurinn uppg�tvaðist
í gærmorgun þegar vinna við
girðingarlagningu átti að hefjast.
Þá kom í ljós að einhver hafði
haft á brott með sér sex netar-
úllur, nokkrar gaddavírsrúllur
og staura. Að s�gn varðstjóra hjá
l�greglunni á Selfossi er ekki vit-
að hver eða hverjir voru að verki
en notagildi þýfisins er mj�g
takmarkað. Ljóst er að stóran
bíl hefur þurft til verksins. Þeir
sem geta gefið upplýsingar um
þjófnaðinn eru beðnir um að
hafa samband við l�gregluna á
Selfossi.
Taylor ákærður
Nathaniel David Taylor, sem
braut gegn farbanni og fór úr landi,
verður ákærður fyrir líkamsárás
gegn Haraldi
Fossan.
Eins og sagt
var frá í DV í gær
réðist Taylor,
sem er starfs-
maður Taylor‘s
Tivoli Funland,
á Harald með
hnúajárni og sparkaði í h�fuð
hans á meðan hann lá í g�tunni.
Samkvæmt upplýsingum frá l�g-
reglu mun rannsókn málsins senn
ljúka. Ekki liggur enn fyrir hvort lýst
verður eftir Taylor.
Bjartsýnn
á framhaldið
Jóhannes Bjarni Guðmundsson,
formaður Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, FÍA, segist bjartsýnn á
að sættir náist á milli félagsins og
Icelandair í deilum þeirra sem snú-
ast að mestu um kjaramál. Fulltrúar
félaganna hitt-
ust í gær á fundi
og hefur annar
fundur verið
ákveðinn í næstu
viku. Jóhannes
segist ekki gera
ráð fyrir frekari
t�fum á flugi Ice-
landair. „Báðir
deiluaðilar eru sammála um að þessi
grundvallarágreiningur um forgangs-
rétt til starfa verði útkljáður í næstu
kjarasamningum. Fram að þeim tíma
ætlum við að gera samkomulag sem
setur málin í góðan farveg í bili.“
trauSti HaFSteinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
kristnibraut 2–12 Íbúar við Kristni-
braut 2–12 í Grafarholti íhuga málsókn
gegn byggingaverktakanum. Hið sama á
við um íbúa við Reiðvað í Norðlingaholti
og húsfélag við Hólmasund hefur þegar
höfðað mál.