Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Side 9
DV Fréttir miðvikudagur 11. september 2007 9 Mikið Mannfall en ekkert öryggi lífið vegna árásanna í New York, 11. september árið 2001. Flug 77 Á meðan björgunarfólk í New York stóð í stórræðum við að bjarga fólki úr Tvíburaturnunum vofði vá yfir starfsfólki varnarmálaráðuneyt- is Bandaríkjanna. Flug 77 var á leið frá Dulles-flugvelli til Los Angel- es þegar vélinni var rænt. Klukkan tuttugu mínútur í tíu þennan morg- un var vélinni flogið á Pentagon, þar sem hjarta bandarískra her- og varnarmála sló. Vélin lenti á vest- urhlið byggingarinnar en sá hluti hafði nýlega verið endurnýjaður og hýsti meðal annars stjórnstöð sjó- hersins og fleiri skrifstofur. Allir far- þegar vélarinnar létust og hundr- að tuttugu og fimm í byggingunni. Skömmu síðar voru Hvíta húsið og þinghúsið í Washington rýmd. Fjórða flugvélin Ekki er vitað með vissu hvert skotmark fjórðu vélarinnar átti að vera, en það var flug 93 frá Newark til San Francisco. Sú flugvél komst aldrei á leiðarenda, en brotlenti á engi í Pennsylvaníu. Almennt er talið að Hvíta húsið eða þinghúsið í Washington hafi verið skotmark þeirrar vélar. Vélin er talin hafa far- ist þegar farþegar um borð reyndu að ná völdum af flugræningjunum. Ýmislegt liggur fyrir sem staðfestir það, svo sem upplýsingar úr svarta- kassanum og símtöl farþega við sína nánustu þennan örlagaríka dag. Farþegar og áhöfn flugvélarinnar voru þann 19. september tilnefnd til æðstu viðurkenningar Bandaríkja- þings, Congressional Gold Medal. Eftirmál Manntjón af völdum árásanna var 246 flugfarþegar, 125 starfs- menn í Pentagon, 2.603 í New York og 19 flugræningjar. Almenning- ur í Bandaríkjunum, sem hingað til hafði álitið sig öruggan gagnvart hryðjuverkum heima fyrir þurfti nú að horfast í augu við nýjan raun- veruleika. Í efnahagslegu tilliti var tjón- ið gríðarlegt. Auk Tvíburaturnanna sem hrundu voru nærliggjandi byggingar margar hverjar ónýtar. Starfsemi Kauphallarinnar í New York og fleiri verðbréfamarkaða lá niðri í viku eftir árásirnar. Flugfélög- in í heiminum hafa ekki enn borið barr sitt eftir atburðina sem áttu sér stað fyrir sex árum og öryggisgæsla á flugvöllum einkennist af þeirri ógn sem varð að raunveruleika árið 2001. Og Bandaríkin hófu „stríð gegn hryðjuverkum“ sem ekki enn sér fyrir endann á. Að kvöldi 11. maí götumyndin á manhattan breyttist á einum degi. 5. september 2001 svona litu turnarnir út fáum dögum fyrir árásina. Mikil sorg Þessi maður slapp lifandi úr World trade Center.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.