Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Side 10
Þriðjudagur 11. september 200710 Fréttir DV
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar
urðu nýverið uppvísir að landgöngu í
leyfisleysi og hugsanlega eggjastuldi
á eyjunum Þormóðsskeri og Mjóa-
skeri nálægt Borgarnesi. Er umsjón-
armaður eyjanna Svanur Steinarsson
varð varðskips var rétt utan við eyj-
urnar sigldi hann út á bát sínum til
að spyrjast nánar fyrir. Það eina sem
hann hafði upp úr krafsinu var kæra
frá Gæslunni fyrir að sigla án haffær-
isskírteinis. Svanur var færður til lög-
reglunnar í Borgarnesi þar sem hann
var kærður fyrir að sigla án skírtein-
isins og átti hann von á myndarlegri
sekt. Hann var ósáttur við þær mála-
lyktir og ákvað að fara eftir eigin leið-
um.
Fóru í eyjurnar í leyfisleysi
Aðspurður segist Svanur standa
frammi fyrir þeim vanda ár hvert að
farið sé á land í eyjunum án leyfis.
Hann bætir því við að iðulega sé það
gert til að ræna eggjum. „Eyjurnar
eru rændar á hverju ári og þetta er
eilífðarmál að standa í. Þeir segjast
hafa verið að kafa en þeir fóru út í
eyjurnar líka. Þar voru þeir án leyf-
is sem þeir þurfa klárlega að fá hjá
okkur. Ég hef hins vegar engar bein-
ar sannanir fyrir því að Gæslan hafi
stolið eggjum,“ segir Svanur.
Dagmar Sigurðardóttir, upplýs-
ingafulltrúi Landhelgisgæslunnar,
staðfestir að farið hafi verið á land
í eyjunum. „Ég kannast við að
varðskipsnemar, sem eru hjá
okkur á sumrin, fóru á land í
eyjunum, skoð-
uðu vita og
hreyfðu sig
um. Annars var haldin þarna köf-
unaræfing. Það er hins vegar algjör-
lega útilokað að starfsmenn hafi
stolið eggjum og með því er ein-
göngu verið að reyna að koma bletti
á okkur.“
Hótaði kæru á móti
Svanur brást ákveðið við því að
vera kærður. Hann segir báða aðila
hafa lært af reynslunni. „Það
fauk í mig þegar þeir tóku
mig bara. Ég sætti mig ekki
við að hafa verið kærður
fyrir að vernda eyjuna fyrir
stuldi og sagði þeim að ég
myndi bara kæra þá
á móti. Þá sögð-
ust þeir ætla að fella kæruna niður.
Ég held að báðir aðilar hafi kom-
ið sínum skilaboðum áleiðis, ég til
þeirra að fara ekki í eyjurnar í leyfis-
leysi og þeir til mín að sigla ekki án
haffærisskírteinis.“
Aðspurð segir Dagmar aftur á
móti engan geta hótað Landhelg-
isgæslunni þannig að kærur séu
felldar niður. „Þetta er ekki rétt og
ég fullyrði að engin kæra hefur ver-
ið felld niður hjá okkur. Því fer svo
fjarri að fólk geti verið með hót-
anir við okkur og fengið kærur
þannig felldar niður,“ segir Dag-
mar.
Svanur Steinarsson hafði afskipti af starfsmönnum Landhelgisgæslunnar þar sem þeir gengu á land í Þor-
móðsskeri og Mjóaskeri í Borgarnesi. Hann er umsjónarmaður eyjanna og vill vernda þær fyrir eggjaþjófum.
Í kjölfarið var hann kærður af Gæslunni fyrir ólögmætar siglingar en hótaði kæru á móti.
Gæslustarfsmenn
sakaðir um eGGjastuld
TrauSTi HaFSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Það fauk í mig þegar
þeir tóku mig bara. Ég
sætti mig ekki við að
hafa verið kærður fyrir
að vernda eyjuna fyrir
stuldi og sagði þeim að
ég myndi bara kæra þá
á móti. Þá sögðust þeir
ætla að fella kæruna
niður.“
miðvikudagur 11. september 200718 Sport DV
EIGUM MIKIÐ ÚRVAL AF BÍLALEIGUBÍLUM SEM VIÐ
SELJUM NÚ Á FRÁBÆRUM TILBOÐUM. GLAÐNINGUR
FYLGIR HVERJUM BÍL, ENGIN ÚTBORGUN, EKKERT MÁL.
I I I Í I Í I
I . I
I Í , I , .
TILBOÐ: 1,790,000. TILBOÐ: 1,590,000.TILBOÐ: 990,000.
B Í L D S H Ö F Ð A 1 0 – S : 5 7 7 2 8 0 0 / 5 8 7 1 0 0 0
LEXUS IS 250 SPORT
ÁRG 3/2006 EKIN 16ÞÚS KM,LYKLALAUST AÐGENGI
OG START,SPORT TAKKI,LEÐUR,18“ÁLFELGUR OG
M/FL,STÓRGLÆSILEGUR BÍLL.VERÐ: 4,790,000
-ÁKV 3,300ÞÚS 53PR MÁN.
TOYOTA RAV-4
ÁRG 11/2006 EKIN 28ÞÚS KM,SJÁLFSKIPT-
UR,ABS,ÁLFELGUR,DRÁTTARBEISLI,GEISLASPIL-
ARI,FJARST SAMLÆS,RAFM Í ÖLLU,REYKLAUS.
VERÐ: 2,690,000-
SUZUKI GRAND VITARA 2,0L LIMITED
ÁRG 9/2004 EKIN 50ÞÚS KM,SJÁLFSKIPT-
UR,ABS,ÁLFELGUR,CD SPILARI,LEÐURINNRÉTT-
ING,RAFM Í ÖLLU,
VERÐ: 1,990,000-
SKODA SUPERB
ÁRG 8/2006, EKIN 21ÞÚS KM,BEINSKIPTUR,ABS
AKSTURSTALFA,ÁLFELGUR,DRÁTTARBEISLI,CD
SPILARI,OG M/FL HLAÐIN BÚNAÐI, VERÐ:
2,190,000- ÁKV 1,720,000- 29ÞÚS PR MÁN.
PORSCHE CAYENNE
ÁRG 5/2005 EKIN 37ÞÚS KM,HRAÐANÆMT STÝRIR
MEÐ HITA,SUMAR OG VETRARDEKK,AKSTURS-
TALFA,LEÐURINNRÉTTING,STÓRGLÆSILEGUR
BÍLL,INNFLUTTUR NÝR AF UMBOÐI
VERÐ:6,490,000- ÁKV 4,500,000- ATH ÖLL SKIPTI.
NISSAN PARTOL GR
ÁRG 2/2005,EKIN 51ÞÚS KM,7MANNA,SJÁLFS-
SKIPTUR,LEÐURINNRÉTTING,ÁLFELGUR,GLERTOPP-
LÚGA,CD MAGNASÍN OG M/FL.
VERÐ: 3,950,000-
NISSAN NAVARA SE 2,5L DOUBLE-CAP
ÁRG 6/2006 EKIN 20ÞÚS KM,SJÁLFSKIPTUR,PALL-
HÚS,HEITHÚÐARÐUR PALLUR,ABS,ÁLFELG-
UR,DRÁTTARBEISLI,CD SPILARI.
VERÐ: 3,390,000-
M.BENZ E-270 CDI.
ÁRG 2004,30ÞÚS KM,SJÁLFSKIPTUR,17“ÁLFELG-
UR,ÁLFELGUR,FJARLÆGÐARSKYNJARAR,CD
SPILARI,CRUS,LOFTKÆLING,
VERÐ: 4,290,000-
JEEP GRAND CHEROKEE 5,7L HEMI
ÁRG 5/2005,EKIN 27ÞÚS KM,ABS,ÁLFELG-
UR,DRÁTTARBEISLI,LITAÐ GLER,GEISLASPIL-
ARI,TOPPLÚGA,CRUS,LEÐURINNRÉTTING,RAFMAGN
Í ÖLLU. VERÐ: 3,970,000-
HONDA CRC-I-V-TEC
ÁRG 2/2005 EKIN 60ÞÚS KM,SJÁLFSKIPT-
UR,ABS,ÁLFLEGUR,DRÁTTARBEISLI,CD SPIL-
ARI,GLERTOPPLÚGA,HRAÐASTILLIR,RAFM Í ÖLLU.
VERÐ: 2,290,000-
HYUNDAI SONATA DÍSEL
ÁRG 6/2007 EKIN 7ÞÚS KM,SJÁLFSKIPT-
UR,ABS,ÁLFELGUR,CD SPILARI FJARLÆSING-
AR,HRAÐASTILLIR,RAFM Í ÖLLU
VERÐ: 2,690,000-
KYRON M-200
ÁRG 5/2006 EKIN 25ÞÚS KM,SJÁLFSKIPTUR,31“
DEKK,ABS,ÁLF,LITAÐ GLER,CD SPILARI,RAFMAGN Í
RÚÐUM,OG M/FL.
VERÐ: 3,050,000-
GRÍÐARLEGT ÚRVA NOTAÐRA BÍLA
GETUM ÚTVEGAÐ ALLT AÐ 100%
FJÁRMÖGNUM, FLOTT VERÐ FLOTTIR BÍLAR.