Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Qupperneq 15
DV Sport Þriðjudagur 11. september 2007 15
Sport
Þriðjudagur 11. september 2007
sport@dv.is
Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í
leikmannahópi Íslands gegn Spánverj-
um á laugardaginn. Læknir Barcelona
fór fram á að Eiður Smári tæki ekki þátt
í leiknum og við því var orðið.
Allar líkur eru hins vegar á því
að Eiður Smári geti verið með gegn
Norður-Írum, hvort sem hann byrj-
ar inná eða á varamannabekknum.
Eiður Smári hefur verið að æfa með
landsliðinu að undanförnu og segist
klár í slaginn.
Eiður Smári segist vera búinn að
fá grænt ljós frá Barcelona fyrir leik-
inn gegn Norður-Írum og því sé ekk-
ert því til fyrirstöðu að hann spili
leikinn.
„Það virðist hafa komið upp eitt-
hvert panik á föstudagskvöldið. Ég
fékk skilaboð frá lækninum úti að
hringja í hann og ég gerði það. Við
töluðum okkur saman og læknarn-
ir töluðu sig saman og því miður var
ekki gefið grænt ljós á að ég tæki þátt
í þeim leik. Það var bara skynsemin í
þessu, sem er kannski alveg rétt. Ég
var bara búinn að æfa í þrjá daga eft-
ir tveggja til þriggja mánaða meiðsli.
Það var bara farið eftir höfðinu frek-
ar en hjartanu,“ segir Eiður Smári
og bætir við að það hafi ekkert með
meiðsli annarra leikmanna Barce-
lona að gera.
„Við þurfum að tala um það hversu
mikinn þátt ég tek, ég og Eyjólfur.
Það fer líka eftir því hvernig við
munum leggja leikinn upp og
annað,“ segir Eiður Smári.
Von er á rigningu á morgun og
Eiður Smári segir að veðr-
áttan skipti máli hvað
meiðsli hans varðar.
„Sérstaklega þegar
kólnar, þá þarf ég
lengri upphitun.
En það er eitthvað
sem ég þarf að lifa
við, ekkert mál. Ég
er búinn að vera í
ágætis styrktarpró-
grammi. Eyjólfur
hefur verið mjög skilningsrík-
ur á það að hleypa mér fyr-
ir æfingar og eftir æfingar í
lyftingasalinn. Ég þarf á því
að halda,“ segir Eiður Smári.
Hann á ekki von á því að
erfitt verði fyrir hann að
berja í sig sama bar-
áttuanda og liðið
sýndi í leiknum gegn Spánverjum.
„Ég get ekki ímyndað mér það. Þeg-
ar allir eru að gíra hver annan upp
er það bara liðsheildin sem skiptir
máli. Ég talaði um það fyrir leikinn
að ég fann fyrir hugarfarinu hjá leik-
mönnum. Þetta var akkúrat það sem
við þurftum, að reyna að gefa allt frá
okkur þannig að við fáum eitthvað
til baka og allir séu jákvæðir í okk-
ar garð. Það var meiriháttar stemn-
ing á vellinum og ég held að allir hafi
skemmt sér konunglega. Það voru
allir svekktir með að hafa ekki unn-
ið Spánverja og það segir sitt,“ segir
Eiður Smári að lokum.
dagur@dv.is
Allt bendir til að Eiður Smári verði með gegn Norður-Írum, annað hvort í byrjunarliði eða á bekknum:
HEFUR FENGIÐ GRÆNT LJÓS FRÁ BARCELONA
Skynsemin réð
ferðinni eiður smári
segir að það hafi verið
skynsamlegt að hann
hafi ekki tekið þátt í
leiknum gegn spánverj-
um.
Óvíst um þátttöku Healys Þurfum að sýna stöðugleika
22.11.1949 – 09.09.2007
ásgeir elíasson
Ferill Ásgeirs Elíassonar sem leikmanns og þjálfara er glæstur og spannar nær 40 ár. Bls. 18.