Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Qupperneq 16
Þriðjudagur 11. september 200716 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Lampard og
Hargreaves meiddir
miðjumennirnir Frank Lampard og
Owen Hargreaves verða ekki með enska
landsliðinu sem
mætir rússum á
morgun, vegna
meiðsla. Þeir voru
ekki heldur með
gegn Ísrael á
laugardaginn.
Lampard reif
vöðva í læri á
æfingu með
Chelsea í síðasta
mánuði og hefur ekki jafnað sig.
Hargreaves meiddist á æfingu með
landsliðinu á miðvikudaginn og vonir
stóðu til að hann yrði með á morgun.
talið er að gareth barry haldi sæti sínu í
byrjunarliðinu, við hlið stevens gerrard.
gerrard var tæpur á meiðslum en í gær
var staðfest að hann yrði klár í slaginn.
Þjóðverjar settu tvö met
Þýskaland vann argentínu í opnunarleik
Hm kvenna í knattspyrnu 11–0. tvö met
féllu í leiknum og
tvö önnur voru
jöfnuð. Þetta var
stærsti sigur í sögu
lokakeppninnar í
Hm kvenna, aldrei
áður hefur
leikmaður skorað
tvö sjálfsmörk í leik
en Vanina Correa
markvörður
argentínu skoraði tvö sjálfsmörk í
leiknum, tveir leikmenn Þjóðverja
skoruðu þrennu í leiknum sem aðeins
einu sinni hefur gerst áður og birgit
prinz skoraði sitt tólfta mark í
lokakeppni Hm sem er jafn mikið og
michelle akers hefur gert.
skotar æfir út í mikoLiunas
skotar eru allt annað en sáttir við
litháíska leikmanninn saulius
mikoliunas.
Leikmaðurinn lét
sig falla með
tilþrifum í leik við
skota á laugardag-
inn og dómarinn
dæmdi vítaspyrnu.
mikoliunas er
leikmaður skoska
liðsins Hearts og á
ekki von á góðu frá
knattspyrnuunnendum í skotlandi.
„Vonandi munu stuðningsmenn Hearts
ekki gera honum lífið leitt. miko er
heppinn að skotar unnu leikinn. svona
er fótboltinn, þegar þú ert á vellinum
hugsar þú ekkert út í svona hluti,“ segir
edgaras jankauskas, samherji
mikoliunas í litháíska landsliðinu.
sörensen tiL í að fara
danski markvörðurinn thomas
sörensen, leikmaður aston Villa, segist
vera tilbúinn að
taka á sig
launalækkun hjá
öðru liði til að fá að
spila reglulega í
byrjunarliði. aston
Villa fékk scott Car-
son að láni frá
Liverpool í upphafi
leiktíðar og hann
hefur haldið
sörensen út úr liðinu. „Fyrir mér er það
mikilvægasta að fá að spila. Ég mun
aldrei velja hærri laun fram yfir það. ef
ég spila ekki meira fyrir aston Villa er ég
til í að taka á mig launalækkun til að
finna rétta félagið,“ segir sörensen.
BaLLack ósáttur
michael ballack er ósáttur við að hafa
ekki verið valinn í 25 manna leikmanna-
hóp Chelsea í
meistaradeild
evrópu.
„auðvitað er ég
vonsvikinn að
vera ekki í
hópnum. Ég vil
byrja að spila
eins fljótt og
auðið er en ég
get ekki æft og
spilað eins og er.
Ég skil í rauninni ekki af hverju Chelsea
tók þessa ákvörðun, sem leitt hefur til
sögusagna,“ segir ballack. Hann fór í
aðgerð á ökkla í apríl. ballack fékk
heldur ekki leyfi frá Chelsea til að taka
þátt í auglýsingu fyrir adidas og Oliver
bierhoff, fyrrverandi landsliðsmaður
Þjóðverja, er ekki sáttur við þá meðferð
sem ballack fær hjá Chelsea. „svona
kemur þú ekki fram við þýskan
landsliðsmann, sérstaklega ekki fyrirliða
liðsins,“ segir bierhoff.
Ísland mætir Norður-Írlandi í undankeppni EM 2008 á morgun. Ísland vann fyrri leik
liðanna 3–0 ytra. Leikmenn Íslands eru á því að auðvelt verði að sýna sömu baráttu og
liðið sýndi gegn Spánverjum.
ÞURFUM
AÐ SÝNA
STÖÐUGLEIKA
Það er skammt stórra högga á milli
hjá íslenska karlalandsliðinu í knatt-
spyrnu. Eftir magnaðan leik gegn
Spánverjum, þar sem íslenska liðið
var nálægt því að leggja það spænska
að velli, undirbýr liðið sig nú fyrir leik
gegn Norður-Írlandi á morgun.
Baráttan var svo sannarlega fyrir
hendi í leiknum gegn Spánverjum og
eðlilega var þreyta í mannskapnum
eftir þann leik. Liðið fékk frí á sunnu-
daginn og notaði daginn til að ná úr
sér þreytunni. Íslenska landsliðið
æfði í rigningunni á Laugardalsvelli í
gær og það var létt yfir mönnum.
Hermann Hreiðarsson var fyrir-
liði Íslands gegn Spánverjum. Hann
sagði að sér hefði liðið eins og eftir
tapleik á laugardaginn og því væri
ekki erfitt að gíra sig upp fyrir leikinn
gegn Norður-Írum.
„Við vorum eiginlega negldir nið-
ur á jörðina í lok leiks (gegn Spán-
verjum). Manni leið eiginlega eins
að maður hefði tapað. Það góða við
þetta var að liðið spilaði vel og það
var kraftur í öllu sem við gerðum.
Þetta var gaman, það var gaman
fyrir áhorfendur og það var gaman
að spila fyrir áhorfendur. Þannig að
þetta var bara stórt skref,“ sagði Her-
mann í samtali við DV í gær.
Hann sagði að það væri mikilvægt
að liðið sýndi stöðugleika og næði að
mæta með sama hugarfar í leikinn
gegn Norður-Írum.
„Við höfum átt góða leiki hér og
þar en við þurfum að sýna stöðug-
leika. Það er hægt að tapa leikjum en
tapa með reisn eða ná jafntefli. Það
er næsta skref hjá okkur að mæta
svona dýrvitlausir í hvern einasta
leik,“ sagði Hermann.
Jóhannes Karl Guðjónsson átti stór-
leik gegn Spánverjum. Hann fékk gult
spjald í þeim leik og verður í leikbanni
þegar Ísland mætir Norður-Írum. Her-
mann sagði að það væri eitthvað sem
þýddi ekkert að velta sér upp úr.
„Það kemur alltaf maður í manns
stað. Það er eitthvað sem við ráðum
ekkert við. Við erum að peppa okkur
upp í næsta leik og gíra inn í okkur
sama kraft, svo við verðum klárir í að
skila sömu vinnu,“ sagði Hermann.
Ísland vann fyrri leikinn gegn
Norður-Írum ytra 3–0. Hermann
sagði að það hjálpaði íslenska lið-
inu ekkert í leiknum á morgun. „Þeir
(Norður-Írar) eru búnir að ná lengra
síðan þá en við. En á móti kemur að
síðustu tveir leikir hafa verið jákvæð-
ir fyrir okkur og það er eitthvað sem
við ætlum að byggja á, sterkur varn-
arleikur og spila þetta saman. Þetta
gengur ekkert öðruvísi. Þannig erum
við bestir. Við verðum að stimpla inn
hjá okkur að spila á okkar styrkleika,“
sagði Hermann.
við vælum ekki
Grétar Rafn Steinsson sagði að
undirbúningur fyrir leikinn gegn
Norður-Írum gengi vel og að það
væri auðvelt að stilla sig inn á leikinn
gegn Norður-Írum.
„Fyrir áhorfendur var Spánar-
leikurinn stærri en fyrir okkur er
leikurinn gegn Norður-Írum leik-
ur til að sýna hvað við getum. Hart
mætir hörðu í þessum leik. Þeir töp-
uðu úti og koma virkilega grimmir
og þjálfarinn er búinn að gefa út að
hann muni eingöngu taka með sér
leikmenn sem eru tilbúnir að gefa
sig í verkefnið. Þetta verður mikill
baráttuleikur, veðrið verður ekkert
spes og völlurinn blautur. Það verður
bara nákvæmlega sama uppi á ten-
ingnum og vonandi koma áhorfend-
ur með okkur aftur í þennan leik,“
sagði Grétar Rafn.
„Það verður mjög auðvelt að gíra
sig upp. Við fáum tvo daga í að jafna
okkur eftir leikinn gegn Spánverjum.
Það er mjög erfitt að gefa allt sem þú
átt og svo stuttu síðar aftur. En þetta
eru leikmenn sem eru vanir miklu
álagi þannig að þetta verður ekkert
mál,“ sagði Grétar Rafn.
Hann óttast ekki að íslenska liðið
muni vanmeta Norður-Íra, þrátt fyrir
sannfærandi sigur í Norður-Írlandi á
síðasta ári.
„Það er ekki hægt að vanmeta
neitt lið í riðlinum. Við erum bún-
ir að sjá það að það er ekki hægt að
fara rólega á móti neinum andstæð-
ingi. Við eigum eftir að heyra hvaða
taktík við notum og við eigum eftir að
greina Norður-Írana úr síðasta leik.
Þetta verður bara hörkuleikur og það
verður allt gefið,“ sagði Grétar Rafn.
Hann lenti í samstuði við Iker
Casillas, markvörð Spánar, í síðasta
leik og þurfti aðhlynningu. Grétar
Rafn segir þó að það hafi ekki verið
alvarlegt og að hann væri klár fyrir
leikinn á morgun. „Það er bara smá
vöðvaþreyta en við vælum ekki þeg-
ar við fáum tækifæri til að spila svona
leiki. Gefum allt í þetta,“ sagði Grétar
Rafn að lokum.
kallar á stöðugleika Hermann
Hreiðarsson segir að næsta skref hjá
landsliðinu sé að mæta dýrvitlaust í
hvern einasta leik.
dagur sveinn dagBjartsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
eldmóður Íslenska liðið
sýndi mikla baráttu gegn
spánverjum og það þarf
sama eldmóð til að leggja
Norður-Íra að velli.
Það er sjaldan skortur á fjaðra-
foki þegar enska landsliðið er annars
vegar. England vann Ísrael á laugar-
daginn og á morgun koma Rússar í
heimsókn. England er í þriðja sæti
E-riðils með sautján stig, stigi á eftir
Rússum sem eru í öðru sæti.
Hollendingurinn Guus Hiddink
er þjálfari Rússa. Hann hefur farið
mikinn í enskum miðlum að undan-
förnu og meðal annars sagt að Rúss-
ar og Króatar séu líklegustu liðin til
að fara upp úr E-riðli.
„Ég væri ekki mjög góður í mínu
starfi ef ég hefði ekki trú á að Rúss-
ar kæmust áfram. Króatía er efst í
riðlinum og þeir tapa ekki mörgum
stigum. Allir þurfa að spila við alla
og þetta er mjög erfitt. Auðvitað vil
ég komst áfram með Rússa og ég
vona að England komist líka áfram,
af því að það er gott að hafa England
í keppninni. En ef við horfum raun-
sætt á stöðuna verður að taka tillit til
þess að Króatía er með reynslumikið
lið,“ segir Hiddink.
Terry Venables, aðstoðarþjálfari
enska landsliðsins, gefur ekki mikið
fyrir orð Hiddinks og segir að hugar-
leikur þjálfarans muni ekki hafa áhrif
á leik enska liðsins.
„Hiddink hefur sagt að England
skorti ástríðu, þori ekki að spila og
muni ekki komast áfram og í sömu
andrá talar hann um að Rússland sé
enn í mótun. Einnig kvartar hann yfir
að þurfa að nota þriðja markvörð sinn.
„Þegar þú hefur verið í brans-
anum eins lengi og hann og ég, þá
kanntu öll brögðin og hugarleikina.
Ég kaupi þetta ekki og loka eyrunum
fyrir þessu. Þetta er barnalegt,“ segir
Venables.
Venables var landsliðsþjálfari
Englands frá 1993 til 1996. Hann var
þjálfari landsliðsins sem vann Hol-
land 4–1 á EM 1996. Hiddink var þá
þjálfari Hollendinga.
„Á EM ‘96 var Hiddink þjálfari
Hollands á sama tíma og ég þjálfaði
England og við unnum þá 4–1 í frá-
bærum leik á Wembley. Hann gerði
ýmsa hluti, reyndar með allt öðruvísi
leikmenn, sem hann gæti reynt aft-
ur,“ segir Venables.
dagur@dv.is
Spennan er farin að magnast fyrir leik Englands og Rússlands í undankeppni EM:
Venables segir Hiddink barnalegan
Lumar á brögðum
terry Venables er
eldri en tvævetur í
bransanum og
segist taka lítið mark
á orðum Hiddinks.