Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Page 17
DV Sport Þriðjudagur 11. september 2007 17
ÍÞRÓTTAMOLAR
Helgi Már í Kr
Helgi már magnússon, landsliðsmaður í
körfubolta, hefur skrifað undir samning
við Íslandsmeist-
ara Kr. Helgi már
lék áður með
svissneska liðinu
boncourt. Í
samningi Helga
segir til um að
hann megi fara frá
Kr ef hann fær
tilboð um að fara
aftur út í
atvinnumennsku. Kr-ingar ætla sér
augljóslega stóra hluti í vetur því fyrr í
sumar var gengið frá samningi við
Ágúst björgvinsson, sem verður
aðstoðarmaður benedikts guðmunds-
son þjálfara á hliðarlínunni.
Neville Klár fyrir
CHelsea-leiKiNN?
gary Neville, leikmaður manchester
united, vonast til að verða klár í slaginn
þegar manchester united mætir
Chelsea 23. september. búist var við að
Neville jafnaði sig fyrr en meiðslin tóku
sig upp aftur fyrir skömmu. „Ég reyndi
líklega of mikið á mig, ég var mjög
spenntur yfir því að koma aftur. Vonandi
verð ég klár í næstu viku og vonandi get
ég spilað innan tveggja vikna. Ég verð
líklega ekki klár í leikinn gegn everton,
af því að ég hef verið það lengi frá, en
líklega verð ég klár eftir þann leik,“ segir
Neville.
Powell setur Nýtt HeiMsMet
jamaíski hlaupagikkurinn asafa powell
bætti heimsmetið í 100 metra hlaupi
um þrjú sekúndu-
brot á frjálsíþrótta-
móti á Ítalíu. powell
hljóp á tímanum
9,74 sekúndum.
Hann átti sjálfur
gamla metið, 9,77.
„eftir heimsmeist-
aramótið, þar sem
ég gerði nokkur
mistök, vann ég
með þjálfaranum mínum í að
endurheimta mitt besta form. Nú er ég
kominn aftur! Ég gerði það sem til þurfti
á mjög hraðri og mjúkri braut. Ítalía er
mitt annað heimili,“ sagði powell,
skömmu eftir að hafa slegið metið.
ÞURFUM
AÐ SÝNA
STÖÐUGLEIKA
Norður-Írar eiga erfiða leiki eftir í riðlinum og þurfa nauðsynlega á sigri að halda gegn
Íslandi á morgun. Chris Baird, fyrirliði Norður-Íra, óttast eið smára.
Norður-Írar eru vongóðir um þrjú
stig gegn Íslandi á morgun, þrátt fyr-
ir að hafa tapað fyrir Lettum á laug-
ardaginn. Norður-Írar eiga fjóra leiki
eftir, gegn Íslandi, Svíþjóð og Spáni á
útivelli og Danmörku á heimavelli.
Chris Baird, leikmaður Fulham
og fyrirliði Norður-Írlands, segir að
markmið Norður-Íra sé að vinna
leikinn gegn Íslandi á morgun. „Við
erum vonsviknir með úrslitin á laug-
ardaginn. Við bjuggumst við að
vinna en það tókst ekki. Við verðum
að vinna þennan leik. Við höfum enn
trú á því að komst upp úr riðlinum og
vonandi tekst það.
Ef við náum þremur stig á mið-
vikudaginn erum við skrefi nær
því að komst í úrslitin. Það er okk-
ar markmið og við erum enn í öðru
sæti. Við erum enn með þetta í okkar
höndum,“ sagði Baird.
Ísland vann Norður-Írland í fyrri
leik liðanna. Þá var Lawrie Sanchez
þjálfari liðsins. Hann er nú hættur
með liðið og hefur tekið við Fulham.
Nigel Worthington er núverandi
þjálfari Norður-Íra og Baird segir að
lítið hafi breyst við ráðningu hans.
„Hann vill að við gerum það rétta,
spila fast og spila okkar leik. Við vit-
um hvað við þurfum að gera. Við
þurfum að spila betur en í síðasta
leik og vonandi gengur það,“ sagði
Baird og bætti við að liðið mætti ekki
við fleiri mistökum, eins og áttu sér
stað í leiknum gegn Lettum.
„Við eigum Svía eftir á útivelli,
Dani á heimavelli og Spánverja á úti-
velli. Þetta eru allt erfiðir leikir og við
þurfum þrjú stig núna,“ sagði Baird,
sem var ánægður með úrslitin úr leik
Íslands og Spánar og Svía og Dana.
„Við vorum himinlifandi. Úrslit-
in voru okkur í hag. Við gátum ekki
beðið um neitt meira. Við gætum
verið í efsta sæti núna, en svo er ekki.
Við erum enn í öðru sæti og þetta er
enn í okkar höndum,“ sagði Baird.
Hann býst við erfiðum leik gegn
Íslandi. „Við vitum að þeir (Íslend-
ingar) eru með stórt og sterkt lið lík-
amlega. Ef við getum staðið í þeim að
því leyti og spilað okkar leik, þá er ég
viss um að við getum unnið,“ sagði
Baird og bætti við að hann óttaðist
Eið Smára Guðjohnsen.
„Hann var okkur erfiður í fyrsta
leiknum. Hann er frábær leikmaður.
Ef hann er á bekknum þá er hann á
bekknum og ef hann byrjar inn á þá
byrjar hann inn á. Við verðum bara
að spila okkar leik og vonandi náum
við að halda honum niðri og vinna
leikinn fyrir stuðningsmenn okkar.
Við þurfum að vinna leikinn til að
halda í við Svía,“ sagði Baird.
enn í okkar höndum
Warren Feeney, leikmaður
Swansea og Norður-Írlands, sagði
að leikmenn landsliðsins hefðu ver-
ið ósáttir við sjálfa sig eftir tapið gegn
Lettum. „Það er alltaf leiðinlegt að
tapa. Við erum álíka vonsviknir yfir
frammistöðunni og við erum með
úrslitin. Þetta var stór leikur og við
ætluðum að ná sex stigum úr þess-
um leikjum. Það næst ekki en svona
er þetta og við einbeitum okkur að
Íslandi núna,“ sagði Feeney.
Hann sagði að það væri mik-
ið vatn runnið til sjávar frá því að
Norður-Írland tapaði fyrir Íslandi
á heimavelli. „Það var fyrsti leikur-
inn og við töpuðum. En við höfum
brugðist vel við. Þetta gekk ekki upp
geng Lettum og það vill enginn tapa.
Það eina sem við getum gert núna
er að fá þrjú stig gegn Íslandi. Önn-
ur úrslit á laugardaginn voru okkur í
hag og þetta er enn í okkar höndum,“
sagði Feeney.
Feeney er sóknarmaður en hefur
enn ekki skorað mark í undankeppn-
inni. David Healy er aðalmarkaskor-
ari Norður-Íra og Feeney sagðist
finna fyrir ákveðinni pressu til að
skora mark.
„Það eru allir undir pressu. Það er
pressa á markverðinum og í gegnum
allt liðið. David er aðalmaðurinn og
hefur séð um að skora mörkin. Það
er pressa á öllum en það er hluti af
leiknum,“ sagði Feeney, sem hefur
ekki byrjað inn á í landsleik frá því
gegn Svíum 28. mars.
„Ég fer ekkert í felur með það að
ég vil byrja inn á. Niger (Worthing-
ton) hefur sínar eigin hugmundir.
Vonandi byrja ég inn á á miðviku-
daginn. Ég vil sýna honum hvað ég
get og ég þarf að byrja inn á til að
gera það,“ sagði Feeney.
Hann bætti við að þrátt fyrir Norð-
ur-Írland myndi tapa gegn Íslandi
væru möguleikar liðsins á að komast
á EM 2008 ekki úr sögunni.
„Margir telja svo vera en ef við
horfum aftur til laugardagsins sögðu
margir að við yrðum að ná sex stig-
um úr þessum leikjum. Við getum
enn náð þremur og samt átt mögu-
leika. Við þurfum að vinna alla okkar
heimaleiki og sjá svo til hvað við get-
um gert á útivelli. Við ætlum okkur
að vinna og það er góður möguleiki.
Ég myndi ekki segja að möguleikinn
væri úr sögunni ef við töpum, því
það getur allt gerst í fótbolta,“ sagði
Feeney.
dagur sveiNN dagBjartssoN
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is ÞURFUM
ÞRJÚ STIG
leikmaður fulham Norður-Írar eru
með nokkra leikmenn sem spila í ensku
úrvalsdeildinni. einn þeirra er Chris
baird, fyrirliði liðsins og leikmaður
Fulham.
Ætla sér þrjú stig
Warren Feeney, leikmaður
swansea, segir að
möguleikar Norður-Íra séu
ekki úr sögunni ef liðið
tapar en liðið ætli sér samt
þrjú stig.
Svo gæti farið að David Healy
verði ekki með Norður-Írum gegn
Íslandi á morgun. Hann meiddist á
æfingu í gær og haltraði út af. Healy
hefur skorað ellefu af þrettán mörk-
um Norður-Íra í undankeppni EM.
Healy fékk spark í kálfann og
hætti á æfingunni, öryggisins vegna.
Ástand hans verður metið í dag og
á morgun. Hans yrði sárt saknað úr
liði Norður-Íra. Hann hefur skorað
ellefu mörk í undankeppninni hing-
að til og 31 mark í 58 landsleikjum
samtals.
Healy er ekki eini leikmaðurinn
sem á við meiðsli að stríða. Keith
Gillespie, leikmaður Sheffield Un-
ited, og Jonny Evans, leikmaður
Manchester United, æfðu ekki með
liðinu í gær vegna meiðsla. Óvíst
er með þátttöku þeirra í leiknum á
morgun.
Þrátt fyrir tap gegn Lettlandi í
síðasta leik hefur Nigel Worthington
reynt að taka það jákvæða með sér
í leikinn gegn Íslendingum. Norð-
ur-Írar eru enn í öðru sæti riðilsins,
þökk sé úrslitum í öðrum leikjum
um síðustu helgi.
„Þetta verður mjög erfiður leik-
ur og við verðum að nálgast hann á
réttan hátt. Við verðum að ná góð-
um úrslitum og jafna okkur á áfall-
inu gegn Lettum,“ segir Worthing-
ton.
Chris Brunt, leikmaður W.B.A.,
er sannfærður um að Norður-Írar
nái að jafna sig eftir leikinn gegn
Lettlandi. „Þessi leikur gegn Íslandi
er mjög mikilvægur fyrir okkur. Við
verðum að gleyma leiknum gegn
Lettum og einbeita okkur að því
sem við gerum best.
Allir bjuggust við að við myndum
vinna en vonandi var þetta bara
einn af þessum leikjum þar sem ekk-
ert gengur upp. Það er gott að eiga
annan leik fljótlega á eftir þar sem
það gefur okkur tækifæri til að koma
hlutunum á hreint,“ segir Brunt.
dagur@dv.is
Fjórir leikmenn Norður-Íra eiga við meiðsli að stríða fyrir leikinn gegn Íslandi:
Óvíst hvort healy verði með
verður hann með? david Healy meiddist á æfingu í gær og óvíst er hvort hann
verður með gegn Íslendingum á morgun.
í dag
07:00 CoCa-Cola CHaMPioNsHiP
16:20 PreMier league
blaCKburN - maN. City
eNdursýNiNg Á leiK blaCKburN og
maNCHester City sem Fram Fór um
HelgiNa.
18:00 PreMier league world
Heimur úrValsdeildariNNar
Nýr ÞÁttur Þar sem eNsKa úrVals-
deildiN er sKoðuð FrÁ ýmsum
óVæNtum Hliðum.
18:30 CoCa Cola MörKiN
Farið yFir öll mörKiN og Helstu
atViKiN Í leiKjum sÍðustu umFerð-
ar Í CoCa Cola deildiNNi.
19:00 PreMier league
arseNal - portsmoutH
útseNdiNg FrÁ leiK arseNal og
portsmoutH Á emirates-VelliNum.
20:40 PreMier league
astoN Villa - CHelsea
leiKur astoN Villa og CHelsea FrÁ
ÞVÍ um sÍðustu Helgi eNdursýNd-
ur.
22:20 eNglisH PreMier league
eNsKu mörKiN
Ný og Hraðari útgÁFa aF Þessum
ViNsæla Þætti Þar sem öll mörKiN
og Helstu atViK umFerðariNNar
eru sýNd FrÁ öllum mögulegum
sjóNarHorNum.