Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Page 22
Svarthöfði kann að meta kven-lega fegurð en er þó ekkert sér-staklega mikið fyrir súludans
þar sem iðandi nektin er aðalatriði.
Þessi afstaða til nektar er megin-
ástæða þess að
Svarthöfði hefur
ekki lagt leið
sína á nektar-
staðinn Gold-
finger í Kópa-
vogi fremur en
Bohem eða aðra
staði sem eru klám-
sjúkum körlum líkn og fró frá ísköld-
um veruleika þeirra eigin heimila.
Og af því að Svarthöfði er frjálslynd-
ur styður hann tilvist þessara staða á
meðan viðskiptin eru á heiðarlegum
grunni.
Karlar, sem þurfa nauðsyn-lega að slaka af frá amstri dagsins og upplifa skilyrðis-
lausa nekt, verða að eiga sinn stað.
Með því að njóta nektar gegn gjaldi
losa þeir um spennu. Við-
búið er að ófull-
nægðir karlar
sem hvergi fá
þrá sinni eftir
glápi fullnægt
verði vitlausir
heimafyrir. Það
getur leitt til of-
beldis og ófyrir-
sjáanlegra harmleikja. Og það er
einmitt þetta sem bæjarstjórinn
í Kópavogi benti á fyrir nokkrum
árum þegar hann
var að tryggja
súlustaðnum
Goldfinger
starfsleyfi í
bænum sín-
um. Hann
vitnaði til er-
lendra rann-
sókna sem leiddu
í ljós að þar sem nektardans var
bannaður braust fram ofbeldi og
vændi á götum úti. Það er kom-
ið á daginn að bæjarstjórinn, sem
sjálfur nýtti sér slökunarmöguleika
Goldfinger, hafði rétt fyrir sér.
Engin dæmi eru um gleðikon-ur á götum Kópavogs seinustu árin og ofbeldi þar er fáséð. Allt
annað er uppi á teningnum í miðborg
Reykjavíkur þar sem ofbeldi er svo al-
gengt að kalla þarf til sérsveitina viku-
lega til að halda uppi reglu á sama
tíma og rósemin ein ríkir í Kópavogi.
Einhverjar stúlkur sem unnu á Gold-
finger hafa vogað sér að halda því
fram í viðtölum að vændi og mansal
hafi átt sér stað þar. Þetta er ótrúleg
ósvífni og eðlilegt að veitingamann-
inum sé svo brugðið að hann hafi
ákveðið að draga stúlkurnar og fjöl-
miðla fyrir dómstóla. En laun heims-
ins eru gjarnan vanþakklæti.
Óvandaðir fjölmiðlar gera sér
enga grein fyrir
því að Geiri
á Goldfinger
hefur útrýmt
vændi af götum
Kópavogs með því að
leggja til griðastað fyrir karla
með sterka kynhvöt. Eðlilegra hefði
verið að Geiri fengi friðarverðlaun
Kópavogs fyrir mannbætandi starf í
þágu samfélagsins alls. Allavega er
lágmarkskrafa að hann verði gerður
að heiðursborgara.
Þriðjudagur 11. september 200722 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm.
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson
Umbrot: dV. Prentvinnsla: prentsmiðja morgunblaðsins.
Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðalnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
Áskriftarsími 512 7080, auglýsingar 512 70 40.
Súlur reiðinnar
svarthöfði
Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Miðborgin má ekki vera þannig að þar geti ekki verið eðlilegt mannlíf.
Burt með búllurnar
Leiðari
Það er engin lausn að óeirðalögga með sérlega langar kylfur haldi aftur af versta lýðnum í miðborg Reykjavíkur um helg-ar. Það verður að losa miðborgina við
allt þetta rugl, allt ofbeldið, ólætin, ringulreið-
ina, dónaskapinn, fantaskapinn og allt hitt sem
fylgir skrílslátunum sem óeirðalögreglan er að
reyna að draga úr. Miðborg Reykjavíkur er meira
virði en svo að hægt sé að sættast við að hún sé
í herkví skríls að minnsta kosti tvo sólarhringa
í viku. Aðrir Reykvíkingar og aðrir landsmenn
eiga skilið að geta gengið um miðborgina þeg-
ar þeim hentar og þegar þeir vilja. Það á ekki að
þurfa að gera það undir mögulegri vernd óeirða-
lögreglu.
Það þarf að koma búllunum burt úr miðborg-
inni og þeir veitingastaðir sem verða í miðborginni verða að fá
skilyrt vínveitingaleyfi, þannig að þeir megi ekki selja áfengi eft-
ir miðnætti. Að sama skapi verða veitingastaðirnir að sjá til þess
að reykingafólk standi ekki á gangstéttum við reykingar og jafn-
vel mígi þar og æli. Slíkt er víst alsiða núna. Frelsi eins endar þar
sem frelsi annars skerðist. Þannig verður þetta að vera og það
er ekki hægt að sættast á að undir heitinu skemmtanalíf sé hægt
að leggja miðborg höfuðborgar landsins undir
í því ólífi sem óeirðalögreglan á nú að reyna að
berjast gegn. Þetta er svo fáránleg staða að það
verður að koma til framtíðarlausn, ekki með her
eða óeirðalögreglu, heldur með heilbrigðari og
mannsæmandi hegðan borgaranna. Fólk hlýtur
að geta sæst á að drekka og dansa í húsum sem
eru annars staðar en í miðborginni. Og ef ekki,
þá verður bara svo að vera, en umfram allt, burt
með búllurnar þannig að í miðborginni get vaxið
og dafnað eðlilegt borgarlíf.
Ekki má líta framhjá því að lögreglan er að gera
ágæta hluti. Það er gott að taka á mestu dónun-
um og rustunum. En það er ekki á færi nokkurs
manns, ekki hefðbundinnar lögreglu, ekki á færi
óeirðalögreglu og ekki einu sinni hæfustu herja
að koma í veg fyrir öll þau skrílslæti sem viðgangast í miðborg-
inni. Það er migið og ælt um allt, glös eru brotin, fólk er lamið og
svívirt og í skjóli fjölmennis eru framdir alvarlegri glæpir. Það
sýna mörg og sár dæmi.
Borgaryfirvöld verða að taka á þessum vanda og leysa hann.
Miðborgin má ekki vera þannig að þar geti ekki verið eðlilegt
mannlíf.
DómstóLL götunnar
Hvernig fer landsleikurinn við norður-Íra?
„Ég held að norður-írar vinni 2–1 á
móti íslandi. Ég fylgdist með leiknum á
laugardaginn með öðru auganu.
strákarnir spiluðu ágætlega.“
Signý Guðmundsdóttir,
78 ára ellilífeyrisþegi og húsmóðir
„Ég fylgist lítið með fótbolta. Ég frétti
bara hvernig leikurinn á laugardaginn
fór. Við gerum líklega bara aftur
jafntefli í næsta leik.“
Helgi Jón Magnússon,
34 ára eldhússtarfsmaður
„Ég horfði á allan leikinn gegn
spánverjunum. strákarnir voru alveg
æðislegir. Ég var ánægð með þá. Ég er
ekki viss um hversu sterkir írarnir eru
en ég vona að íslendingar vinni 2–0.“
Auður Axelsdóttir,
67 ára fótaaðgerðafræðingur
„Ég fylgist nú ekki mikið með
boltanum. Við gerðum auðvitað
jafntefli á laugardaginn. Ætli það verði
ekki jafntefli aftur. 1–1.“
Stefán Jóhannesson,
41 árs rafvirki
sanDkorn
n Meðal jólabóka sem eru í
farvatninu er bók Guðjóns
Friðrikssonar rithöfundar um
Ólaf Ragnar Grímsson, forseta
Íslands, þar sem farið er yfir
embættis-
feril hans.
Hermt er að
í bókinni láti
forsetinn
sprengjur
falla á bæði
borð. Þar má
reikna með
að Davíð
Oddsson, fjandvinur forsetans,
fái á baukinn. En bókin og yfir-
vofandi sprengjur vekja líka upp
vangaveltur um að forsetinn hafi
ákveðið að láta af embætti í vor
og þetta sé svanasöngur hans.
n Útvarpskonan Arnþrúð-
ur Karlsdóttir er í fullkomnu
uppnámi vegna brotthvarfs
Jóhanns Haukssonar á Sögu
en kappinn
hefur gengið
til liðs við
dv.is. Svo er
að sjá sem
hún kenni
DV um að
hafa rænt Jó-
hanni frá sér
því drjúgur
útsendingartími fer í að fjarg-
viðrast út í blaðið og starfsmenn
þess. Arnþrúður gerðist meira
að segja í herferð sinni sérlegur
fulltrúi Guðmundar Jónssonar
í Byrginu sem var til umfjöllun-
ar í helgarblaði DV á dögunum.
Svo einkennilegt sem það var,
þá taldi útvarpsstjórinn DV hafa
farið hamförum í málinu.
n Óli Tynes fréttamaður á
visir.is hefur látið að sér kveða
að undanförnu og virðist hafa
fengið fullkomið frelsi hjá ný-
ráðnum ritstjóra Vísis, Óskari
Hrafni Þorvaldssyni, til þess
að skrifa
fréttir eftir
eigin höfði. Í
umsögn um
Óla á visir.is
segir með-
al annars:
„Lyklaborð-
ið er sem
deig í færum
höndum Óla, sem skrifar ekki
bara lipran texta heldur er fær-
asti fyrirsagnasmiður lands-
ins.“ Hér á eftir eru nokkrar af
fyrirsögnum á fréttum sem Óli
Tynes hefur skrifað og birtar
hafa verið á visir.is á síðastliðn-
um mánuði:
Völdu blondínuna með stærstu
brjóstin
Graðir kommar
Danir halda framhjá í bunkum
Sprengdi hjákonuna í loft upp
Ég er svo ánægður að vera hérna
uppá konunni minni
Bróðirinn bollaði kærustuna
Hommarnir elska Putin
Dýrt að vingsa túttunum
Velja flottasta bossa í heimi
Rangt hús, rangt rúm og röng
kona
Stóðlífsfyrirtæki velta milljörð-
um
Næsta... úr tuskunum
Dýr dráttur
Ég er á lausu
Komdu þér út kerling
Kátar konur í Kaupmannahöfn
Banna samfarir á timburfleka
í Kópavogi