Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1957, Blaðsíða 52
Sinfóníuhl jómsveitin
Eftir tveggja mánaða sumarfrí, er
Sinfóníuhljómsýeit Islands að hefja
vetrarstarfsemi sína. Þessi stofnun,
sem svo mjög hefur átt erfitt upp-
dráttar og fleiri hafa fjandskapazt við
en venjulegt er, jafnvel á þessu úlfúð-
arinnar föðurlandi, býst til mikilla
átaka á komandi mánuðnm. Undirrit-
aður hitti framkvæmdastjóra hennar,
Jón Þórarinsson, að máli nú fyrir
skömmu. Jón er landskunnur tónlist-
armaður, sem vinnur ötullega að út-
breiðingu tónlistar jafnt sem kennari
við tónlistarskólann í Reykjavík og
fyrirlesari í útvarpi. Er skemmst að
minnast ei'inda þeirra, er hann flutti
um nútíma tónlist í útvarpið vetur
leið og mikilla vinsælda nutu. Tón-
verk hans eru einnig mjög vel þekkt
og sum reyndar á allra vörum svo
sem Fuglinn í fjörunni og Vöggulag á
hörpu og fleiri einsöngslög. Stærri
verk hans, klarinettsónata, pianoson-
ata og lagaflokkurinn „Of love and
death“ fyrir bariton og hljómsveit,
cru reyndar síður kunn, enda snöggt-
um óáheyrilegri í fyrstu. Þau standa
þó í fremstu röð verka af þessu tagi,
hérlendis.
Ég spyr Jón, hvað hljómsveitin
hafi starfað lengi.
— SinfóníuhljómsveiLin hefur starf-
að í þeirri mynd, sem hún er nú, síðan
1950, eða rösk sex ár. Óöruggur fjár-
hagur hefur að verulegu leyti staðið
henni fyrir þrifum oft á tíðum, en
Jón Þórarinsson
50
DAGSKRÁ