Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 2
„Amma birtist mér á hverri nóttu í
draumi og ég hrökk upp í hvert skipti.
Þetta varð til þess að ég var meira og
minna ósofin í vinnunni. Draumarn-
ir voru ekki slæmir en þó fann ég að
eitthvað hvíldi á gömlu konunni, en
ég vissi ekki hvað,“ segir Stefanía sem
starfar við klippingu og hárgreiðslu
þar sem athyglin þarf að vera í full-
komnu lagi. Eftir að amma hennar
hafði birst í draumi nokkrar nætur
í röð var Stefanía orðin áhyggjufull
og hugsi. Stefanía hefur verið ber-
dreymin og hana dreymdi árið 2003
fyrir dauða ömmu sinnar. „Draum-
urinn var þannig að ég hitti afa, sem
hafði dáið nokkrum árum fyrr, fyr-
ir utan hús. Hann sagðist vera kom-
inn að sækja ömmu. Á þeim tíma
var ekkert sem benti til þess að hún
ætti stutt eftir en viku síðar var hún
dáin.“
Stefanía segir að amma hennar
hafi verið kona sem vildi umfram
allt hafa reglu á öllum sínum hlut-
um og hún hafi ekki mátt vamm sitt
vita. „Hún vildi helst að allt væri
fullkomið á heimilinu og þoldi ekki
óreiðu.“
Þegar draumarnir byrjuðu hafði
Stefanía aldrei komið að leiði ömmu
sinnar en hún er jarðsett í Gufunes-
kirkjugarði við hlið eiginmanns síns.
Stefanía var að aka um Grafarvog
á sunnudegi nú í septemberbyrjun
þegar hún fékk skyndilega þá hug-
dettu að fara að leiði ömmu sinnar.
En þegar hún kom akandi inn í garð-
inn kom babb í bátinn. Þar eru ótal
leiði og Stefanía vissi ekki hvar leiði
ömmu hennar væri að finna.
„Ég hafði ekki komið þangað frá
því skömmu eftir að afi dó og hafði
enga hugmynd um hvar ég ætti að
leita. Ég ók inn eina götuna á milli
leiða og stöðvaði bílinn til að hugsa
mitt ráð. Þegar ég leit út um hliðar-
rúðuna rak mig í rogastans. Ég var
við leiði ömmu og aðkoman var ekki
góð. Legsteinninn hennar lá á hlið-
inni.“
Stefanía sá strax að þarna var
komin skýringin á draumförunum.
Hún reyndi að rétta legstein ömmu
sinnar við en hann reyndist of þung-
ur.
„Ég hringdi þá í pabba og sagði
honum hvernig komið væri. Hann
sagðist myndu rétta legsteininn við.“
Stefanía var þess fullviss að amma
hennar hefði birst henni í draumi til
að láta vita af legsteininum. Það kom
henni því mjög á óvart að nóttina
eftir birtist amma hennar enn einu
sinni í draumi og Stefanía hrökk
upp af værum blundi. Þarnæstu nótt
gerðist það sama.
„Þá hringdi ég í pabba og spurði
hvort ekki væri búið að rétta leg-
steininn við. Svarið var að það væri
enn ekki búið en hann myndi ganga í
málið og það yrði gert. Legsteininum
var síðan komið á réttan kjöl. Eftir
það hefur mig ekki dreymt ömmu og
ég hef sofið eins og engill,“ segir Stef-
anía, guðs lifandi fegin því að þurfa
ekki lengur að vera illa sofin í vinn-
unni.
Þetta helst
föstudagur 5. október 20072 Fréttir DV
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
DV hefur sagt frá því að
Reykjavíkurborg er látin
borga skemmtiferðir fyrir
allt það fólk sem situr í
nefndum og ráðum á veg-
um borgarinnar. Helstu starfs-
menn fá einnig að fara í ferða-
lögin. Allt á kostnað borgarinnar.
Þessar fréttir eru dæmi þess
hversu gírugt fólk getur verið og
misnotað opinbera sjóði. Það
er rétt sem segir um gagnrýni á
ferðirnar að þær geti ekki talist til
kynnisferða, þar sem í þær er far-
ið með reglulegu millibili, ekki
vegna mála sem upp koma.
borgin borgar
ÖLL TIL ÚTLANDA
Á KOSTNAÐ
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Fimmtudagur 4. október 2007 dagblaðið vísir 158. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
eKKI pLÁSS fyrIr fLeIrI í gæSLuvArÐhALDIfANgeLSISmÁLAyfIrvÖLD eru í mIKLum vANDA efTIr AÐ fjórTÁN LIThÁAr vOru hAND-TeKNIr fyrIr SKIpuLAgÐAN þjófNAÐ Og SjÖ ÚrSKurÐAÐIr í gæSLuvArÐhALD. gruNAÐIr brOTAmeNN gISTA NÚ ALLA fANgAKLefA Sem eru æTLAÐIr fyrIr gæSLuvArÐhALD. verÐIfLeIrI LIThÁANNA ÚrSKurÐAÐIr í gæSLuvArÐhALD verÐur erfITT AÐ fINNA þeIm KLefA.
utanlandsferðir eiga ekki að
ráðast af kvótahugsun, segir
Ögmundur jónasson. ferðirnar
eiga að ráðast af þörf og vont ef
fulltrúarnir eiga rétt
á þeim, segir pétur blöndal.
hverrar krónu virði, segir margrét
Sverrisdóttir. Sjá bls. 6–7.
fulltrúar í fagráðum reykjavíkur fá allir eina ferð á kjörtímabili:
>> Ljósmyndarar eiga sér jafnan sínar eftirlætismyndir. Fjórir atvinnu- og áhugaljósmyndarar drógu sínar eftirlætismyndir fram og sögðu DV söguna á bak við þær. Ljósmyndararnir eru þeir Gunnar V. Andrésson, Árni Torfason, Gísli Kristinsson og Soffía Gísladóttir.
fólk
reykjavíkur
eftirlætisljósmyndirnar
>> „Ég hef ekki fundið fyrir svona mikilli sköpunargleði í mörg ár,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson sem vinnur nú að fyrstu sólóplötu sinni. Hann flytur líka titillag myndarinnar Stóra planið.
erpur meÐ SóLópLÖTu
fólk
björgunarsveitin
sligast undan gjöf >> Björgunarsveitin Sæbjörg á Flateyri er í húsnæð-isvanda. Félagið fékk stórt hús að gjöf en gjöfin reyndist of dýr. Ráðast þurfti í miklar framkvæmdir og þegar upp var staðið hafði björgunarsveitin safnað skuldum. Þá þurfti að selja húsið.
fréttir
>> Ólafur Þórðarson er hættur þjálfun
Fram. Þetta varð ljóst eftir fund hans með stjórn félagsins í gær. Stjórnarmenn sögðu þetta vera vegna anna Ólafs annars staðar. Hann furðar sig á þessu og segir ekkert
hafa breyst frá því hann samdi við félagið um að taka að sér þjálfun. Marseilles vann góðan sigur á Liverpool á Anfield í
meistaradeild Evrópu. Chelsea vann
Valencia og Real Madrid gerði 2–2 jafntefli við Lazio á Ítalíu.
ÓLAFUR HÆTTUR
DV Sport
fimmtudagur 4. október 2007 15
Sport
Fimmtudagur 4. október 2007
sport@dv.is
Drogba tryggði Chelsea sigur Fram lagði Stjörnuna að velli
Ólafi Þórðarsyni
Sanngjarn
Sigur
Marseille gerði sér lítið fyrir og vann liverpool 1–0 á anfield í Meistaradeildinni. bls 16.
Fréttir af fjárlögunum eru
meðal merkustu frétta.
Ríkissjóður á orðið meira
af peningum en hann þarf
að nota. Gagnrýni stjórn-
arandstæðinga á lausatök
í ríkisfjármálum er á sama tíma
ekki trúverðug. Boðaðar eru
skattalækkanir til að draga úr
risatekjum ríkissjóðs. Góðærið
ætlar núverandi ríkisstjórn að
nota til að slá öll met í útgjöld-
um. Meðal þess sem heitið er að
laga er staða velferðarmála og
hluti mikilla útgjalda fer í þann
brýna málaflokk. Skattalækkun-
um er lofað í ófyrirséðri framtíð.
ríkissjóður á nóg
miðvikudagur 3. október 200710
Fréttir DV
OilQuick hraðtengi
Sími 520 3100 Smiðjuvegur 50 datek
@datek.is
Tengja vökvalagnir um leið og tengið
læsist
„Ég held að þetta sé byggt á mis-
skilningi. Ef þeim hefur farið eitt-
hvað á milli í persónulegum sam-
skiptum er mér ekki kunnugt um
það,“ segir Guðjón Arnar Kristjáns-
son, formaður Frjálslynda flokksins,
um orðaskipti milli Sigurjóns Þórð-
arsonar, fyrrverandi þingmanns,
og Kristins H. Gunnarssonar, þing-
manns frjálslyndra.
Í DV í gær sagði Sigurjón að
Kristinn hefði unnið gegn sér frá því
hann gekk til liðs við flokkinn, en í
janúar yfirgaf Kristinn Framsókn-
arflokkinn og tók saman við frjáls-
lynda. Sigurjón sagðist vonast til
þess að Kristinn myndi endurskoða
hug sinn. Hann sagði Kristin í sand-
kassaleik og vonar að honum ljúki
sem fyrst. Sigurjón ætlar þó ekki að
láta deigan síga og vill berjast áfram
gegn kvótakerfinu sem óbreyttur
meðlimur Frjálslynda flokksins en
í gær sagðist hann ekki ætla að láta
Kristin koma sér úr flokknum. Sig-
urjón tók nýlega við störfum sem
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftir-
lits Norðurlands vestra en hann lét
af þingmennsku í vor.
Guðjón Arnar segist ekki vita til
þess að Kristinn hafi unnið gegn Sig-
urjóni á nokkurn hátt. „Ef Sigurjón
er á öðru máli er það hans tilfinning
og ég get ekki tjáð mig um það,“ segir
Guðjón og vill sem minnst segja um
málið.
Kristinn sagði í samtali við DV
í gær að hann kannaðist ekki við
ósætti innan flokksins og enn síður
að hann eigi eitthvað sökótt við Sig-
urjón. erla@dv.is
Guðjón A. Kristjánsson
Misskilningur milli Sigurjóns og Kristins
Guðjón Arnar Kristjánsson
Formaður Frjálslynda flokksins
veit ekki til þess að kristinn hafi
unnið gegn Sigurjóni.
Geir H. Haarde
GEIR BOÐAR SKATTALÆKKANIR
Hækkun persónuafsláttar er ein
þeirra leiða sem farnar verða til að
lækka skatta á kjörtímabilinu auk
þess sem skattkerfi og almanna-
tryggingar verða endurskoðaðar
með það markmið að bæta hag lág-
og millitekjufólks. Þetta sagði Geir
H. Haarde forsætisráðherra í stefnu-
ræðu sinni á Alþingi í gærkvöld.
Skattalækkanir falla þó ekki alls stað-
ar í góðan jarðveg og vilja þingmenn
Vinstrihreyfingarinnar – græns fram-
boðs að tekjuafgangi ríkissjóðs verði
frekar varið til uppbyggingar á vel-
ferðarsviði.
Veisluborð stjórnarinnar
Guðni Ágústsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, lýsti yfir
áhyggjum sínum vegna stefnu rík-
isstjórnarinnar í efnahagsmálum og
þeirrar þenslu sem enn ríkir í sam-
félaginu. Hann sagði flokksmenn
sína óttast að stjórnin ætli ekkert að
gera til að stíga á bremsuna og benti
á að ljóst væri að hækkanir stýrivaxta
Seðlabankans dygðu ekki til. Guðni
benti þó á að ríkisstjórnin hefði tekið
við góðu búi og sitji nú við heilmikið
veisluborð sem Framsóknarflokkur-
inn hafi tekið þátt í að hlaða. Því hafi
stjórnin meira svigrúm en ella til að
bregðast við þeim vanda er steðjar
að.
Bandarískt módel
Heilbrigðismálin virtust Geir hug-
leikin í stefnuræðunni og með út-
boðum og þjónustusamningum sér
ríkisstjórnin fram á að tryggja bestu
fáanlegu þjónustu fyrir það fjármagn
sem varið er til þeirra mála. Stein-
grímur J. Sigfússon hefur áhyggjur
og telur að hugmyndir sem þessar
feli í sér frekari áform heilbrigðisráð-
herra í átt að einkavæðingu þessar-
ar þjónustu sem á að vera öllum að-
gengileg, óháð stétt og stöðu. Guðna
sýndist Íslendingar fjarlægjast nor-
ræna módelið í heilbrigðismálum og
nálgast hið ameríska óðfluga. Skuld-
inni vildi hann skella á einkavæðing-
arhugleið–ingar Sjálfstæðisflokks.
Forsætisráðherra taldi einnig til
aðgerðir til að opna íslenskan lyfja-
markað í þeim tilgangi að efla sam-
keppni og ná fram auknu framboði
samhliða lægra lyfjaverði..
Lögverndaður kennari
Geir sagði menntamálaráðherra
ætla að leggja fram frumvarp til
lögverndunar á starfsheitum kennara
og skólastjórnenda. Einnig verða
í fyrsta skipti lögð fram frumvörp
sem taka samtímis til leikskóla,
grunnskóla og framhaldsskóla, og
verður þannig mótuð heildstæð
menntastefna.
Forsætisráðherra gerði mótvæg-
isaðgerðir vegna niðurskurðar afla-
heimilda að umræðuefni og sagði
hann stjórnarflokkana sannarlega
ekki hafa setið auðum höndum í
sumar. Tímasetningu niðurskurðar-
ins telur hann ákaflega góða þar sem
aflasamdrátturinn hafi nú tiltölulega
lítil áhrif á hagkerfið í heild þó veru-
legt tekjutap í mörgum sjávarbyggð-
um sé óhjákvæmilegt.
Rænd lífsviðurværinu
Guðjón Arnar gaf lítið fyrir mótvæg-
isaðgerðirnar og sagði ekkert í þeim
sem myndi ná að hífa upp þá veiku
stöðu sem nú sé komin upp í sjávar-
sveitum. Hann benti á að kvótakerfið
hefði ekki náð neinu af þeim mark-
miðum sem lagt hefði verið upp með
og að aldrei yrði sátt um að ræna fólk
á landsbyggðinni lífsviðurværinu.
Guðna Ágústssyni fannst sömuleiðis
lítið til aðgerðanna koma en nýverið
kynnti Framsóknarflokkurinn sínar
eigin mótvægisaðgerðir. Hugmynd-
ir ríkisstjórnar finnst Guðna í besta
falli háðulegar.
Geir benti á að huga þyrfti að vax-
andi mikilvægi Íslands í utanríkis-
málum og að samfara aukinni sókn
í auðlindir á norðurslóðum yrði
umferð í lofti og á legi. Hann sagði
einnig að áhersla yrði lögð á að fá
viðunandi niðurstöðu í viðræður
um yfirráð á hinu eftirsótta Hatton-
Rockall-svæði.
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur vinstri grænna, ítrekaði að huga
þyrfti að auðlindum Íslands með
umhverfissjónarmið í huga. Þannig
yrðu landsmenn að horfa til framtíð-
ar þegar náttúran væri nýtt og ekki
gleyma okkur í gróðahyggju.
Í lok stefnuræðu sinnar sagðist
Geir binda vonir við samstarf tveggja
stærstu stjórnmálaflokka landsins og
að saman myndu þeir stýra þjóðar-
skútunni til bjartari framtíðar.
ERLA HLynsdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Guðna sýndist Ís-
lendingar fjarlægj-
ast norræna módelið
í heilbrigðismálum og
nálgast hið ameríska
óðfluga. Skuldinni vildi
hann skella á einka-
væðingarhugleiðingar
Sjálfstæðisflokks.
Umræður um
stefnuræðuna
geir H. Haarde
forsætisráðherra
boðaði skattalækk-
anir og sagðist vilja
opna íslenskan
lyfjamarkað í því
skyni að lækka
lyfjaverð.
2
Reykjavíkurborg hefur verið
mikið í fréttum í vikunni. DV
greindi frá því á mánudag
að borgin keypti hús fyrir
87 milljónir sem átti að nýta
fyrir dagdeild fyrir Alzheim-
er-sjúklinga. Ekki var betur vandað til
kaupanna en svo að húsið er sennilega
óhæft til að hýsa dagdeildina. „Við töld-
um okkur vera að kaupa húsnæði sem
gæti nýst sem stofnun. Í þessu sama
húsnæði var fyrir allmörgum árum
skóli og við töldum því að húsnæð-
ið gæti nýst þannig áfram,“ sagði Óskar Bergsson, formaður fram-
kvæmdaráðs Reykjavíkurborgar. „Það er erfitt að bakka út úr þessum
samningi en það verður sjálfsagt hægt að selja þetta hús,“ sagði Sig-
rún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
ónothæft hús
„Það er hætt við því að þetta hús-
næði muni ekki nýtast,“ segir Sigrún
Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylk-
ingar í framkvæmdaráði Reykjavík-
urborgar.
Meirihlutinn í framkvæmda-
ráði borgarinnar samþykkti á fundi
í síðasta mánuði að kaupa hús-
næði í Blesugróf 27 fyrir 87 milljón-
ir króna.
Menn áttuðu sig, að sögn Sig-
rúnar Elsu, ekki á því fyrr en of seint
að mikil hætta væri á að húsnæðið
myndi ekki nýtast. Ástæðan er sú að
í hverfinu er þegar svipuð starfsemi
fyrir hendi. Auk þess er húsnæðið
skilgreint sem íbúðarhúsnæði og
þarf að fara í gegnum deiliskipu-
lagsbreytingu til að starfsemin verði
samþykkt. Fulltrúar Samfylkingar
og vinstri – grænna sátu hjá við af-
greiðslu málsins.
Dagdeild fyrir
Alzheimersjúklinga
Hugmynd borgarinnar var að
í Blesugróf 27 yrði starfrækt dag-
deild fyrir Alzheimersjúklinga. „Það
er nauðsynlegt að byggja upp þessa
starfsemi. Fulltrúar Samfylkingar
hafa þrýst mjög á að þessari starfsemi
verði fundinn staður og hún byggð
upp,“ segir Sigrún Elsa.
Í bókun samfylkingarmanna frá
fundinum kemur fram að fyrirhuguð
starfsemi hefði ekki verið kynnt fyrir
íbúum svæðisins. Auk þess hefði ekki
verið lagt mat á aukna umferð um
svæðið og áhrif á umferðaröryggi sem
breytingunum kynni að fylgja. Fyrir-
hugað var að í húsinu yrði starfsemi
fyrir tuttugu heilabilaða einstaklinga.
„Það væri slæmt ef þessi vandræða-
gangur yrði til þess að fresta uppbygg-
ingu á þjónustu fyrir heilabilaða.“
Skilgreint sem íbúðarhúsnæði
„Í dag er þetta húsnæði skilgreint
sem íbúðarhúsnæði og það þyrfti
deiluskipulagsbreytingu til að þessi
starfsemi yrði heimil,“ segir Sigrún
Elsa. „Ég veit ekki hvernig þessi mis-
tök gátu gerst því deiliskipulagsbreyt-
ingar þarf að kynna. Ég held að um
leið og menn áttuðu sig á þessu skoð-
uðu menn hvort hægt yrði að falla frá
þessu kauptilboði. Það var ákveðið að
það yrði sett í hendurnar á fasteigna-
salanum og hann látinn ákveða hvort
tilboðið stæði. Ef niðurstaðan verður
sú verða menn bara að sjá til hvort
skipulagsyfirvöld samþykkja þessa
starfsemi eða ekki. Annars verður lík-
lega að selja húsnæðið.“
Íbúar ekki sáttir
Í Bleikargróf, sem er gatan við hlið-
ina á Blesugróf, er tveggja einbýlishúsa
lóð sem var skilgreind í deiliskipulagi
undir svipaða starfsemi. Íbúar á svæð-
inu voru ekki allir á eitt sáttir og töldu
margir að hverfið yrði of einsleitt ef
af þeirri starfsemi yrði. Nú þegar eru
hið minnsta tvær stofnanir í hverfinu
með svipaða starfsemi og þá sem fyr-
irhugað var að boðið yrði upp á fyrir
Alzheimersjúklinga í Blesugrófinni.
Meirihlutinn samþykkti að keyra
málið í gegn með fjórum atkvæðum.
Um leið og það gerðist var samning-
urinn um kaupin á húsnæðinu orð-
inn bindandi við fasteignasalann.
„Það er erfitt að bakka út úr þess-
um samningi en það verður sjálfsagt
hægt að selja þetta hús,“ segir Sigrún
Elsa.
Samkvæmt upplýsingum frá
skipulagssviði Reykjavíkurborgar
er málið í vinnslu hjá skipulags-
og byggingarfulltrúa. Ekki náðist í
formann ráðsins, Óskar Bergsson,
en Ragnar Sær Ragnarsson, full-
trúi Sjálfstæðisflokks, sagðist ekki
þekkja málið nægjanlega vel og
vildi ekki tjá sig um það.
mánudagur 1. október 20074
Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
„Ég veiði eingöngu á flugu og ég var tekinn af lífi án dóms og laga,“ segir Atli Gíslason, þingmaður vinstri-grænna. Samkvæmt úrskurði stjórnar Stangaveiðifélags Reykjavíkur má Atli ekki kaupa veiðileyfi hjá félaginu næstu þrjú árin. Eftirlitsmaður í Hítará stóð sjö manna hóp þar sem Atli var í föruneyti að því að veiða á maðk en þar er aðeins leyfilegt að veiða á flugu. „Ég varð ekki vitni að neinu sem var að gerast því ég kom ekki í ána á sama tíma og aðrir veiðifélagar mínir. Við vorum nýbyrjaðir að veiða þegar veiðivörðurinn kom. Hann kom að mér þegar ég var einn og félagi minn var töluvert langt fyrir neðan mig þannig að ég sá ekkert hvað hann var með á stönginni. Í þau fáu skipti sem ég fer að veiða veiði ég aldrei á maðk og í þetta skipti var þetta ekkert öðruvísi.“Stjórn Stangaveiðifélagsins var hins vegar á öðru máli en Atli og úrskurðaði þannig að allir veiðimennirnir hafi verið brotlegir. Úrskurðurinn var á þá leið að þeir fjórir veiðimenn sem voru á bakkanum hefðu vitað af athæfi hinna þriggja og þar með verið meðsekir í þessum verknaði. Þriggja ára bannið mun því standa gegn Atla.
Atli segir að það versta við málið sé að hann hafi ekki fengið að tjá sig um sína hlið á málinu fyrir stjórn SVFR. „Mér líður eins og manni sem fer með vinum sínum á útihátíð og tveir af fjórum gerast brotlegir við lög og allir fjórir eru dæmdir. Ég fæ ekki að gefa mínar skýringar eða neitt. Þeir bara slátruðu mér án þess að mér gæfist kostur á að tjá mig. Það á ekki að þekkjast í nútímasamfélagi.“Aðspurður segist Atli hafa haft nokkuð gaman af veiðimennsku í gamla daga. „Á síðustu fimm árum hef ég farið þrisvar til fjórum sinnum. Ég hafði mjög gaman af þessu í gamla daga en ætli þetta hafi ekki vikið fyrir pólitíkinni. Ég á mér önn-ur meira spennandi áhugamál eins og sumarbú-staðinn og garðyrkjuna.“
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur ákveðið að banna Atla Gíslasyni að kaupa veiðileyfi næstu þrjú árin. Atli
segist vera fórnarlamb í málinu.
Bætifláki
Tekinn af lífi án dóms og laga
Grímseyjarferja
rædd á Alþingi
Alþingi verður sett í dag.
Þetta er 135. löggjafarþing.
Þingsetningarathöfn hefst í
dómkirkjunni klukkan 13.30.
Að loknu ávarpi Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands,
verður hlé á þingstörfum. Þá mun
strengjakvartett leika Hver á sér
fegra föðurland og Ísland ögrum
skorið.
Geir Haarde forsætisráðherra
flytur stefnuræðu sína annað
kvöld og Árni Mathiesen mælir
fyrir fjárlögum á fimmtudag. Jón
Bjarnason, Grétar Mar Jónsson og
fleiri stjórnarandstöðuþingmenn
telja að umræður um
Grímseyjarferju verði áberandi á
fyrstu dögum þinghalds.
Lúkasarkærur
ekki verið
rannsakaðar
„Málið var sent frá Akureyri
til okkar og hefur ekki verið
rannsakað ennþá,“ segir Jón
H. B. Snorrason aðstoðarlög-
reglustjóri spurður um stöðu
Lúkasarmálsins svokallaða.
Helgi Rafn Brynjarsson, sá hinn
sami og var gefið að sök að hafa
drepið hundinn Lúkas, kærði
fjölmarga einstaklinga vegna
ærumeyðinga.
Sýslumaðurinn á Akureyri
fékk málið sent til sín til rann-
sóknar en hann sendi það til
baka á þeim forsendum að mál-
ið hefði ekki átt sér stað þar. Jón
segir að málið sé í ákveðnu ferli
og erfitt sé að segja til um hve-
nær rannsókn á málinu lýkur.
Beðið krufningar
„Við bíðum bara eftir niður-
stöðu krufningar. Ég á von á því að
eftir 2 til 3 mánuði fáist niðurstöð-
ur frá réttarlækni,“ segir Þorgrímur
Óli Sigurðsson,
rannsóknarlög-
reglumaður hjá
lögreglunni í Ár-
nessýslu.
Dánarorsök
fangans sem lést
á Litla-Hrauni
laugardaginn
22. september er
enn ókunn. Rannsókn málsins er í
höndum lögreglunnar í Árnes-
sýslu og þar er beðið eftir krufn-
ingu réttarlæknis til að skera úr
um með hvaða hætti fanginn lét
lífið. Engin sýnileg merki voru um
sjálfsvíg. Þorgrímur segir viðtöl við
starfsfólk fangelsisins og samfanga
ekki hafa gefið neinar vísbending-
ar um hvað raunverulega gerðist.
Hert eftirlit
með skotveiði
Lögreglan á Hvolsvelli mun
auka eftirlit sitt með skotveiði-
mönnum sem fara um um-
dæmi hennar.
Umdæmið sem lögreglan
á Hvolsvelli hefur eftirlit með
er eitt það stærsta á landinu. Á
vef lögreglunnar á Hvolsvelli
er boðað hert eftirlit með skot-
veiðimönnum og mega þeir
sem hugsa sér gott til glóðarinn-
ar búast við að lögreglan spyrji
um réttindi og feng þeirra.
Sigrún Elsa Smáradóttir
„Það væri slæmt ef
þessi vandræðagang-
ur yrði til þess að fresta
uppbyggingu á þjón-
ustu fyrir heilabilaða.“
EinAR ÞóR SiGuRðSSon
blaðamaður skrifar einar@dv.is
GETA EKKI
NÝTT HÚSNÆÐIÐ
Blesugróf 27 Í húsinu átti að koma dagdeild fyrir alzheimersjúklinga. meirihlutinn í framkvæmdaráði áttaði sig ekki á að
húsnæðið fengist líklegast ekki samþykkt.3
Íslenski fanginn, Guðjón Guð-
mundsson, greip til þess úr-
ræðis að svipta sig lífi eftir að
hann tók að afplána tveggja
ára fangelsisvist í Kaupmanna-
höfn. Hann var dæmdur þar eftir
að heima hjá honum fannst töluvert
magn fíkniefna.
Þórir Jökull Þorsteinsson, sendiráðs-
prestur í Danmörku, heimsótti Guðjón
reglulega í sumar og reyndi að veita
honum stuðning. Hann segir ríka
þörf fyrir slíkan stuðning því föngum
líði iðulega illa. „Þetta er virkilegur sorgaratburður sem þarna átti
sér stað og ég er að reyna að veita þeim sem eiga um sárt að binda
stuðning. Ég hafði verið honum innan handar í fangelsinu í sumar
því yfirleitt er þar að finna bugaða einstaklinga. Það líður engum vel í
fangelsi,“ sagði Þórir Jökull í samtali við DV.
svipti sig lífi
svipti sig
lífi í dönsku
fangelsi
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
mánudagur 1. október 2007 dagb
laðið vísir 155. tbl. – 97. árg. – ver
ð kr. 235
>> Hermann Hreiðarsson skoraði eitt mark
þegar
lið hans Portsmouth gjörsigraði Reading 7
-4 í
ensku úrvalsdeildinni. Þetta er mesti mark
aleik-
ur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Arsenal
er
enn í efsta sæti eftir leiki helgarinnar eftir g
óða
ferð liðsins á Upton Park, heimavöll West H
am.
fréttir
met í íslendingaslag
portsmouth-reading
átök í skorradal
jarðeigendur í skorradal saka davíð
pétursson oddvita um valdníðslu. Þeir
eru ósáttir við að skipulagning og sala
lóða undir sumarhús hafi verið sett í
salt í eitt ár hið minnsta. pálmi
ingólfsson húsasmíðameistari, sem
hefur mestar tekjur sínar af sölu
frístundalóða, segir menn fara sér
hægt í skipulagsvinnu.>> Hljómsveitin Reykjavík! spilar í Kanada ásamt The Na
tionals, Hot Hot
Heat, Grizzly Bear og Patti Smith.
reykjavík! í kanada
íslenskur maður svipti sig lífi í fangelsi í kaupmanna
höfn.
maðurinn var nýlega byrjaður að afplána tveggja ára
fangelsis-
dóm sem hann hlaut eftir að hafa verið handtekinn m
eð talsvert
magn fíkniefna í íbúð í kaupmannahöfn. sjá bls. 2.
íslenskur afbrotamaður fannst látinn í fangelsi
í kaupmannahöfn:
Vill syngja
með bítlunum
>> Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri vill syngja með bítlunum
Paul McCartney og Ringo Starr. Búist
er við þeim til Íslands þegar friðarsúla
verður reist í Viðey á 67. afmælisdegi
John Lennon. Báðir hafa staðfest
komu sína munnlega en þó er ekki
búið að ganga endanlega frá
Íslandsheimsókninni.
>> Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsók
narflokks
í framkvæmdaráði Reykjavíkurborgar sam
þykkti að
kaupa 87 milljóna króna hús undir dagdei
ld fyrir
Alzheimersjúklinga án þess að gera sér gr
ein fyrir að
starfsemin gæti ekki farið fram í húsinu m
iðað við
gildandi skipulag.
borgin má
ekki nota
húsið
fréttir
4
Stefanía Hjaltested, 25 ára hárgreiðslumeistari,
upplifði það fyrir mánuði síðan að amma hennar, sem lést árið
2003, birtist henni í draumi nokkrar nætur í röð. Stefanía vakn-
aði jafnan af draumnum og gekk illa að sofna aftur. Nokkrum dög-
um eftir að draumfarirnar hófust fékk hún skýringu á þeim.
hitt málið
Látin amma
Lét vita af Legsteini
Stefanía Hjaltested amma hennar heitin
birtist í draumi á hverri nóttu. skýringin
fékkst þegar stefanía fór að leiði hennar.
Allir gæsluvarðhaldsklef-
ar eru nú fullir eftir að sjö
Litháar voru úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald. Ekki
er pláss fyrir fleiri fanga í
gæsluvarðhaldi og segir það
meðal annars hversu lengi stjórn-
völd geta verið að laga sig að nú-
tímanum. Glæpum fjölgar og þess
vegna er brýnt að geta hýst þá á við-
eigandi hátt sem eru teknir úr um-
ferð vegna afbrota.
allt fullt fimmtudagur 4. október 20072 Fréttir DV
Forsetinn fór
með einkaþotu
Embætti forseta Íslands
hefur afhent Pétri Gunnarssyni,
ritstjóra vefmiðilsins Eyjunnar,
gögn sem staðfesta að Ólafur
Ragnar Grímsson ferðaðist með
einkaþotu á vegum Eimskips til
Leeds á Englandi í september.
DV greindi frá för forsetans í
september fyrstur fjölmiðla.
Forsetaembættið hafði áður
hafnað beiðni Péturs um aðgang
að upplýsingunum. Úrskurðar-
nefnd um upplýsingamál vís-
aði málinu frá. Pétur gerði nýja
beiðni til embættisins og er þetta
niðurstaðan. Ekki kom á daginn
hverjir ferðuðust með forsetan-
um.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Strokufangarnir tveir sem struku
á þriðjudagskvöld frá fangelsinu á
Litla-Hrauni voru handteknir í íbúð
í vesturbæ Reykjavíkur um klukkan
ellefu í gærmorgun. Annar mann-
anna er raðstrokufangi því á síðasta
ári strauk hann ásamt hópi manna frá
fangelsinu á Akureyri. Hinn stroku-
fanginn er í lausagæsluvarðhaldi og
bíður dóms.
Fangarnir höfðu verið á AA-fundi
innan veggja fangelsins þegar þeir
nýttu tækifærið og struku. Lögregla
og fangelsisyfirvöld rannsaka enn
hvernig mönnunum tókst að strjúka.
Þegar ljóst var að mennirnir höfðu
komist undan gerði lögregla strax
miklar ráðstafanir og stoppaði alla
bíla á leið til Reykjavíkur og leitaði í
þeim. Þrátt fyrir það tókst mönnun-
um að koma sér óséðir til Reykjavíkur
á stolinni Skoda-bifreið með skrán-
ingarnúmerinu ZX-224. Bifreiðinni
stálu þeir í Stóru-Sandvík í sveita-
félaginu Árborg auk þess sem þeir
komust yfir greiðslukort úr annarri
kyrrstæðri bifreið. Kortið var notað til
greiðslu í 10-11-verslun í Hafnarfirði
um klukkan hálfsjö í gærmorgun.
Samkvæmt upplýsingum frá varð-
stjóra lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu leiddi stolna bifreiðin lög-
reglumenn á slóð strokufanganna.
Þeir veittu enga mótspyrnu við hand-
töku og virtust hvorki undir áhrifum
áfengis né annarra vímuefna. Menn-
irnir sitja inni fyrir ýmiss konar auðg-
unarbrot og eru meðal góðkunningja
lögreglunnar. Þeir eru þó ekki taldir
hættulegir.
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fang-
elsismálastofnunar, segir það hafa
áhrif á framtíðarvistun fanga þegar
þeir strjúka. „Það getur verið refsivert
ef um samantekin ráð er að ræða.
Þetta hefur áhrif á afplánunarfer-
il þeirra í það heila, bæði vistunar-
möguleika og reynslulausn. Það er
svo á valdi forstöðumanns fangels-
isins að taka ákvörðun um agaviður-
lög,“ segir hann. Nöfn mannanna fást
ekki uppgefin. valgeir@dv.is
Fanginn flýði tvisvar á einu ári
Fangelsi ef samantekin ráð eru um strok fanga getur það verið refsivert.
150 vantar
á leikskóla
Hundrað og fimmtíu starfs-
menn vantar á leikskóla Reykja-
víkurborgar og er því mikið álag
á þá starfsmenn sem þegar eru
við störf. Þessar niðurstöður voru
kynntar á fundi leikskólaráðs í
gær.
Hvatt var til þess að borg-
aryfirvöld nýti sér heimildir til
aukagreiðslna vegna óviðunandi
starfsaðstæðna eins og heimild
er fyrir. Fulltrúar Samfylkingar,
vinstri-grænna og frjálslyndra
í borgarstjórn minntu á að lög-
reglumenn hefðu fengið slíkar
greiðslur þegar álag á þá jókst
vegna manneklu og telja nú
komið að kvennastéttum.
Velti bíl
ölvaður
Ökumaður sem missti
stjórn á bíl sínum við Skálavík
í Mjóafirði í fyrradag er grun-
aður um ölvun við akstur. Að
sögn varðstjóra lögreglunnar
á Ísafirði valt bifreið manns-
ins út af veginum en annar
maður var í bílnum með
honum. Í fyrstu var talið að
um mjög alvarlegt slys væri
að ræða og var þyrla Land-
helgisgæslunnar í viðbragðs-
stöðu. Ekki kom þó til þess að
þyrlan yrði kölluð út. Þegar
lögregla kom á vettvang kom
í ljós að meiðsli voru minni-
háttar og fengu mennirnir
aðhlynningu læknis. Bíllinn
er mikið skemmdur ef ekki
ónýtur eftir veltuna.
Sigri fagnað
Eftir tuttugu og eins árs
borgarastríð í bænum Malak-
al í Suður-Súdan hefur ekki
verið mikið um ánægjustund-
ir hjá íbúum. Þessir ungu
menn fögnuðu hins vegar í
lok september en þá útskrif-
uðust þeir úr starfsnámi í
SOS-barnaþorpinu á staðn-
um sem styrkt er af Íslending-
um. Þeir geta nú hafið störf
sem járnsmiðir, bifvélavirkjar,
rafvirkjar eða múrarar.
Þeir nutu leiðsagnar starfs-
fólks SOS-barnaþorpsins. Frá
árinu 2001 hefur barnaþorpið
hjálpað fyrrverandi barnaher-
mönnum að fóta sig í lífinu.
Flest þessara barna geta ekki
skráð sig í skóla eða fengið
heilbrigðisþjónustu hjá hinu
opinbera.
Valtýr Sigurðsson
Erlendur Baldursson
KOMA EKKI FLEIRUM
Í GÆSLUVARÐHALD
„Það er allt fullt í gæsluvarðhald-
inu eins og stendur,“ segir Erlendur
Baldursson, deildarstjóri hjá Fang-
elsismálastofnun ríkisins. Sjö Lit-
háar voru í gær úrskurðaðir í gæslu-
varðhald í kjölfar þess að fjórtán
voru handteknir vegna gruns um
umfangsmikinn og skipu-
lagðan þjófnað.
Litháarnir bætast í
hóp nokkurra gæslu-
varðhaldsfanga sem
þegar sitja inni í kjöl-
far smyglskútumálsins á
Fáskrúðsfirði auk þeirra
sem stóðu að innflutningi
á fljótandi kókaíni. Einn
maður til viðbótar var úr-
skurðaður í gæsluvarð-
hald í fyrradag fyr-
ir að hafa með
brjálsemi hót-
að að drepa
öryggisvörð
í Smáralind,
sem stóð
hann að
þjófnaði.
„Ég er
hræddur um að við verðum í lag-
legum vanda ef setja þarf hina sjö
mennina líka í varðhald,“ segir Val-
týr Sigurðsson, forstjóri Fangelsis-
málastofnunar.
Tólf varðhaldsklefar
Á Litla-Hrauni eru tíu einangr-
unarklefar í sérstakri einingu, ætl-
aðri undir gæsluvarðhaldsfanga.
Tvo klefa til viðbótar er að finna í
hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg. Erlendur Baldursson segir
fangelsismálayfirvöld
hafa heimildir til
að notast við
fangaklefa
lögreglunn-
ar í tilvikum
sem þessum.
„Þetta er
náttúrulega þannig að ef marg-
ir hrannast inn til okkar á stuttum
tíma kemur að því að allt fyllist. Al-
veg á sama hátt og ef maður á bíl
sem rúmar alla fjölskylduna og svo
bætast skyndilega fimm í hópinn.
Þá er maður í vandræðum,“ seg-
ir hann.
Erlendur segir að engu
að síður hafi hingað til
náðst að leysa úr vanda
sem þessum og hann er
vongóður um að svo verði
einnig í þessu tilviki.
Ræðst í dag
Litháarn-
ir sjö sem nú
hafa verið
úrskurðaðir
í gæsluvarð-
hald voru handteknir í fyrrakvöld
og yfirheyrðir fram eftir gærdegin-
um. Hinir sjö voru svo gripnir í gær-
morgun. Þeir voru yfirheyrðir í gær-
kvöldi og í dag mun ráðast hvort
einnig verður farið fram á gæslu-
varðhald yfir þeim.
Ómar Smári Ármannsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuð-
borgarsvæðinu, segir tvær húsleitir
hafa verið gerðar vegna málsins og
talsvert þýfi hafi fundist. Í þýfinu
mátti finna tölvuhluti, varning úr
stórmörkuðum ásamt snyrtivörum,
fatnaði og skóm.
Ætlaði af landi brott
Mennirnir sem handteknir voru
eru á aldrinum 22 til 28 ára gaml-
ir. Ekki er ljóst hvað mennirnir ætl-
uðust fyrir með þýfið en einn þeirra
átti þó pantað far af landi brott í gær.
Sá ætlaði sér úr landi með hluta þýf-
isins og er talið að hann hafi ætlað
koma því í verð.
Nokkrir mannanna hafa áður
komið við sögu lögreglu á Íslandi
og sumir þeirra hafa hlotið dóma
vegna auðgunarbrota í öðrum lönd-
um. Enda þótt mennirnir hafi ver-
ið handteknir í tvennu lagi þekkjast
þeir allir innbyrðis. Ómar Smári seg-
ir lögreglu hafa fylgst með mönnun-
um um nokkra hríð.
SigTRygguR ARi jóhAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
„ég er hræddur um að við
verðum í laglegum vanda
ef setja þarf hina sjö
mennina líka í varðhald.“
hegningarhúsið Á Skólavörðustígnum eru tveir gæsluvarðhaldsklefar til
viðbótar.
Erlendur Baldursson erlendur telur að komast megi í gegnum skaflinn.
fangelsismálayfirvöld hafi heimild til þess að nota klefa lögreglunnar.
Valtýr Sigurðsson Valtýr segir tals-
verðan vanda blasa við ef sjö Litháar þurfa í gæsluvarðhald til viðbótar við þá sjö sem fóru í varðhald í gær.
Litla-hraun Á Litla-
Hrauni eru tíu einangrun-
arklefar ætlaðir undir
gæsluvarðhaldsfanga.
5
DV MYND GuNNar