Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 35
DV Sport Föstudagur 5. október 2007 35
MARKMIÐ NÚMER
AÐ VERÐA MEISTARI
EITT, TVÖ OG ÞRJÚ
Helgi Sigurðsson er efstur í einkunnagjöf
DV fyrir Landsbankadeild karla. Sumarið
var mjög gott hjá Helga. Hann spilaði sinn
100. landsleik fyrir Íslands hönd, varð Ís-
landsmeistari í annað sinn á ferlinum og fær
silfurskó Adidas fyrir að verða annar marka-
hæsti maður deildarinnar.
Helgi Sigurðsson, leikmaður Vals, varð efstur í einkunna-gjöf DV með 7,06 að meðal-tali. „Þetta var frábært sum-
ar. Við lögðum þetta upp þannig að
gera atlögu að titlinum og helst vinna
hann. Okkur tókst það ætlunarverk
og við erum mjög sáttir við það,“
sagði Helgi en hann gaf sér tíma frá
próflestri til að ræða sumarið.
Valsmenn fengu 10 nýja leikmenn
til liðsins í sumar og létu allir vel að
sér kveða í sumar. Mismikið en allir
áttu þeir þátt í velgengni sumarsins.
„Það er vel staðið að málum í Val,
góðir strákar í liðinu og góðir þjálfar-
ar. Þetta helst allt saman í hendur og
þeir vita um hvað þetta snýst. Þetta
snýst um að láta nýju leikmennina
komast inn í hlutina sem fyrst og þeir
kunna að gera það, þannig að manni
líði vel á fyrsta degi. Þá eru miklu
meiri möguleikar á að menn standi
sig.“
Helgi segist fyrst og fremst hafa
sett sér það markmið að standa sig
innan vallar og að verða Íslands-
meistari. Allt annað hafi verið bónus.
„Eins og ég er búinn að segja áður fór
ég í Val til að verða Íslandsmeistari,
það var markmið númer eitt, tvö og
þrjú og að standa mig innan vallar
fyrir liðið.“ Helgi varð Íslandsmeist-
ari með Víkingi 1991 undir stjórn
Loga Ólafssonar. Þetta var því annar
Íslandsmeistaratitillinn. „Báðir titl-
arnir voru frábærir. Helsti munurinn
var að í þessum titli tók ég enn meiri
þátt. Með Víkingi var ég að stíga mín
fyrstu skref og spilaði ekki nema ein-
hverja 10 leiki. Í ár spilaði ég alla leiki
og manni finnst að maður eigi stærri
þátt í þessum. En báðir titlarnir voru
frábærir.“
Vissi að ég fengi fullt af færum
með Val
Helgi og Guðmundur Benedikts-
son náðu vel saman í framlínu Vals.
Voru ólíkir en samt líkir.
„Ég vissi að hverju ég gekk þeg-
ar ég fór í Val. Þar var fullt af góðum
leikmönnum og Gummi er sannar-
lega einn af þeim. Ég vissi að í þessu
liði myndi ég fá mikið af færum og
góðum sendingum. Þess vegna var
Valur númer eitt hjá mér.“ Helgi setti
tóninn snemma og skoraði mikið af
mörkum í upphafi móts. Ísland var
að fara spila vináttuleik gegn Kan-
ada og þjóðfélagið gerði þá kröfu að
Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálf-
ari veldi Helga í liðið. Það varð úr og
Helgi lék sinn 100. landsleik fyrir Ís-
lands hönd, með öllum landsliðum.
„Heiðarlega kom þetta mér ekki á
óvart út frá þeirri umræðu sem hafði
verið í gangi í þjóðfélaginu. Kannski
varð Jolli að láta undan pressunni.
En kannski, ef maður miðar við að
ég var ekki búinn að vera í landslið-
inu lengi og orðinn 32 ára, átti ég ekki
svakalega von á því. En það var gam-
an og virkilega gaman að spila sinn
100. leik fyrir Íslands hönd og frá-
bært að ná því markmiði.“
Valsmenn fengu nokkur tækifæri
í sumar til að komast í toppsætið en
alltaf náðu þeir að glutra því tæki-
færi niður. Í 16. umferðinni gerði lið-
ið jafntefli við ÍA, 2–2, og sögðu þá
margir að titillinn væri farinn. Enn
á ný komst Valur ekki á toppinn en
næsti leikur var gegn FH og honum
ætluðu Valsmenn ekki að tapa.
„Við vorum ekki sáttir við leik-
inn á móti Skagamönnum. Við ætl-
uðum að vinna þann leik en eftir að
það tókst ekki varð hugsuninn sú að
við þyrftum að fara í Kaplakrika og
vinna. Kannski eftir á að hyggja var
það gott fyrir okkur því þá vissum við
hvað við þyrftum að gera þarna. Það
þýddi ekkert að leggjast og reyna að
ná einhverju stigi. Það yrði bara að
fara og sækja öll stigin og sýna góðan
sóknarleik. Stemningin var mjög góð
í liðinu. Við höfðum alltaf trú á þessu
í sumar þó FH hafi náð einhverju for-
skoti á okkur í sumar vorum við al-
veg pottþéttir á því að við gætum náð
þeim. Við settum okkur markmið fyr-
ir mótið að ná í vissan stigafjölda og
Willum þjálfari sagði að ef það tæk-
ist myndum við vinna þetta mót. Við
héldum okkur við það markmið og
það var alltaf innan seilingar. Þó svo
að FH-ingar hafi ekki tapað mör-
glum stigum töpuðum við ekki held-
ur mörgum stigum. Þeir töpuðu á
tímabili nánast ekki leik þannig að
það var erfitt að halda í við þá en við
héldum í markmiðið sem Willum
setti upp og það var heldur betur rétt
hjá kallinum.“ Það markmið var að ná
tveimur stigum út úr hverjum leik.
Áttum þetta skilið
Helgi segir að það hafi ekki orð-
ið mikið spennufall eftir FH-leikinn.
Einbeitingin var mikil alla vikuna
fyrir lokaleikinn gegn HK. „Það var
mikil stemning eftir FH-leikinn. Við
vissum að við vorum í kjörstöðu og
við yrðum að treysta á okkur sjálfa.
Við vissum líka að HK var að berj-
ast við að falla ekki þannig að þeir
myndu ekki gefa okkur léttan leik og
sú varð raunin. Þetta var hörkuleik-
ur en við náðum sem betur fer að
skora snemma í leiknum og svo ann-
að mark sem átti ekki að vera dæmt
af. Eftir það lentum við í smábasli
þar sem við náðum ekki þessu öðru
marki sem hefði létt á allri pressunni.
Þess vegna varð þessi leikur mjög
spennandi allt fram undir síðustu
sekúndu. Enda fögnuðum við mikið
þegar flautað var til leiksloka.
Við erum hrikalega stoltir af
þessu. Við sýndum þvílíkan karakter
og þegar fæstir áttu von á því að við
kláruðum mótið sýndum við þvílík-
an karakter og unnum FH-inga í báð-
um leikjunum sem við spiluðum við
þá í deildinni. Með það að leiðarljósi
held ég að við höfum átt þetta alveg
skilið.“
benni@dv.is
Skot í slá Helgi átti þrumuskot
í slána gegn Hk.
Komdu með spaðann Helgi gefur
ungum aðdáendum spaðann.
Með bikarinn Helgi ásamt bjarna
ólafi með bikarinn eftirsótta.
Annar titillinn Helgi varð Íslands-
meistari með Víkingi 1991.
Lokaflautið Helgi fagnar
eftir lokaflautið.