Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 23
Eva Þyri, Beethoven og Chopin Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari heldur tónleika í Fella- og Hólakirkju á morgun klukkan 17. Á efnisskrá eru verk eftir Beethoven, Chopin, Granados og Prokofiev. Eva Þyri hefur komið fram sem einleikari með hljómsveitum, frumflutt fjölda verka og kemur reglulega fram með hljómsveitum og kammersveitum af ýmsum stærðargráðum. DV Menning Föstudagur 5. október 2007 17 Sýning Kjartans framlengd Málverkasýning Kjart- ans Guðjónssonar í Gallerí Fold hefur verið framlengd til sunnudagsins 7. október. Kjart- an, sem er fæddur 1921, er úr upphaflega Septemberhópn- um svokallaða sem sýndi fyrst saman í Listamannaskálanum árið 1947. Sú sýning vakti gríð- arlega athygli og hafði víðtæk áhrif á myndlist hér á landi um langt árabil. Kjartan kenndi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands í meira en aldarfjórð- ung. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér- lendis og erlendis. Skartgripir og skjaldar- merki Gullsmiðurinn og fjöllista- maðurinn Jouni Jáppinen frá Finnlandi opnar sýninguna Ellefta aðkoman - skartgrip- ir og skjaldarmerki í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 á morgun kl.16. Hann hefur áður sýnt fimm sinnum á Íslandi og er að mörgu kunnur, meðal annars fyrir boð sín til margra Íslendinga um gestavinnustofu í heimabæ sínum, Loviisa, aust- ur af Helsinki. Jouni hefur vakið mikla athygli fyrir vinnslu sína á járni úr mýrarrauðu og hefur meðal annars tekið að sér að hanna skjaldarmerki fyrir sveit- arfélög og fleiri. Fyrstu tón- leikarnir Fyrstu tónleikarnir á ný- vígðu orgeli Grindavíkurkirkju fara fram á sunnudaginn kl. 17. Friðrik Vignir Stefánsson org- anisti sér um spilamennskuna en á efnisskránni eru verk eftir Bach, Buxtehude, Boëllmann og fleiri tónskáld. Í tilkynn- ingu segir að orgelið gjörbreyti möguleikum til tónleikahalds í Grindavík. Það er smíðað af Björgvini Tómassyni, er með þeim stærri á landinu og það stærsta á Suðurnesjum. Org- elið er 25 radda pípuorgel með tveimur hljóðborðum og pedala. Það hefur 1.502 pípur, minnsta pípan er 9 mm á lengd en sú stærsta um 2,5 m á lengd. Styrkir til leikkvenna Styrkir og viðurkenningar voru afhent úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur í vikunni. Þau komu nú í hlut þriggja leikkvenna: Kristbjargar Kjeld, Elvu Óskar Ólafsdótt- ur og Sigrúnar Eddu Björnsdóttur. Styrkir úr sjóðnum hafa verið veittir íslenskum leikurum í rúmlega þrjátíu ár. Kínversk menning verður í brennidepli í Kópavogi um helgina: Kínverskt málþing og fjölskylduhátíð Málþing um kínverska menn- ingu verður haldið í Salnum í Kópa- vogi á morgun kl. 10 til 13 á Kínverskri menningarhátíð. Á þinginu verður meðal annars fjallað um daóíska lífs- list og um sígild við- horf daóískra hugs- uða. Arnþór Helgason, varaformaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins, fjallar um þró- un menningarsamskipta Kínverska alþýðulýðveldisins og Íslands undan- farna fimm áratugi. Kínverskt ritmál er viðfangsefni Steingríms Þorbjarn- arsonar mannfræðings og Hjörleifur Sveinbjörnsson þýðandi fjallar um kínverska frásagnarlist. Dagur Kristj- ánsson, fyrrverandi námsmaður í Kína, mun svo segja frá reynslu sinni sem námsmaður í Kína eftir tveggja ára dvöl í landinu. Fjölskylduhátíð verður haldin í Vetrargarðinum í Smáralind á morg- un kl. 14 til 16 í tilefni af menningar- hátíðinni. Í boði verður fjölbreytt dag- skrá við hæfi allrar fjölskyldunnar. Félagar úr Loftfimleikaflokki Wuhan leika listir sínar og heimskunnir kín- verskir listamenn úr Þjóðlagahljóm- sveit Söngleikja- og dansstofnunar Wuhan flytja kínverska tónlist í bland við íslenska. Úr Kópavogi koma fé- lagar úr Skólahljómsveit Kópavogs og leika kínversk lög, Gerpla verður með fimleikasýningu og Xu Wen óp- erusöngkona syngur lög á íslensku og kínversku við píanóundirleik Önnur Rúnar Atladóttur. Trúðarnir Búri og Bína syngja vinsæl barnalög og leik- arar úr Þjóðleikhúsinu sýna brot úr söngleiknum Legi eftir Hugleik Dags- son. Þá mun Félag Kínverja á Íslandi sýna fornan kínverskan drekadans. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. hátíð er svo ókvenlegt.“ En um leið og ég fór út í leikstjórnina fann ég hvað það stækkaði mig sem leikara. Þá fór ég að skilja að það er enginn leik- stjóri sem lætur leikara leika. Það er frumkvæðið frá þeim sjálfum. Svo er það leikstjórans að halda utan um og hlúa að því sem er að fæðast hjá leikaranum.“ Fyrsta verkið sem Guðrún leik- stýrði var uppfærsla á Einu sinni á jólanótt þegar hún var um þrítugt. „Þetta var leikhópur sem kallaðist Litla leikfélagið og var stofnaður af nýútskrifuðum leikurum frá Leik- listarskóla Leikfélags Reykjavíkur. Þetta var algjört ævintýri því við vissum ekkert hvað við ætluðum að gera. Eina sem við vissum var að við ætluðum að frumsýna annan í jól- um,“ segir Guðrún hlæjandi og bæt- ir við að það hafi allt blessast. Skrifin eitt mesta ævintýrið Og Guðrún ríður svo sannarlega ekki við einteyming í leiklistinni því hún hefur ennfremur látið til sín taka í leikritaskrifum. „Ég held að það að skrifa sé eitt mesta ævintýrið. Fyrsta leikritið mitt var Kaj Munk sem var sýnt í Hallgrímskirkju. Það gekk al- veg ótrúlega vel. Þegar leikararnir byrjuðu hjá mér fengu þeir ekkert kaup, en svo gekk þetta svo vel að ég gat borgað þeim jafnmikið og ef þeir hefðu verið að vinna við Þjóð- leikhúsið. Við fórum til að mynda í leikferð til Danmerkur þar sem ég fékk verðlaun fyrir verkið.“ Af öðrum leikritum Guðrúnar má nefna Heil- aga syndara, sem sýnt var við góðan orðstír í Grafarvogskirkju þegar hún var rétt orðin fokheld fyrir tæpum áratug, og leikrit um Ólafíu Jóhanns- dóttur sem meðal annars var sýnt í Noregi. Eins og margir vita hefur trúin ávallt skipað stóran sess í lífi Guð- rúnar. Listakonan segir trúna ekki síður styrkja sig í listsköpuninni en á öðrum sviðum lífsins. „Hún hefur verið hvati að öllu sem ég geri. Hún var hvatinn að því að ég fór að skrifa því það var svo margt sem mig lang- aði að koma á framfæri. Ég man að margt trúað fólk sagði við mig að ég gæti ekki verið leikari og verið trúuð. En ég fann aldrei af hverju í ósköpun- um ég ætti ekki að geta verið leikari. Ég sagði við þetta fólk að Páll post- uli saumaði tjöld á virkum dögum, af því að hann kunni að sauma tjöld, og svo fór hann upp í helgidóminn til að predika um helgar. Leiklistin er það sem ég kann og ég þurfti að sjá fyrir mér,“ útskýrir Guðrún. Og hún seg- ir að Guð hafi staðið við bakið á sér þegar hún skrifaði sitt fyrsta leikrit, barnaleikritið Mér er alveg sama þó einhver sé að hlæja að mér, sem sýnt var í öllum grunnskólum landsins á seinni hluta áttunda áratugarins. Enginn snillingur í barnauppeldi Vinnutími leikara mun líklega seint teljast til þeirra fjölskyldu- vænstu. Blaðamanni leikur því for- vitni á að vita hvernig Guðrúnu hef- ur gengið að samræma vinnu og einkalíf þessa fimm áratugi í leik- listinni. „Ég veit ekki hvort það sé út af því að ég hef gengið í gegn- um tvo hjónaskilnaði,“ segir Guð- rún og kímir. „En hvað er að vera fjölskylduvænn? Ég get ekkert alveg lýst því. En þótt ég hafi ekki verið neinn snillingur í að ala upp börn þykir mér rosalega vænt um að tvö af mínum þremur börnum hafa far- ið út í listina, þau Ragnar og Sigrún Edda. Og miðbarnið mitt, Leifur Björn Björnsson, er í mjög kreat- ívri vinnu sem tölvunarfræðingur þar sem hann fæst við kennslu og er sömuleiðis einn af aðalmönnun- um hjá CCCP,“ segir Guðrún en það fyrirtæki bjó til hinn heimsþekkta tölvuleik Eve-Online. „Ég hafði eng- ar uppeldisaðferðir, ég bara kelaði nógu mikið við þau. En að eiga fjöl- skyldu hefur alltaf verið fyrir mér grunnurinn í lífinu. Svo tekst okk- ur ekki alltaf. Mér hefur ekki tekist í hverju einasta hlutverki, og mér tókst ekki tvisvar að halda hjóna- bandinu áfram þó svo allt benti til þess að það ætti að vera hægt. En nú er ég gift mínum þriðja eiginmanni og hann er sá allra besti, svo það er ekkert til að kvarta yfir,“ segir Guð- rún og hlær dátt. Eignaðist rödd án hjáleiða Athygli vakti þegar Guðrún tók sæti á framboðslista Frjálslynda flokksins fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar í fyrravor. Hún segist ekki hafa þurft að hugsa sig um þeg- ar Ólafur F. Magnússon, oddviti frjálslyndra í borginni, bað hana um að taka sæti á listanum. „Ég virti forkólfana, Ólaf og Margréti Sverrisdóttur, svo mikið og fannst þau svo frábærar og miklar hug- sjónamanneskjur að ég tók þessu með gleði. Þetta gekk mjög vel og það var stórkostlegt að vinna með þeim,“ segir Guðrún en hún var á meðal þeirra sem fylgdu Margréti þegar hún sagði skilið við Fráls- lynda flokkinn síðasta vetur og var með í að stofna Íslandshreyfing- una. Hún starfar þó enn sem borg- arfulltrúi fyrir Frjálslynda flokkinn í borginni og segir það alveg ganga upp, enda fái hún að vinna að sín- um hugsjónum þar. Aðspurð hvort hún sjái fyrir sér að hún hefði orðið stjórnmála- maður, ef hún hefði ekki valið fet- að listabrautina, segist Guðrún taka fram að það hafi aldrei blundað í sér eftirsjá að hafa valið leiklistina. „En það hrífur mig í pólitíkinni að eignast allt í einu rödd. Að sú rödd, sem maður hefur verið að reyna að framfylgja í leikritaskrifunum, kom- ist strax yfir. Þetta er hvetjandi æv- intýri að eignast rödd án nokkurra hjáleiða.“ kristjanh@dv.is viðtal ekki alltaf Frumkvæði leikara „um leið og ég fór út í leikstjórnina fann ég hvað það stækkaði mig sem leikara. Þá fór ég að skilja að það er enginn leikstjóri sem lætur leikara leika. Það er frumkvæðið frá þeim sjálfum.“ Arnþór Helgason Fjallar um þróun menningarsamskipta kína og Íslands undanfarna fimm áratugi. dV-MYNdIr ÁsgeIr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.