Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 59
Aftur í
Fast and
the Furious
Félagarnir Vin Diesel og Paul Walker
sem léku aðalhlutverkin í fyrstu Fast
and the Furious-myndinni eiga nú í
samningaviðræðum við Universal-
kvikmyndafyrirtækið um að leika í
fjórðu myndinni í röðinni. Walker lék
einnig í mynd númer tvö en Diesel
hefur ekki leikið í fleiri myndum fyrir
utan að bregða fyrir í þriðju
myndinni. Tökur á myndinni eiga að
hefjast í vor og fara fram í Los
Angeles, Mexíkó og Dóminíska
lýðveldinu. Justin Lin, Neal Moritz
og Chris Morgan sem gerðu þriðju
myndina snúa aftur í hlutverk
leikstjóra, framleiðanda og
handritshöfundar.
Föstudagur 5. október 2007DV Bíó 59
Styrkir
gamla skólann
Fyrrverandi glímukappinn og
leikarinn Dwayne „The Rock“
Johnson gerði sér lítið fyrir á
dögunum og gaf gamla skólanum
sínum eina milljón dala í styrk. Um
er að ræða háskólann í Miami en
peningarnir fara í að bæta ruðnings-
og íþróttaaðstöðu skólans. Dwayne
lék sjálfur ruðning eða amerískan
fótbolta með liði skólans fyrir rúmum
áratug og er með framlaginu sá
fyrrverandi nemi skólans sem hefur
styrkt hann mest. Þá verður klefi
ruðningsliðsins, sem heitir The
Miami Hurricanes, nefndur í höfuðið
á kappanum.
Endurgerir
The Party
Breski grínarinn Sacha Baron Cohen
mun leika Hrundri V í endurgerðinni
af myndinni The Party frá árinu 1968.
Það var meistari Peter Sellers sem sló
ógleymanlega í gegn í hlutverki
Hrundri í fyrstu myndinni og því ljóst
að það verða erfið fótspor fyrir Cohen
að feta. Myndin fjallar um Indverj-
ann Hrundri sem er gestur í
glæsilegu Hollywood-samkvæmi og
tekst á einhvern ótrúlegan hátt að
gjörsamlega eyðileggja allt.
FRUMSÝNINGAR HELGARINNAR
Stardust
stjörnum prýdd ævintýramynd
sem var tekin upp að hluta til
hér á landi. ungur maður lofar
sinni heittelskuðu að ná í
stjörnu sem féll til jarðar. Hann
ratar inn í töfraheim og áttar
sig á því að hann er ekki sá eini
sem er á eftir stjörnunni.
IMDb: 8,1/10
Rottentomatoes: 74%
Metacritic: 66/100
The 11th Hour
Heimildarmynd sem er framleidd af
Leonardo diCaprio. Hann er einnig
sögumaður myndarinnar en hún
fjallar um skaðleg áhrif mannverunn-
ar á jörðina og lífríki hennar. Í
myndinni er talað við ótal vísinda-
menn og möguleikarnir ræddir hvað
sé hægt að gera til að draga úr
mengun og skaða.
IMDb: 6,6/10
Rottentomatoes: 67%
Metacritic: 63/100
Halloween
rokkhundurinn og hroll-
verkjuleikstjórinn rob Zombie
er hér með sína eigin túlkun á
hinni klassísku hryllingsmynd
Halloween frá árinu 1978.
Hann túlkar söguna á sinn
eigin hátt og gerir hlutina
upp á nýtt.
IMDb: 6,1/10
Rottentomatoes: 25%
Metacritic: 47/100
fyrstu þremur Halloween-mynd-
unum en eftir það var rétturinn á
Halloween-sögunni og helstu per-
sónu hennar, Michael Myers, seld-
ur. Í kjölfarið komu kvikmyndirnar
Halloween 4: The Return of Mi-
chael Myers og Halloween 5: The
Revenge of Michael Myers. Báðar
þóttu með afbrigðum slakar en í
myndunum eltist Michael við unga
frænku sína, dóttur Laurie, sem
leikin er af Jamie Lee.
Dimension Films tekur við
Árið 1995 keypti kvikmyndafyr-
irtækið Dimension Films réttinn á
Halloween. Dimension var þá und-
ir kvikmyndarisanum Miramax og
var ákveðið að setja meira púður í
næstu Halloween-mynd. Myndin
sem gerð var heitir Halloween: The
Curse of Michael Myers, sem fjall-
aði að miklu leyti um uppruna My-
ers og sögu hans. Árið 1998 ákvaðu
svo Dimension-menn að gera aðra
Hallo-
ween-mynd, á 20 ára afmæli kvik-
myndarinnar en það er myndin
H20. Fjórum árum seinna gerðu
þeir svo Halloween: Resurrect-
ion. Báðar þær myndir voru fram-
leiddar í sama stíl og þær hryll-
ingsmyndir sem Dimension hafði
framleitt nokkrum árum áður, en
þar ber helst að nefna kvikmynd-
ina Scream. H20 sló í gegn víða
um heim og halaði inn rúmlega
120 milljónum Bandaríkjadala úti
um allan heim, en myndin kostaði
aðeins 17 milljónir dollara í fram-
leiðslu. Halloween Ressurrection
gekk ekki jafnvel, en tekjur af henni
voru rúmar 37 milljónir dollara og
kostaði myndin um 33 milljónir í
framleiðslu.
Fimm árum síðar og allt að
verða vitlaust
Kvikmyndin sem frumsýnd er
í kvöld er leikstýrt af engum öðr-
um en rokkaranum Rob Zombie,
sem hefur áður gert myndir á borð
við House of 1000 Corpses og The
Devils Reject. Það var framleið-
andinn Bob Weinstein sem bauð
Rob Zombie að endurgera
Halloween. Rob er mikill að-
dáandi bæði myndanna og
leikstjórans John Carpent-
er. Rob vildi því fá blessun
Carpenters, áður en ráð-
ist yrði í upptökur á mynd-
inni. Blessunina fékk hann
og einnig þau heillaráð að
hann skildi gera sína eigin
Halloween mynd og ekki
vera of upptekin af því að
fylgja þeirri fyrstu eftir. Rob
tók ráðum Carpenters og segja
þeir sem séð hafa myndina hana
eiga lítið skylt við þá fyrri.
Rob mannar allar stöður
Rob er ekki aðeins leikstjóri
myndarinnar, heldur er hann
einnig handritshöfundur hennar,
framleiðandi og hefur yfirumsjón
með tónlistinni. Rob sagði í viðtali
skömmu áður en myndin kom út
að hans helsa markmið í myndinni
væri að finna persónuna Michael
Myers upp, upp á nýtt, en Rob tel-
ur Michael vera goðsagnakennda
persónu í hryllingmyndageiran-
um í sama flokki og Freddy Kru-
eger, Jason Voorhees og Pinhead.
Í myndinni er kafað djúpt í fortíð
Michaels. Áhorfendur fá að vita
allt um grímuna sem hann ber og
afhverju hann hann ber hana, auk
annarra smáatriða.
Arðbærasta Halloween
myndin hingað til
Halloween var frumsýnd þann
31.ágúst. Hún halaði inn 31millj-
ónum dollara á fyrstu helgi sinni og
58 milljónum í heildina. Það ger-
ir hana að arðbærustu Halloween
myndinni hingað til. Framleið-
andinn Bob Weinstein segir held-
ur ólíklegt að hann muni framleiða
aðra Halloween mynd. „Ég segi
aldrei, aldrei en það yrði að vera
afar sérstakt verkefni, ólíkt hinum.“
Halloween er frumsýnd í kvöld og
er sýnd í Smárabíói, Háskólabíói og
Regnboganum.
John Carpenter Leikstýrði fyrstu þremur myndunum
og sagði rob Zombie að gera eigin útgáfu af
Halloween og sleppa því að fylgja fyrstu myndinni.
Michael Myers Í nýju myndinni er saga
morðingjans Michaels Myers rakin.
Jamie Lee Curtis Hefur leikið í 3 Halloween-
myndum, þar á meðal tveimur fyrstu myndunum.