Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 36
FH og Fjölnir mætast í í úrslit- um VISA-bikarkeppni karla á laug- ardaginn klukkan 14. Liðin hafa átt ólíku gengi að fagna undanfarin ár. FH-ingar hafa verið lengi í toppbar- áttu Íslandsmótsins en Fjölnismenn náðu á leiktíðinni sínum besta ár- angri á Íslandsmóti þegar liðið vann sig upp í úrvalsdeild. Mikið hefur verið rætt um láns- mennina Atla Viðar Björnsson og Heimi Snæ Guðmundsson sem eru í láni hjá Fjölni frá FH. Fjölnismenn gerðu sér vonir um að spila þeim köppum í leiknum en FH-ingar gáfu ekki leyfi fyrir því. Að öðru leyti eru allir leikmenn liðanna heilir heilsu. Sóknarleikurinn í fyrirrúmi? Tryggvi Guðmundsson, sóknar- maður FH-inga, býst við opnum og skemmtilegum leik. „Við munum koma til með að sækja stíft í þessum leik. Við förum ekkert að breyta út af venjunni, við höfum alltaf reynt að spila sóknarbolta. Ég held að vísu að við séum að fara að mæta öðru liði sem hugsar alveg eins, þannig að við gætum fengið opinn og skemmti- legan leik. Ég hef heyrt að Fjölnis- menn séu mikið sóknarlið og þeir leikir sem Fjölnir spilar eru yfirleitt með mikið af mörkum í, svona 2-5 mörk. Einnig þekki ég mikið af þess- um strákum sem eru í liðinu því þeir æfðu með FH. Þeir eru með öflugt lið,“ segir Tryggvi. Ólafur Jóhannes- son, þjálfari FH, er hvergi banginn fyrir leikinn. „Við munum spila þann fótbolta sem við höfum leikið undanfarin ár. Við munum pressa þá hátt á vellin- um og gera það sem við erum van- ir að gera. Ég hef séð Fjölni spila, þetta er ágætlega skipað lið og með- al þeirra eru nokkrir leikmenn sem hafa fína reynslu úr úrvalsdeildinni. Það eru margir leikmenn sem við þurfum að vita af hjá þeim. Við erum náttúrlega með reynslu- mikla leikmenn sem hafa unnið og vita út á hvað svona úrslitaleik- ir ganga. Núna erum við að jafna okkur á því að tapa Íslandsmótinu, en það var ákveðið í vikunni að við myndum einbeita okkur að þessum leik og hætta að hugsa um það. Við verðum tilbúnir í leikinn,“ segir Ól- afur Jóhannesson, þjálfari FH. Erum litla liðið Magnús Ingi Einarsson, fyrirliði Fjölnis, veit að erfiður leikur er fyrir höndum. Það er ljóst að líkurnar eru FH-megin í þessum leik og það þarf engan fótboltaspeking til þess að átta sig á því. Ég veit ekki hver Lengjustuð- ullinn verður en auðvitað eiga þeir meiri möguleika. Það sem við gerum er í fyrsta lagi að reyna að hafa gam- an af þessu. Það bjóst enginn við því að við myndum ná svona langt. Við erum þegar búnir að gera betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona og því komum við alveg afslappaðir inn í leikinn. Það hefur verið mikil umræða um þessa tvo leikmenn (Atla Viðar Björnsson og Heimi Guðmundsson) og að sjálfsögðu munum við sakna þeirra. Flest lið á landinu myndu sakna þessara tveggja leikmanna og að sjálfsögðu hefur þetta áhrif á okk- ur. En það kemur maður í manns stað og þeir leikmenn sem koma inn í liðið eru góðir leikmenn. Það hefur orðið ákveðin vakning í Grafarvogi og þetta er í fyrsta skipti sem félagið hefur komist svona langt í bikar og ég geri fastlega ráð fyrir því að það mæti ekki færri á leikinn en gerðu á undan- úrslitaleikinn,“ segir Magnús. Ásmundur Arnarsson gerir sér fulla grein fyrir því að Fjölnir á erfiðan leik fyrir höndum. „Möguleikar Fjöln- is eru ekki mikilir. Sjálfsagt svipaðir og að við myndum vinna í lottóinu. En fótbolti er nú einu sinni þannig að allt er hægt. Vonandi náum við hörkuleik þannig að þetta verði ekki einstefna allan leikinn þar sem FH vinnur sann- færandi sigur. Þessi leikur hefur í sjálfu sér verið ofarlega í huga okkar að undanförnu. Við hvíldum sjö fastamenn í síðasta leiknum í deildinni. Þar sem voru tveir í banni, fjórir tæpir á spjöldum og einn í meiðslum. Við vildum ekki taka neina áhættu fyrir bikarúrslita- leikinn og það verða allir til taks. Heilt yfir kemur alltaf maður í manns stað. Vissulega hafa þessir tveir leikmenn, sem ekki verða með, verið okkur mikilvægir, en við verð- um væntanlega ellefu í upphafi leiks og það skiptir mestu. Hjá FH eru ellefu einstakling- ar sem allir hafa miklinn styrk og við þurfum að leggja áherslu á að stöðva vel flesta þeirra. Geta flestra þeirra leikmanna er ofar okkar. Þetta verð- ur því erfitt og við þurfum sérstaklega að leggja áherslu á að stöðva þá sókn- arlega og þess vegna reynum við að vera sterkir varnarlega. Við reynum að nálgast þennan leik á eilítið ann- an hátt en við höfum gert hingað til, þetta eru klárlega sterkari andstæð- ingar en við höfum fengist við hingað til. Hins vegar munum við í grunninn reyna að halda okkur við okkar leik- skipulag,“ segir Ásmundur. vidar@dv.is Föstudagur 5. október 200736 Sport DV Allir búAst við FH og Fjölnir mætast í bikarúrslitaleik VISA-bikar- keppninnar á Laugardalsvelli á laugardag: Tryggvi Guðmundsson og Magnús Ingi Einarsson kljást um bikarinn. Ásmundur Arnarsson Þjálfari Fjölnis telur sitt lið eiga litla möguleika gegn FH. Ólafur Jóhannesson segir Fjölni með ágætlega mannað lið. Daði Freyr Sverrir Tommy Guðmundur Davíð Sigurvin Ásgeir Matthías V. Tryggvi Matthías G. Þórður Magnús Ásgeir Ragnar Gunnar V. ÓlafurGunnar M. Pétur ÓmarDavíðTómas LÍKLEG BYRJUNARLIÐ Fjölnir FH sigri FH Upplýsinga- og tölvusvið Stafræn ljósmyndun Kennari: Hrönn Axelsdóttir Tímasetning: 18 kennslust. námskeið, 18. og 25. okt. og 1. og 8. nóv., kl. 18-21. Staðsetning: Iðnskólinn í Reykjavík, tölvuhús, stofa 621. Lýsing: Farið verður yfir grunnatriði stafrænna myndavéla, samspil ljósops, hraða og ISO og áhrif þess á myndir. Áhrif linsa á rýmið. Æfingar verða gerðar í tíma, einnig verða heimaverkefni gerð sem eru tengd yfirferð. Helstu leiðréttingar í Photoshop. Nemendur þurfa að eiga eða hafa aðgang að stafrænni myndavél sem hefur manual fókus. Námsefni: Hefti frá kennara með helstu upplýsingum um ljósop, hraða, ISO. Photoshop, lagfæringar á myndum. Verð: 19.000 kr. Python forritun Kennari: Andri Mar Jónsson, forritari hjá CCP. Tímasetning: 30 kennslust. námskeið kennt lau. 20. okt., 27 okt. og 3. nóv. kl. 9–16 alla dagana. Staðsetning: Iðnskólinn í Reykjavík, tölvuhús, stofa 633. Lýsing: Grunnatriði Python forritunarmálsins kynnt og æfð með fjölda verkefna. Forkröfur: Grunnþekking á einhverju forritunarmáli Námsefni: Frá kennara. Verð: 30.000 kr. SKRÁNING Á WWW.IR.IS/NÁMSKEIÐ UPPLÝSINGAR Í SÍMA 522 6500.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.