Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 10
Föstudagur 5. október 200710 Helgarblað DV
og litríka ævi. Þrátt fyrir að líf henn-
ar hafi verið sveipað dulúð eignað-
ist hún marga vini á lífsleiðinni og
margir þeirra eru meðal ríkasta fólks
veraldar. Sögur af samskiptum henn-
ar við karlmenn eru margar og óljóst
þykir hversu margar þeirra eru sann-
ar. Ljóst er þó að Sonja átti í eldheitu
ástarsambandi við gríska skipakóng-
inn Aristotle Onassis, sem síðar giftist
Jacqueline Kennedy. Síðar gekk hún
í hjónaband með Argentínumannin-
um Alberto Zorrilla, myndarlegum
ólympíu- og heimsmethafa í sundi
og hæfileikaríkum tangódansara, og
eru þau bæði jörðuð hér á landi.
Alla tíð fylgdi Sonja þeirri skoð-
un sinni að konur ættu að taka ör-
lög sín í eigin hendur. Hún bjó yfir
miklu hugrekki og frelsisþrá, stund-
aði myndlist, ræktaði með sér ótví-
ræða viðskiptahæfileika og varð vell-
auðug. Síðustu æviárin bjó hún að
mestu á Seltjarnarnesinu þar sem
hún hafði útsýni til fjalla. Hún hafði
gefið þau fyrirmæli að eftir andlátið
skyldi auður hennar að mestu renna
í minningarsjóðinn.
Greiðslur eða ekki greiðslur?
Tveir sjóðsstjórar voru settir yfir
Minningarsjóð Sonju, þeir Guð-
mundur Birgisson, frændi Sonju, og
John Ferguson, lögfræðingur Sonju
í Bandaríkjunum. Báðir hafa þeir
gefið þau svör að sjóðurinn hafi tak-
markað fjármagn til styrkveitinga.
Hvorugur þeirra hefur viljað veita
upplýsingar um bolmagn sjóðsins til
styrkveitinga, stofnfé hans eða ávöxt-
unarleiðir.
Síðla árs 2006 urðu sjóðsstjór-
arnir tvísaga um úthlutanir sjóðsins,
Guðmundur tilkynnti þá að úthlutað
hefði verið úr sjóðnum en Ferguson
neitaði því. Í kjölfarið sagðist Guð-
mundur ekki fylgjast svo náið með
sjóðnum og úthlutunum.
Snemma á þessu ári lýsti Banda-
ríkjamaðurinn því svo yfir að loksins
hefði verið úthlutað úr sjóðnum og
allir á Íslandi ættu að verða ánægð-
ir yfir því. Jafnframt tilkynnti hann að
ekkert yrði greitt úr sjóðnum næstu
þrjú árin því búið væri að ráðstafa
öllu styrktarfénu úr honum. Að-
spurður vildi Ferguson hvorki gefa
upp hve miklu hefði verið úthlutað
né til hverra var úthlutað. Þrátt fyr-
ir yfirlýsingarnar í upphafi árs hafa
engar greiðslur skilað sér til íslenskra
styrktarfélaga.
Ekki skráður á Íslandi
Sjóðsstjórarnir tveir segja sjóð-
inn einkasjóð, starfandi í Banda-
ríkjunum, þannig að um hann gildi
ákveðnar reglur og fyrir vikið séu
þeir ekki skuldbundnir til að veita
upplýsingar. Báðir hafa þeir sagt að
skattaflækjur hafi tafið fyrir og komið
í veg fyrir úthlutanir. Hjá íslenskum
skattayfirvöldum fengust þær upp-
lýsingar að engar laga- eða skatta-
flækjur væru til staðar sem skýrðu að
svo langur tími væri liðinn frá stofn-
un sjóðsins án þess að úthlutað væri
úr honum.
Minningar- og styrktarsjóðir hér á
landi falla undir dómsmálaráðuneyt-
ið. Bryndís Helgadóttir, lögfræðing-
ur á lagaskrifstofu dómsmálaráðu-
neytisins, segir engar upplýsingar
um Minningarsjóð Sonju að finna
hjá ráðuneytinu. „Ef þess er óskað
geta sjóðir sótt um staðfestingu hjá
ráðuneytinu, það er hins vegar engin
skylda og því hefur ráðuneytið ekki
yfirlit yfir alla sjóði. Við vitum ým-
islegt um sjóði sem eru skráðir hjá
okkur en um aðra vitum við ekkert,“
segir Bryndís.
Botna ekki í þessu
Ragna Marinósdóttir, fram-
kvæmdastjóri Umhyggju, félags til
stuðnings langveikum börnum, skil-
ur ekki hversu erfiðlega gengur fyrir
íslensk styrktarfélög að fá úthlutað
úr sjóðnum. Aðspurð segist hún ekki
vita um neitt félag hér á landi sem hafi
fengið greiðslu úr sjóðnum. „Þetta er
ofboðslegur frumskógur og við erum
eiginlega á sama stað og í upphafi
þegar við sóttum um. Við erum þau
fyrstu sem sóttum um og ég veit ekki
um neinn sem hefur fengið styrkinn.
Fyrir löngu síðan fengum við loforð
um úthlutun úr sjóðnum en höfum
ekki fengið neitt ennþá og ekkert að
gerast. Það er orðið svo langt síðan
að ég er hreinlega búin að gleyma því
hversu miklu okkur var lofað,“ segir
Ragna.
Sigríður Sigurbergsdóttir, for-
maður Thorvaldsensfélagsins, tekur
undir og segist lítið skilja í því hvers
vegna styrkir úr sjóðnum séu ekki
greiddir út. Hún veit heldur ekki til
þess að nokkurt félag hér á landi
hafi hlotið styrk. „Við höfum enga
krónu fengið enn. Við höfum verið í
töluverðum bréfaviðskiptum við þá
en ekkert komið út úr því. Þeir biðja
alltaf um meira og meira og maður
er eiginlega hættur að botna í því
um hvað málið snýst,“ segir Sigríð-
ur.
Sonja Wendel Benjamínsson de
Zorrilla varð vellauðug á lífsleið
sinni og margir vina hennar eru
meðal ríkasta fólks veraldar. Hún
hafði yfirburðaþekkingu á al-
þjóðlegum verðbréfamörkuðum
og hagnaðist gífurlega á slíkum
viðskiptum.
Sonja átti í eldheitu ástar-
sambandi við gríska skipakóng-
inn Aristotle Onassis, sem síð-
ar giftist Jacqueline Kennedy,
og gekk síðar í hjónaband með
Argentínumanninum Alberto
Zorrilla, myndarlegum ólympíu-
og heimsmethafa í sundi og hæfi-
leikaríkum tangódansara.
Sonja var sannur heimsborg-
ari en síðustu æviárin bjó hún
á Seltjarnarnesinu þar sem hún
naut fjallasýnar. Hún lést í mars
2002 og lét eftir sig mikil auðæfi
sem hún vildi að rynnu til hjálpar
börnum.
Ekkert bólar á greiðslum úr
Minningarsjóði Sonju Zorrilla,
Sonja Foundation, sem stofnaður
var árið 2002. Samkvæmt erfða-
skrá tilgreindi hún að auðæfi
hennar og eigur skyldu að mestu
renna í sjóð til styrktar námi og
heilbrigði barna hér á landi og í
Bandaríkjunum. Í dag eru rúm
fimm ár liðin frá stofnun sjóðsins
án þess að nokkuð sé vitað opin-
berlega um úthlutanir.
Sonja Wendel Benjamínsson
de Zorrilla lést 22. mars 2002,
85 ára að aldri. Minningarsjóð-
ur hennar var stofnaður nokkru
síðar með það meginhlutverk að
styrkja börn á Íslandi og í Banda-
ríkjunum til náms og heilsu. Með
þessu móti vildi hún tryggja að
eigur hennar yrðu til góðs. Frá
stofnun sjóðsins hefur verið hljótt
yfir honum og fjöldi viðmælenda
DV undrast hvers vegna sjóður-
inn, sem hafi það göfuga mark-
mið að hjálpa börnum, starfi í
slíkri kyrrþey. Að minnsta kosti
bólar enn ekkert á greiðslum úr
honum og litlar sem engar upp-
lýsingar fást um úthlutanir.
Áhyggjufullir vinir
Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur var vinur Sonju og
deildu þau ómældum áhuga á
listum. Hann segir marga vini
hennar furða sig á því hvað hafi
orðið um minningarsjóðinn. „Nú
átti Sonja glæsilegt safn listaverka
með mörgum heimsþekktum
listamönnum. Samkvæmt erfða-
skrá hennar átti að selja verkin
og andvirði þeirra átti að renna
í minningarsjóðinn til styrkt-
ar börnum. Það er ekki bara ég
heldur fleiri sem velta því fyrir sér
hvað hafi orðið um auðæfi henn-
ar og sjóðinn. Það fást engar skýr-
ingar á því,“ segir Aðalsteinn.
Sveinn Einarsson, fyrrver-
andi þjóðleikhússtjóri, er annar
af vinum Sonju sem hefur spurst
fyrir um afdrif sjóðsins en án ár-
angurs. Hann segir suma ætt-
ingja hennar hafa áhyggjur af því
hvort hlutverks sjóðsins sé nægj-
anlega vel gætt. „Ég veit ekkert
um hvað hefur orðið af sjóðnum.
Sonja vildi stofna þennan göfuga
sjóð og það var kynnt eftir andlát
hennar. Síðan veit ég ekkert meir
og ég velti því fyrir mér hvers
vegna maður fréttir ekki meira af
þessu. Ég hef nokkrum sinnum
spurst fyrir um þetta en er engu
nær,“ segir Sveinn.
Sveipuð dulúð
Sonja þótti afar fögur og hríf-
andi kona sem hafði gaman af
að umgangast fólk og átti langa
TrauSTi hafSTEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Sjóðurinn Sem týndiSt
Sveinn Einarsson
Vinur sonju til margra ára segir það
hafa verið hjartans mál sonju að
stofna sjóð til hjálpar börnum.
Sonja Zorrilla
Heimskonan átti sér þann
draum að auður hennar
kæmi börnum að gagni.
Eftir andlát Sonju Zorrilla var stofnaður sjóður
úr auðæfum hennar til styrktar börnum á Íslandi
og í Bandaríkjunum. Rúmum fimm árum síðar er
ekkert vitað um úthlutanir sjóðsins og engar
upplýsingar fást frá sjóðsstjórum. Annar þeirra
segist vera búinn að greiða út til íslenskra styrkt-
arfélaga en enginn kannast við slíkar greiðslur.