Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Qupperneq 18
Afturgöngur Svarthöfði er afskaplega hrifinn af hvers konar dulspeki og hefur í gegnum tíðina á stund- um reynt að ná sambandi við heim hinna horfnu. En það hefur reynst erfitt að ná sambandi. Eitt sinn í bernsku Svarthöfða kom þó upp tilvik þar sem hann sá afturgöngu um miðja nótt í kolniðamyrkri. Reynslan setti mjög mark sitt á það sem eftir lifði barnæskunnar og varð til þess að tilvist annars heims er í aðra röndina viðurkennd. Það yljar mjög að heyra viku-legar umræður Magnúsar Skarphéðinssonar, miðils og formanns Sálarrannsóknafélagsins, við Birgi Baldursson, stjórnarmann Vantrúar, á Bylgjunni. Vantrúarmað- urinn er algjörlega á þeirri skoðun að andatrú sé byggð á ruglinu einu en Magnús sannfærður um líf eftir dauðann og tengingu við efnisheim- inn. Magnús þekkir fjölmörg dæmi um dulræna atburði sem hafa komið upp á jörðu niðri. Og hann veit að það eru líka til geimverur sem gera sig heimakomnar í hinni annars jarðbundnu Reykjavík. Frægt er þeg- ar par nokkurt var á heimleið eftir Miklubraut og þurfti að stöðva á rauðu ljósi. Eins og allir vita er tíminn afstæð- ur eftir því í hvaða vídd maður er að þvælast. Þar sem fólkið beið á rauðu ljósi gerðust þau undur og stórmerki að þau voru allt í einu komin inn í ein- hvers konar geimfar þar sem þau voru skoðuð í hvívetna án þess þó að vera sköðuð. Um það leyti sem græna ljósið kviknaði á götuvitan- um voru þau aftur komin í bifreiðina en atburðurinn stóð þeim ljóslifandi fyrir augum og gerir enn. Formað- ur Vantrúar trúir ekki þessu fólki en Magnús er sannfærður. Svarthöfði er þarna mitt á milli og vill gefa par- inu séns. Strax þegar þau gáfu yfirlýsinguna um brottnám- ið hefði átt að taka úr þeim blóðprufu og láta fara fram ítarlega geðrannsókn. Að þeim niðurstöðum fengn- um er Svarthöfði tilbúinn að taka afstöðu. Þekkt er að einföld lyf geta kallað fram sterkar skynvillur svo ekki sé tal- að um LSD eða slík efni. Svarthöfði þekkir mörg dæmi um að fólk í rússi trúir því sem það upplifði í vímunni. En það er engin ástæða til að hafna öllu sem er dulrænt þótt menn hafi ekki reynt á eigin skinni. Við vitum að lífið er fullt af ráðgátum á borð við hvaðan við kom- um og hvert við förum. Þess vegna er farsælt að halda sem flestu opnu. Þótt Svarthöfði samþykki endilega að geimfar veiði fólk á Miklubrautinni er alveg hægt að fallast á að fram- liðnir eigi möguleika á að tengjast efnisheiminum. Stundum er ágætt að trúa einhverju en aðalatriðið er að taka öllu með opnum huga og fordómalaust. Svarthöfði hefur ekki hugmynd um hvort vofa bernskunn- ar var raunverulegur draugur eða ofskynjun af einhverju tagi. En það skiptir engu máli. Svarthöfða hugnast illa að breytast í mold án þess að eiga minnstu möguleika á framhaldi. Lífið er skemmtilegra ef vonin er til staðar. Annars er allt þetta ströggl tilgangslít- ið og vonlaust. föstudagur 5. október 200718 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm. fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. aðaLnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010, Áskriftarsími 512 7080, augLýsingar 512 70 40. svarthöfði Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Ef einhvern tíma ber að lækka skatttekjurnar er það í árferði sem nú. Lægri skatta Leiðari Geir H. Haarde hefur opnað á að skattar verði lækkaðir. Ef einhvern tíma hefur verið staða til að lækka skatta er það nú. Hið opinbera gerist sífellt gráðugra og mál er að draga úr endalausum vexti ríkis og sveitarfé- laga. Á skömmum tíma hefur hið opinbera aukið hlut sinn í þjóðartekjunum úr rétt um þriðjungi og í næstum helming. Þetta er óþarft og sérstaklega á meðan lægstu launatekjur eru skattlagðar. Það fólk sem hefur lægstu launin ber ekki ábyrgð á þenslu og það ber ekki ábyrgð á verðbólgu. Ef einhvern tíma ber að lækka skatttekjurnar er það í árferði sem nú, þegar ríkissjóður hefur meira en nóg. Jafnvægi er mikils virði og eflaust er það vandi stjórnvalda að sjá til þess að auðlegðin verði ekki til þess að raska því jafnvægi sem er. Með vaxandi veltu í samfélaginu hafa tekjur hins opinbera stóraukist. Á ekki löngum tíma hefur hluti hins opinbera í þjóð- artekjum aukist úr rétt um þriðjungi og er að ná því að vera helmingur af þjóðartekjum. Þetta er mikið og sennilega allt of mikið. Það er ekki bara að skatttekjur hafi aukist, alls kyns gjöld og tollar eru stór tekjuliður hjá hinu opinbera. Lag ætti að vera til að standa við gefin loforð um niðurfellingu hinna fáránlegu stimpilgjalda. Ef ekki er rétt að lækka skatta verulega má draga úr gjöldum og tollum. Svo mikið er víst að endamörk auðssöfnunar rík- issjóðs hljóta að vera fram undan. Ríkissjóður er jú sameign okkar og eflaust er sterkur vilji með- al okkar að auðlegðin verði meðal annars notuð til að koma á móts við þau sem ekki njóta öryggis eða velsældar. Geir H. Haarde lofaði í stefnuræðu sinni að bætt yrði úr því sem miður hefur farið í velferðarmálum. Við það verður hann að standa. Öll efni eru til þess. Peninga vantar ekki og verkefnin eru næg. Ekki leikur vafi á að staða ríkissjóðs er góð. Vandasamt er að stjórna þegar vel árar, ekki síður en þegar illa árar. Eflaust verður að fara varlega en það þýðir ekki að ekki megi ráðast að mestu meinunum, skött- um á lægstu tekjum, leiðréttingu lægstu launa, átaki vegna bið- lista í heilbrigðismálum og laga til svo fólk fáist til að starfa við umönnun og aðhlynningu. Sú staðreynd að hið opinbera sjúgi til sín alltaf meira og meira getur ekki verið eðlileg og ekki heilbrigð. Frjálshyggjumennirn- ir sem stjórna fjármálum þjóðarinnar finna eflaust leiðir til að stemma stigu við þeirri þróun. DómstóLL götunnar Hverjir verða bikarmeistarar, FH eða Fjölnir? „Það er engin spurning að fH-ingar vinna þennan leik. Ég spái því að úrslitin verði 4–0. Það er samt gott hjá fjölnismönnum að komast þetta langt.“ Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður á besta aldri „Ég verð að segja fH enda bý ég í Hafnarfirði.“ Kristín Björg Pétursdóttir, 33 ára lögfræðingur „Ég veit ekki hverjir vinna þetta. Hef ekki fylgst nógu vel með til þess að spá um það.“ Kristófer Már Harðarson, 15 ára nemi „Ég held að fH vinni þetta. annars bý ég á skaganum og held þess vegna með ía.“ Guðmundur Garðar Brynjólfsson, 21 árs nemi sanDkorn n Frjálslyndir eru lítt hrifnir af setu Margrétar Sverrisdótt- ur, fyrrverandi flokksmanns, í borgarstjórn undir þeirra merkjum. Margrét situr í fjar- veru Ólafs Magnússon- ar en er fyrir löngu gengin til liðs við Íslandshreyfinguna. Sjálf var Margrét lítt hrifin af því þegar Gunnar Örlygsson gerðist lið- hlaupi og fór í Sjálfstæðisflokk- inn þar sem pólitískur dauð- dagi hans var síðar staðfestur. Margrét, sem þá var fram- kvæmdastjóri frjálslyndra, fór mikinn vegna liðhlaupans og kvartaði meðal annars til um- boðsmanns Alþingis en er nú í sömu sporum og Gunnar. n Svo virðist sem fjari hratt undan Vilhjálmi Þ. Vilhjálms- syni í eigin borgarstjórnar- flokki. Sér- staklega er borgarstjór- inn gagn- rýndur fyrir einræðis- tilburði varðandi málefni Orkuveitu Reykjavíkur. Það sýður á sam- herjum hans og það er talið að Gísla Marteini Baldurs- syni hugnist ágætlega. Nú á hann von um frekari áhrif og uppreisn eftir að hafa tap- að fyrir Vilhjálmi í prófkjöri. Vandi hans er aðeins sá að hin harðsnúna Hanna Birna Kristjánsdóttir er á undan í goggunarröðinni og næst til oddvitasætisins þegar Vil- hjálmur hverfur af sviðInu. n Nú er í tísku hjá auðmönn- um að fara með heilu þotu- farmana af fólki til útlanda. Samsonarn- ir Björgólf- ur Guð- mundsson og Magn- ús Þor- steinsson hafa leitt þessa útrás skemmtana- glaðara Íslendinga. Vefsíðan mannlif.is sagði frá slíkri ferð til Mílanó þegar Landsbankinn bauð 200 bestu viðskiptavin- um sínum í lúxusferð til þess að horfa á ballettinn Don Kík- óta í Scala-óperuhúsinu. Lúx- usferðin varð þó ekki alveg sá dans á rósum sem lagt var upp með því tafir og hungur ein- kenndu ferðina. Ferðin góða reyndi því töluvert meira á en ferðalangarnir reiknuðu með eða eins og einn þeirra orðaði það við Mannlíf: „Þetta hefði svo sem verið ágæt ferð, ef þú hefur áhuga á ballett, ef ekki var þetta frekar þreytandi.” LeiðréttinG bæjarverkstjórinn í ólafsfirði, gísli kristinsson, var ranglega titlaður í sérblaði gærdagsins um ljósmyndir. gísli er frábær ljósmyndari og eflaust góður bæjarverkstjóri líka. bæjarstjóri er hann hins vegar ekki enn sem komið er. og geimverur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.