Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Qupperneq 20
föstudagur 5. október 200720 Umræða DV Verndum íslenskuna „Merkilegasti viðburðurinn á íslenskan mælikvarða er enn ein sönnun þess að við eigum að virkja erlendis áður en við tökum dýrmætustu náttúruperlurnar okkar hér á landi. Þannig er að ég fékk nýja, vandaða yfirlitsbók um hundrað undur veraldar nú fyrir stuttu en aðeins tuttugu þeirra eru í Evrópu og flest þeirra eru byggingar. Þegar ég opnaði þessa glæsilegu bók voru fyrstu tvö undrin norsku firðirnir og hinn eldvirki hluti Íslands, það er að segja svæðið með eldfjöllunum og jöklunum. Við eigum gríðarlega möguleika á að verða forystu- þjóð í virkjunum á erlendum orkulindum en þar liggja okkar stóru tækifæri að mínu mati.“ „Við höfum alveg eins efni á að vernda íslenskuna eins og aðrar smáþjóðir, sem eru ekkert síðri í samkeppni á almennum viðskiptamarkaði. Þingið kom saman í vik- unni en nú eru tveir mjög sterkir flokkar í meirihluta, þrátt fyrir það er engan veginn hægt að spá um hvenær jarðvegur mynd- ast fyrir aukna andstöðu, þar með, okkar hreyfingu. Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar Uggvænlegt ástand á leigumarkaðnum „Setningu þingsins og stefnuræðu forsætisráðherra bar líklega hæst í vikunni og sú óvænta staða að það skuli vera 72 milljarðar í tekjuafgang samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Það vekur vissulega spurningar um hvernig með skuli farið. Ég vona að menn hafi vit á að nota ekki peningana í að lækka skatta, eða annað þensluhvetjandi heldur byggi upp velferðarkerfið eða ávaxti þetta fé til mögru áranna. Annars var stefnuræðan bara eins og við var að búast. Einnig tók ég eftir frétt um ástandið á leigumarkaðnum. Húsaleigan hækkar og líka vanskil heimilanna. Verðið á leigumarkaðnum er mjög alvarlegt þar sem að það er yfirleitt tekjulægsta fókið sem ekki hefur efni á að kaupa sér þak yfir höfuðið. Áhugavert þótti mér að sjá könnun frá SÁÁ um að drykkjuvenjur okkar væru að breytast. Tíðindi næstu daga hjá mér eru hins vegar þau að ég er að gefa út mína fyrstu ljóðabók, ljóðin hef ég skrifað síðustu þrjá- tíu árin. Bókin heitir Vestanvindur. Það er vissulega svolítið hjartabank sem fylgir því að gefa út þessa bók.“ Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur Sundurleit stjórnarandstaða „Þar sem ég er nú alþingiskona kom þingið saman á mánudaginn við hátíðlega athöfn. Það er mjög spennandi vetur fram undan því þetta er fyrsti veturinn sem ný ríkisstjórn fer af stað. Það er greinilegt að hún hefur mikinn stuðning á bak við sig og mikinn meirihluta. Að sama skapi virðist stjórnarandstaðan ekki hafa náð vopnum sínum því hún virðist sundurleit. Svo vekur athygli hversu sterk staða ríkissjóðs er sem gerir það að verkum að ríkisstjórnin getur lagt áherslu á að bæta samfélagsþjónustu og leggja aukna áherslu á velferðarmál. Eins og lagt var upp með í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 2,4 milljörðum í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þetta er það sem stendur upp úr í pólitíkinni allavega. Svo voru það töluverðar fréttir um sam- einingu Geysis Green Energy og Reykjavíkur Energy Invest. Sitt sýnist hverjum varðandi aðkomu Orkuveitunnar en það er engin spurning um að svona fyrirtæki er víst til þess að vera með öfluga útrás. Græn orka er eftir- sóknarverð og Íslendingar eru langfremstir á þessu sviði.“ Ásta Möller, alþingiskona Lítið fylgi Ólafs vekur athygli „Það vakti athygli mína hversu lítinn stuðning Ólafur Ragnar Grímsson virðist hafa. Mér finnst þetta alveg fáránlega lág tala því mér finnst hann hafa staðið sig al- veg frábærlega. Mér finnst hann vera búinn að standa sig vel og Dorrit er líka búin að vera flott og það elska hana allir. Ég veit ekki hver annar gæti komið til greina sem forseti Íslands. Hann þarf að vera svipaður og Ólaf- ur Ragnar því ég sé það alveg fyrir mér að ef ég myndi hitta Ólaf Ragnar, gæti ég gengið beint upp að honum og sagt: „Nei, bless- aður! Hvað er að frétta?“ Þannig upplifi ég Ólaf allavega. Þótt maður beri virðingu fyrir honum er hún ekki óttablandin. Þær vöktu líka athygli fréttirnar af Ís- lendingnum sem vann 105 milljónirnar. Ég vona bara að þetta sé einstaklingur sem virkilega þarf á þessum peningum að halda. Ef ég ynni þessa upphæð myndi ég gera þetta týpiska eins og að borga niður skuldir. Ég hef mikinn áhuga á fjárfestingum og ég myndi sennilega fjárfesta í einhverju snið- ugu. Síðan myndi ég líka eyða þessu í tóma vitleysu.“ Björgvin Franz Gíslason, leikari HVAÐ BAR HÆST í Vikunni? Blaða·maður KK • starfsmaður blaðs, sá sem hefur atvinnu af að skrifa í blöð - Íslensk orðabók „Ég heiti Sigurjón M. Egilsson og er ritstjóri DV. Mér er ekki sama hvernig fjölmiðlum er stjórnað eða hvernig fréttir þeirra eru unnar. Sjálfstæði, kjarkur og sanngirni skiptir öllu hjá fjölmiðli eins og DV. Fólk á skilið dagblað sem talar þeirra máli. Ég tala þínu máli.“ Talar þínu máli F í t o n / S Í A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.