Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Qupperneq 52
Í leiknum Elite Beat Agents er mað- ur í hlutverki hinna tónelsku takt- útsendara sem ferðast um heiminn og hjálpa fólki við að leysa hin ýmsu vandamál með því að spila hörku- tónlist og dansa í takt. Leikurinn er í nokkrum erfiðleikastigum og fer það eftir því hvaða útsendara þú velur hversu erfiður hann er. Hvert og eitt borð segir sögu einhvers sem er í vanda og útsendararnir mæta á svæðið til að reyna að aðstoða þann hinn sama. Eitt lag er í hverju borði og þarf spilandinn að nota bendilinn og snertiskjáinn til þess að halda takti og fá stig fyrir vikið. Ef maður missir dampinn tekst ekki að bjarga þeim sem þurfa á hjálp að halda. Persónulega fannst mér tónlistin í þessum leik alveg hræðileg og er það nú aðalmálið í tónlistarleik. Til að byrja með var þetta byljandi banda- rískt háskólarokk af allra ódýrustu gerð. Leikurinn er það hraður að það er ekki nokkur leið að fylgjast með sögunni sem er í gangi á efri skjánum auk þess virðast allar persónur sem- íbreytast í uppvakninga þegar þær reiðast. Hvert lagið á fætur öðru var slakt eða klisjukennt. Sögurnar voru ekki minni klisjur auk þess sem mér finnst svona leikir bara ekki sérlega skemmtilegir. Leikurinn er þó alls ekki alslæmur og er mjög vel gerður og vel útlítandi. Hann hefur líka fengið mjög góða dóma á flestum stöðum og hefur selst nokkuð vel þannig að DS-notendur ættu að gefa honum séns. Hins vegar verð ég að fylgja eigin sannfæringu og þeirri staðreynd að ég þoli ekki lé- legt háskólarokk. Ásgeir Jónsson dóri dna segir: & U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s föstudagur 5. október 200752 Helgarblað DV leikirtölvu Warhawk – PS3 Halo 3 – XboX 360 World in conflict – PC trauma Center – Wii boogie – Wii Kíktu á þessa leiKjatölvur Skotleikurinn Halo 3 kom út í lok september. Leikurinn halaði inn 170 milljónir dollara sólarhringinn eftir að hann kom út. Microsoft eyddi um 10 milljónum dollara í að auglýsa leikinn, Pepsi hefur framleitt sér- stakan drykk sem tengist leiknum. Það er allt að gerast. NiNja GaideN í Halo 3 Í Halo 3 má finna nokkur vopn og hluti úr leiknum Ninja Gaiden Sigma, en sami framleiðandi er að báðum leikjunum, bungie. Nú þegar hefur hópur leikmanna í Halo fundið Hayabusa-hjálm og ninja-sverð sem þeir geta notað en til þess þurfa menn að safna 1000 „achievement” punktum. Þó er ekki hægt að nota sverðið sem vopn, aðeins sem skraut. Til þess að fá punktana þurfa leikmenn að finna sérstakar hauskúpur víða um leikinn, sem er næstum ógerlegt. Gaman að því. SeiNkar á XboX Herkænskuleikurinn World in Conflict er þegar kominn út á PC og hefur fengið afbragðsdóma víðast hvar. Hins vegar hefur útgáfu leiksins á Xbox 360 seinkað fram á næsta ár, en ekki hefur verið gefin nein skýring á seinkuninni. Leikurinn gerist árið 1989 en í stað þess að sovíetríkin falli standa þau sterk og stríð brýst út á milli austurs og vesturs. laG eNdurupp- tekið fyrir Guitar Hero Tölvuleikjaframleiðandinn Acti- vision Inc. tilkynnti nýlega að rokksveitin goðsagnakennda The Sex Pistols hefði tekið aftur upp lagið Anarchy in the UK sérstaklega fyrir leikinn Guitar Hero. Nú geta því aðdáendur sveitarinnar tekið lagið í nýjum búningi, í léttri sveiflu á plastgítar. Johnny Rotten, söngvari sveitarinnar, sagði það hafa verið gaman að taka lagið upp aftur og að það vantaði meira stjórnleysi í heim tölvuleikjanna. Guitar Hero 3 kemur út 28. október. Skotleikurinn Halo 3 kom út 26. september, en leikur-inn er eingöngu fáanlegur á Xbox 360. Halo 3 er einn umfangsmesti tölvuleik-ur sem komið hefur út, en Microsoft eyddi um 10 milljónum dollara í auglýsingar á leiknum. Það var Bill Gates sjálfur sem tilkynnti að leikurinn væri væntanlegur árið 2004 og tveimur árum síðar var fyrsta sýnishornið úr leiknum klárt, en það var sýnt á E3-hátíðinni. Enginn leik- ur hefur selst hraðar á fyrsta sólar- hringnum, en Halo 3 halaði inn 170 milljónir dollara á fyrstu 24 klukku- stundunum sem hann var í sölu. Eins og í fyrri leikjum stýra leikmenn her- manni sem berst gegn geimverunum Covenant, sem hafa nú ráðist á jörð- ina. Árið er 2553 og mannkynið hef- ur átt í átökum við Covenant í fjölda ára. Landsvæði leiksins eru mismun- andi, allt frá frumskógi til eyðimerk- ur og þaðan út í geim. Umfangið í kringum leikinn og eftirvænting eft- ir honum eru einstök. Til að mynda hefur Pepsi gefið út drykkinn Game Fuel, afbrigði af Mountain Dew, en á umbúðum drykkjarins má sjá að- alpersónu Halo. Þá hafa einnig ver- ið fáanlegir sérstakir Halo 3-bollar í verslunum 7-11 víða um Bandaríkin. Þá var leikurinn auglýstur í auglýs- ingahléi Superbowl-leikjarins í ár, en það er dýrasta auglýsingapláss sem hægt er að hugsa sér. Þá verður einn- ig sérstök Xbox 360 Halo-tölva gef- in út, græn að lit og öll í anda leiks- ins. Þá hefur leikurinn fengið alveg ótrúlega dóma. Á Metacritic er hann með 95 af 100 mögulegum í meðal- einkunn sem byggð er á 44 dómum. „Halo 3 er meira en bara tölvuleikur, hann er upplifun í afþreyingu. Rétt eins og Hringadróttinssaga: Hilm- ir snýr heim og Spiderman 3 lokuðu tveimur epískum kvikmyndaþríleikj- um sögunnar, gerir Halo það sama í tölvuleikjum,“ sagði í dómi Pro-G. Halo-3 er fáanlegur hér á landi og hefur slegið í gegn meðal Xbox 360- notenda. Leikurinn er án nokkurs vafa umfangsmesti leikur sem gefinn verður út þar til Grand Theft Auto 4 kemur út í apríl 2008. dori@dv.is Elite Beat Agents Tónlistaleikur Nintendo DS tölvuleiKur H H H H H Helvítis Háskólarokkið umfaNGSmeStitölvuleikur SöGuNNar? Elite beat Agents ef þér finnst þrautaleikir skemmtilegir er þessi fínn en tónlistin er bara vond.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.