Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Page 55
DV Helgarblað fimmtudagur 5. október 2007 55
Loksins, loksins skart og aukahlutir sem koma á
óvart. efnisnotkun, litir og form eru allt sem
manni hefur fundist vanta. Nú er um að gera að
taka upp prjónana og saumavélina og fikra sig
áfram í skartgripagerð sem þessari.
Ljósir Lokkar fá að fjúka
Þær eru svo heitar að maður fær gæsahúð aftan á hnakk-
ann þegar þær eru nefndar á nafn. Það eru þær Sienna
miller og Sarah Jessica Parker sem eru með sinn persónu-
lega sjarma sem og stíl. Núna hafa þær báðar skipt út ljósu
lokkunum fyrir þá dökku. erfitt er að meta hvort hafi verið
flottara enda kannski flottar með hvaða háralit sem er.
augna-
konfekt
prjóna gull
Lie Sang bong er partur af nýrri
kynslóð fatahönnuða í París. Lie
Sang bong kemur með hina
fullkomnu blöndu þar sem heimar
kóreu og hinnar klassísku frönsku
fegurðar mætast.Hann hlaut titilinn
„the best designer of the Year“ árið
1999 og hefur stöðugt komið á óvart
með hönnun sinni. Hann vakti
þvílíka lukku núna á tískuvikunni í
París þar sem hver einasta flík fékk
mann til að fyllast forvitni og
undrun. Sumar- og vorlínan frá Lie
Sang bong setti allt á hærra plan.
Hver einasta flík vakti undrun og
hrifningu enda efnin, tæknin,
handverkið og allt á hærra plani en
margt annað sem hefur verið gert.
Hvert einasta smáatriði var til
fyrirmyndar, litablandan heillandi
og, já, hver einasta flík var upplifun.
Heyr, heyr fyrir Lie Sang bong.
Mynstur og
print seM heiLLa
david bradley er einn af þeim sem vekja athygli í London fyrir flott og
flókin mynstur sem og litablæbrigði. Hann minnir einna helst á print-
meistarann Jonathan Saunders. en handbragðið hjá david bradley er
mjög vel gert og litirnir ótrúlega fallegir. alveg möst að fylgjast soldið
með kauðanum.
Ármúla 42 · Sími 895 8966
Lærðu kínversku á
skemmtilegan hátt
Námskeið
byrjar
14. október