Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 56
Föstudagur 5. október 200756 Helgarblað DV
TónlisT
Tekjuhæsta
tónleikaferðin
Nú hefur verið reiknað út hversu
mikið hljómsveitin Rolling Ston-
es græddi á
Bigger Bang-
tónleikaferða-
laginu sínu
sem hófst árið
2005 og lauk
tuttugasta og
sjötta ágúst
síðastliðinn,
en túrinn kom
hljómsveitinni
í heimsmeta-
bók Guinnes.
Heildarinnkoma tónleikaferða-
lagsins var tæplega fimm hundruð
og sextíu milljónir dollara sem
samsavarar um þrjátíu og fjórum
milljörðum íslenskra króna. Tón-
leikaferðin samanstóð af hundrað
fjörutíu og fjórum tónleikum víðs
vegar um heiminn og var þetta
tekjuhæsta tónleikaferð í sögunni.
Næst á eftir Stones í röðinni er
hljómsveitin U2 sem halaði inn
rétt rúmlega hundrað og fimmtíu
milljónir dollara á Vertigo-tón-
leikaferðalagi sínu.
Tónlistarakademía DV segir
Hlustaðu á þessa!
Magic – bruce springstein
Close to begin – band of Horses
Necessary evil – deborah Harry
kill to get Crimson – Mark knopfler
smokey rolls down thunder Canyon – devendra banhart
Upphitun
fyrir Airwaves
Í kvöld ætla aðstandendur Iceland
Airwaves-hátíðarinnar og tímaritið
Reykjavík Grapevine að taka hönd-
um saman og halda heljarinnar
upphit-
unar-
tónleika
fyrir
sjálfa
Airwaves-há-
tíðina sem hefst
sautjánda októb-
er næstkomandi. Tilefni tónleik-
anna er útkoma dagskrárbæklings
Iceland Airwaves en hann kem-
ur út í tólf þúsund eintökum og er
dreift vítt og breitt um höfuðborgar-
svæðið. Á tónleikunum koma fram
hljómsveitirnar Motion Boys, Ultra
Mega Technobandið Stefán, Blood-
group og Foreign Monkeys. Húsið
verður opnað klukkan 23 og hefjast
tónleikarnir hálftíma síðar. Miða-
verð er einungis 500 krónur en þeir
sem framvísa Airwaves-armbandi fá
frían aðgang.
Danielson
í kvöld
Hljómsveitin Danielson held-
ur tónleika í Fríkirkjunni í kvöld
en tilefni þeirra er frumsýning
heimildarmyndarinnar Daniel-
son: A Family Movie sem fjallar
um hljómsveitina og feril henn-
ar undanfarinn áratug eða svo.
Hljómsveitin hefur starfað í einni
eða annarri mynd allt frá árinu
1995 og hefur náð talsverðum
vinsældum í indírokksenunni. eitt
frægasta lag sveitarinnar er Did I
Step On Your Trumpet sem hefur
verið í töluverðri spilun í útvarpi
upp á síðkastið. Það er stórsveit-
in Hjaltalín sem sér um upphitun
fyrir Danielson. Hægt er að nálg-
ast miða á midi.is og í verslunum
Skífunnar og BT á landsbyggðinni.
Í kvöld ætla nokkrir af fremstu tónlist-armönnum þjóðarinnar að votta Lee Hazlewood virðingu sína með sér-stökum minningartónleikum á Organ en þessi merki tónlistarmaður lést úr krabbameini fjórða ágúst síðastliðinn en það má með sanni segja að hann hafi
haft mikil áhrif á tónlistarheiminn.
„Hazelwood var náttúrulega brilljant út-
setjari og hugsuður sem vissi alveg hvað virk-
aði á hinum almenna tónlistarmarkaði,“ segir
Ólafur Þórsson, einn af þrem skipuleggjendum
tónleikanna en hann og félagar hans, þeir Ein-
ar Friðjónsson og Halldór Karlsson, eru með-
limir í stórmerkilegri hreyfingu sem kallast
Nýja Samvinnuhreyfingin. Hreyfingin stendur
fyrir menningarlegurm, pólitískum og heim-
spekilegum atburðum á landinu og eru tón-
leikarnir annar viðburðurinn sem þeir félag-
ar standa fyrir. „Hazlewood vissi að með því
að syngja með ungum og fallegum stúlkum
og semja fyrir þær æðislegar melódíur myndi
hann selja vel en aftur á móti var hann nokk-
uð heill og margslunginn listamaður og alveg
brilljant textahöfundur. Hann gerði lög sem
gætu talist einar bestu melódíur tuttugustu
aldarinnar eins og til dæmis Velvet Mrorning
og Summer Wine sem hann söng með Nancy
Sinatra en svo gerði hann líka alveg heilan hell-
ing af frábærum sólólögum eins og til dæmis
The Fool og The Performer þar sem textarnir
eru djúpir og hreyfa við manni.“
Frumflutningur á lagi
Hazlewood og Amiinu
Ólafur segir að þær kynslóðir tónlistar-
manna sem hafi sprottið upp á eftir Lee Hazle-
wood séu undir miklum áhrifum frá honum.
„Til dæmis má heyra mikil Hazlewood-áhrif
hjá mönnum eins og Nick Cave og jafnvel
Bono í U2. Svo er náttúrulega fjöldi tónlistar-
manna sem hefur tekið upp hans lög og sett
í sinn eigin búning og hefur tónlist hans haft
gríðarleg áhrif á tónlist tuttugustu aldarinn-
ar og allar tónlistarstefnur, meira að segja á
teknóið.“
Minningartónleikarnir sem fram fara í
kvöld eru einnig mjög merkilegir fyrir þær sak-
ir að hér er um að ræða fyrstu Lee Hazelwood-
minningartónleikana í heiminum. „Ég held að
ég verði að segja að þótt ég sé hlutdrægur held
ég að þetta verði einir athyglisverðustu tónleik-
ar þessa árs og þá tek ég meira að segja Airwa-
ves með í dæmið,“ segir Ólafur hress og bætir
því við að þetta jaðri við að vera heimsviðburð-
ur þar sem á tónleikunum í kvöld verði frum-
flutt lag sem íslenska hljómsveitin Amiina tók
upp með Hazlewood skömmu áður en hann
lést.
Spennandi dagskrá
Dagskráin í kvöld er vægast sagt mjög
spennandi en fyrir utan heimsfrumflutning-
inn á Amiinu- og Hazlewood-laginu, ætl-
ar til dæmis hljómsveitin Unun að vera með
sérstaka endurkomu til að heiðra minningu
Hazlewoods og mun slóvenski tónlistarmað-
urinn Der Sturm leggja leið sína til landsins
svo fátt eitt sé nefnt. „Það eru frábærir tónlist-
armenn sem stíga á svið í kvöld en þeir sem
fram koma eru Ágústa Eva Erlendssdóttir, Der
Sturm, Ellen Kristjáns ásamt Sigga í Hjálmum,
Geir Ólafs, Magga Stína, Megasukk, Ólöf Arn-
alds ásamt Óttari Proppé, Páll Óskar, Singa-
pore Sling, Ske og Björn Hlynur, Unun og sér-
stakir leynigestir auk þess sem Amiinu- og
Lee Hazlewood-lagið verður frumflutt. Því
miður var Amiina löngu búin að skipuleggja
tónleikaferðalag á þessum tíma en lagið verð-
ur bara flutt eins og það var tekið upp í hljóð-
verinu,“ segir Ólafur og bætir því við að að
loknum tónleikum ætli DJ Andrea Jónsdóttir
að þeyta skífum fram á morgun.
Hægt er að nálgast miða á tónleikana á
midi.is og við dyrnar og er miðaverð einung-
is tvö þúsund krónur en verslunin Tólf tón-
ar er sérstakur styrktaraðili tónleikanna. Inni-
falið í verðinu er fordrykkur. „Húsið er opnað
klukkan níu og hefjast tónleikarnir um það bil
klukkutíma eða einum og hálfum tíma síðar. Af
því að Nýja Samvinnuhreyfingin hugsar fyrir
öllu verður líka séð til þess að ákveðinn fjöldi af
miðum verði tekinn frá og seldur við inngang-
inn svo fólk þarf ekki að eiga von á því að það
seljist upp á tónleikana í gegnum midi.is,“ segir
hinn dúndurhressi Lee Hazlewood-aðdáandi
og tónleikahaldari Ólafur að lokum. krista@dv.is
Fyrstu minningartónleikarnir í heiminum, til heiðurs hinum merka tónlistarmanni
Lee Hazlewood, fara fram á Organ í kvöld þar sem fjöldi tónlistarmanna stígur á svið
auk þess sem frumflutningur verður á lagi sem íslenska sveitin Amiina tók upp með
Hazlewood skömmu áður en hann lést.
Heiðra minningu
HazlewoodS
Hin stórmerkilega rokkhljómsveit
Strigaskór nr. 42 hefur nú boðað end-
urkomu sína eftir nokkurra ára hlé og
ætlar meðal annars að spila á Airwav-
es-hátíðinni. „Hljómsveitin var stofn-
uð árið 1989 af mér, Kjartani, Gunn-
ari og Hlyni og við spiluðum til ársins
1994 þegar fyrsta breiðskífan okkar,
Blót, kom út en þarna einhvers staðar
í kringum útgáfuna á plötunni sáum
við um að gera tónlistina fyrir Herra-
nótt MR fyrir leikritið Baal. Við hætt-
um svo fljótlega eftir það,“ segir Ari
Þorgeir Steinarsson, trommuleikari
hljómsveitarinnar.
Strákarnir fóru að snúa sér að öðr-
um verkefnum og héldu flestir áfram í
tónlistarbransanum. „Eftir að við hætt-
um í Strigaskónum fór ég í hljómsveit
sem hét Soðin fiðla og sigruðum við í
Músíktilraunum árið 1998. Síðan gerði
ég ýmislegt og spilaði meðal annars í
tæp tvö ár með Stjörnukisa. Hlynur er
í hljómsveitinni Trabant, Kjarri spilaði
inn á fyrstu plötuna með Ensími en
Gunni skellti sér í nám,“ segir Ari.
„Tónlistin sem var samin fyrir MR-
leikritið hefur blundað í okkur lengi
og í sumar tókum við upp plötu með
lögunum úr verkinu og kemur hún út
einhvern tímann í byrjun árs. Þessi
plata einkennist af frekar stuttum lög-
um öfugt við Blót þar sem lögin voru
frekar í lengri kantinum. Það er búið
að vera mjög gaman hjá okkur að taka
upp plötuna og við höfum strax fengið
mjög góð viðbrögð við því að við séum
að koma saman á ný svo það er ým-
islegt fram undan sem ég kannski get
ekki beint talað um strax,“ segir Ari að
lokum en Strigaskór nr. 42 spilar á Org-
an laugardagskvöldið nítjánda októb-
er klukkan tíu. krista@dv.is
Pönksveitin Strigaskór nr. 42 kemur saman á ný og spilar meðal annars á Airwaves:
STRIGASKÓRNIR SNÚA AFTUR
Ari Þorgeir trommari í strigaskóm nr. 42.
Ólafur Þórsson einn af
þremur skipuleggjendum
tónleikanna.