Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.01.2014, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 10.01.2014, Blaðsíða 2
 TENNIS er skemmtileg hreyfing Nú er rétti tíminn til að panta fastan tíma í tennis. Eigum nokkra tíma lausa. Skemmtilegu byrjendanámskeiðin fyrir fullorðna eru að hefjast. Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is Metþátttaka í Eddu Borgin hefur mótað sér þá stefnu að hafa grænar áherslur. S kúli Helgason býður sig fram til þriðja sætis í flokksvali Samfylk-ingarinnar fyrir borgarstjórnar- kosningar næsta vor. Hann var þingmaður Samfylkingarinnar kjörtímabilið 2009 til 2013 en hefur undanfarið starfað sem verkefnastjóri fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við mótun sameigin- legrar sóknaráætlunar í menntamálum. Skúli setur mennta- og græn atvinnu- mál á oddinn og segir borgina hafa möguleika á að taka forystu í þessum málaflokkum og því sé spennandi að taka skrefið úr landsmálum í borgarmálin. „Borgin hefur mótað sér þá stefnu að hafa grænar áherslur. Á Alþingi var ég formað- ur nefndar um mótun stefnu um grænt hagkerfi sem var samþykkt einróma á alþingi árið 2012. Borgin hefur möguleika á að taka við forystuhlutverkinu þarna og jafnvel í samvinnu við höfuðborgarsvæðið allt.“ Oddný Sturludóttir býður sig ekki fram til áframhaldandi setu í borgarstjórn og segir Skúli áhyggjur hafa verið af því að rof yrði því í menntamálum þar sem hún hefur verið í forystu í þeim málaflokki. „Margt hefur verið mjög vel gert í þessum málaflokki, ekki síst áherslan á aukna samþættingu leikskóla, grunnskóla og frí- stundastarfs og ég bind líka miklar vonir við nýja læsisstefnu leikskólanna. Það eru líka stórar áskoranir sem við þurfum að takast á við, eins og lakari árangur nem- enda í lestri og náttúrufræði samkvæmt PISA og hátt hlutfall drengja, allt upp í efstu bekki grunnskólans sem ekki lesa sér til gagns.“ Hann segir þarft að styrkja grunninn og vill setja markið hátt – að öll börn geti lesið sér til gagns á fyrstu árum grunn- skólans. „Ég vil líka beita mér fyrir því að tryggja jöfn tækifæri barna í öllum hverf- um borgarinnar. Það er verulegur munur á milli hverfa á frammistöðu barna í lykil- greinum eins og lestri og í anda sannrar jafnaðarstefnu vil ég beita mér fyrir því að tryggja að öll börn fái þann stuðning sem þau þurfa til að öðlast grundvallarfærni. Við verðum að lyfta þeim upp sem standa höllum fæti – það skiptir sköpum fyrir vel- ferð þessara barna og samfélagsins alls í framtíðinni.“ Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Heimild til úttektar framlengd Búið er að framlengja heimild til úttektar á uppsöfnuðum séreigna- sparnaði til loka árs 2014 en það var samþykkt á Alþingi í desember. Hámarksúttekt er nú 9 milljónir króna að frádreginni þeirri upphæð sem fólk hefur þegar fengið en það er 2.750 þúsund króna hækkun frá fyrri heimild. Mánaðarlegar greiðslur mega hæst fara í 600 þúsund í allt að 15 mán- uði. Fyrir þá sem sækja um 9 milljóna úttekt nú en hafa ekki nýtt þess heimild áður nemur mánaðarleg útgreiðsla, eftir skatt, samtals 360 þúsund krónum næstu 15 mánuði miðað við að staðgreiðsluhlutfall sé 40%. Íslendingar ánægðir með lífið Tæp 70% Íslendinga eru ánægð með lífið en þegar allur heimurinn er skoðaður eru 60% ánægð með lífið, sam- kvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Þó niðurstöður bendi til þess að Ís- lendingar séu almennt ánægðir eru þeir ekki jafn bjartsýnir gagn- vart nýju ári og aðrir jarðarbúar en 48% allra í heiminum eru bjartsýn gagnvart árinu sem er að ganga í garð en aðeins 21% Íslendinga. Við virðumst einnig vera nokkuð svartsýn gagn- vart efnahagshorfum en 42% Íslendinga telja að árið 2014 verði ár efnahagsörðugleika. Aldrei hafa fleiri verk verið send inn í Edduna, íslensku sjónvarps- og kvikmyndaverð- launin en í ár. Framleiðend- ur kvikmynda og sjónvarps- verka hafa sent 108 verk inn. Í fyrra voru 102 verk send inn. Af innsendum verkum eru sjón- varpsverk alls 76 talsins en í fyrra voru þau 64. Alls voru 7 kvikmyndir sendar inn í Edduna í ár sem er sami fjöldi og í fyrra. Aðeins fimm verk falla í flokkinn barna- og unglingaefni í ár sem er fækkun úr átta verkum í fyrra. Tilkynnt verður um tilnefningar Edduverð- launanna 30. janúar og í kjölfarið hefst kosning akademíumeðlima á milli tilnefndra verka. Úrslit verða svo tilkynnt á Eddu-hátíðinni laugardaginn 22. febrúar í Silfurbergi Hörpu. Sara Dögg Ásgeirsdóttir hlaut Edduverðlaunin í fyrra fyrir bestan leik kvenna í aðal- hlutverki. Hagstæð vöruskipti Vöruskipti í nýliðnum desember voru hagstæð um 4,8 milljarða króna, samkvæmt bráðabirgða- tölum Hagstofu Íslands. Útflutningur nam 43,6 milljörðum króna en vörur voru fluttar inn fyrir 38,8 milljarða króna.  BorgarStjórnarkoSningar FlokkSval SamFylkingarinnar Skúli Helgason í borgarmálin Skúli Helgason, fyrrum alþingismaður og núverandi fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík norður, gefur kost á sér í þriðja sæti í flokksvali fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Hann segir það spennandi áskorun að fara úr landsmálunum í borgarmálin og setur mennta- og græn atvinnumál á oddinn og vill tryggja jöfn tækifæri barna í öllum hverfum borgarinnar til menntunar. Skúli Helgason setur menntamál og græn atvinnumál í öndvegi og segir fólk hafa óttast ákveðið rof í menntamálum með brott- hvarfi Oddnýjar Sturludóttur. Menningarsjóður Hlaðvarpans veitti í gær 400.000 króna styrk til Gettu Betur æfingabúða fyrir stelpur. Að sögn Hrafnkötlu Ein- arsdóttur vonast þær stofnend- urnir til að æfingabúðirnar hvetji stelpur til þátttöku og að kynja- kvótar verði óþarfir eftir nokkur ár, bæði í Gettu betur og annars staðar. Haldin verður kynning á æfingabúðunum í ágúst. „Þær stelpur sem mæta í búðirnar geta þá mætt í prófin sem haldin eru hjá skólunum í haust. Vonandi skilar þetta því að strax á næsta ári verði fleiri stelpur í Gettu betur,“ segir hún. Auk Hrafnkötlu standa þær Anna Pála Sverrisdóttir, Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, Elín Elísabet Einarsdóttir, Hildur Sig- urgrímsdóttir, María Helga Guð- mundsdóttir og Sigrún Anton- sdóttir að æfingabúðunum en þær hafa allar keppt í Gettu betur. Að þessu sinni úthlutaði Menn- ingarsjóður Hlaðvarpans tæplega 7 milljónum króna til menn- ingarmála kvenna. Veittir voru 17 styrkir en alls bárust rúmlega eitt hundrað umsóknir. Styrkur einnig var veittur til gerðar á heimildamynd um hljómsveitina Dúkkulísur. Þá fékk Erla Hulda Halldórsdóttir styrk til rann- sóknar á bréfaskriftum Sigríðar Pálsdóttur, Femínistafélag Ís- lands fékk styrk til verkefnis um vernd tjáningarfrelsis og vernd gegn þöggun, Katrín Gunnars- dóttir fékk styrk fyrir sólódans- verkið Macho men og Hrafnhild- ur Schram til ritunar á bók um Nínu Sæmundson, fyrsta íslenska kven-myndhöggvarann. -dhe  Styrkur menningarSjóður HlaðvarpanS Æfingabúðir fyrir Gettu betur stelpur Allir sjö stofnendur æfingabúðanna hafa keppt í í Gettu betur. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir og Anna Pála Sverrisdóttir eru tvær þeirra. 2 fréttir Helgin 10.-12. janúar 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.