Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.01.2014, Síða 64

Fréttatíminn - 10.01.2014, Síða 64
— 4 — 10. janúar 2014 Á móti mér tók brosandi geislafræð- ingur sem tilkynnti mér þær góðu fréttir að bilaði armurinn á skannanum væri kominn í lag. Lyfjafræðideild HÍ fær styrki frá ESB Vísindafólk við lyfjafræðideild Háskóla Íslands hlaut nýverið þrjá styrki til þátttöku í Marie Curie mannauðsáætlun Evrópu- sambandsins. Heildarupphæð styrkjanna nemur rúmlega 110 milljónum króna. Að sögn Más Mássonar, forseta lyfjafræðideildar HÍ, hafa styrkirnir gríðarlega mikla þýðingu. „Deildin hefur verið í mjög öflugu samstarfi við marga aðila innan- lands og utan en það er auðvitað alveg sérstök lyftistöng að fá svona styrki frá ESB,“ segir Már og bætir við að styrkirnir muni nýtast í doktorsverkefni á mörgum mismunandi sviðum og efli það starf sem fyrir er. „Það er erfiðara að fá styrki hér á landi núna en áður og því er það eig- inlega lífsnauðsynlegt fyrir deildina að það takist að afla styrkja líka erlendis frá. Lyfja- rannsóknir eru dýrar og við eig- um í samkeppni við lönd þar sem styrkjaumhverf- ið er betra. Við þ u r f u m að mennta fólk því lyfja- og líf- tækni iðnaður styrkist hérna dag frá degi.“ Már segir þennan iðnað hlutfallslega öflugri en í flestum öðrum ríkj- um. „Lyfjaiðnaður sem hlutfall af landsframleiðslu er að öllum líkindum með því stærsta sem þekkist og því er mjög mikil- vægt að við getum svarað kröfum hans.“ Styrkirnir auki möguleika deildarinnar en séu jafnframt áskorun. „Við þurfum þá að halda áfram að byggja upp aðstöðu sem er sambærileg við það sem best gerist í öðrum löndum. Við þetta hleypur okkur kapp í kinn og sýnir að við erum á réttri leið.“ Alls hlutu þrjú verkefni við deildina styrk til þátttöku í svo- kölluðu þjálfunarneti mannauð- sáætlunar Marie Curie. Í þjálfun- arnetinu felst að fjöldi evrópskra háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja hefur samstarf um þjálfun vísindafólks á fyrstu stigum starfsferils síns. Í hverju þjálfunarneti er unnið að einu heildarverkefni en fjöldi rann- sóknarhópa vinnur svo einnig að smærri verkefnum. Verkefni lyfjafræðideildar eru undir stjórn Margrétar Þorsteinsdóttur dós- Lyfjafræðideild HÍ hlaut á dögunum styrki frá ESB að heildarupphæð 110 milljónir. Á myndinni er Sesselja Ómars- dóttir, dósent við deildina. Dagný HulDa ErlEnDsDóttir M atthea Sigurðardóttir, eða Matta eins og hún er alltaf kölluð, er 36 ára deildarstjóri í Brúarskóla. Hún hefur tvisv- ar sinnum fengið skjaldkirtilskrabbamein, fyrst árið 2005 og svo aftur síðasta haust þegar niðurskurður var farinn að hafa mikil áhrif á starfsemi Landspítalans. Gríðarleg- ur munur var á krabbameinsmeðferðunum tveimur þó starfsfólkið hafi gert sitt besta við erfiðar aðstæður. Árið 2005 var með- ferðin í góðum farvegi og hún fékk reglulega símtöl frá Landspítalanum um hver næstu skref yrðu. Samvinna ríkti á milli lækna og tæki og tól voru til staðar og í lagi. „Þegar krabbameinið kom upp aftur í fyrra hélt ég að allt myndi bara detta í sama ferlið og áður og hafði engar sérstakar áhyggjur þó ég hafi verið pínu hræddari núna því ég er orðin móðir og þá er erfiðara að standa frammi fyrir ógn.“ Í allri meðferðinni síðasta haust fékk Matta aðeins tvö símtöl frá Landspítala. Í byrjun var henni tilkynnt að hún væri með krabbamein og svo í lok meðferðar fékk hún símtal þess efnis að það væri farið. Í millitíðinni þurfti hún að ganga á eftir öllu sem meðferðinni fylgdi með ítrekuðum sím- hringingum. „Helsti munurinn var að áður var litið á mig sem sjúklinginn Möttu og ef ég hafði áhyggjur var brugðist við því. Ef ástæða var til að ætla að ég þyrfti að fara í skoðanir fór ég í þær. Núna í seinna skiptið upplifði ég það þannig að ég væri sjúkdómurinn skjaldkirtilskrabbamein sem hegðar sér yfirleitt á ákveðinn hátt. Þannig var brugðist við og ekki tommu lengra. Það hefði verið gott ef einhver hefði gefið sér tíma til að setjast niður með mér og spyrja hvernig mér liði.“ Með símann undir koddanum Í byrjun var Möttu tilkynnt að meðferðin gæti tekið hálft ár en hún fékk engar upp- lýsingar um hvenær hún mætti eiga von á næsta símtali eða hvað tæki við. „Ég vissi ekkert hvað ég átti að segja vinnuveitandan- um því ég hafði ekki hugmynd um hvenær skurðaðgerðin yrði. Ég var því bókstaflega alltaf með símann á mér því ég vildi alls ekki missa af símtali frá spítalanum en til þess kom þó ekki því það var aldrei hringt í mig. Alla meðferðina var það alltaf ég sem hafði samband við Landspítalann til að spyrjast fyrir um næstu skref. Við þessar aðstæður vill maður vita um hvað tekur við næst og þá líður tíminn líka hraðar sem er mikilvægt við aðstæður sem þessar,“ segir hún. Frá því Matta vissi að hún væri aftur kom- in með krabbamein og þangað til hún fékk að vita hvenær meðferðin hæfist liðu fjórar vikur. „Eftir að hafa beðið í fjórar vikur eftir símtali um tímasetningu aðgerðarinnar gat ég ekki meira og hringdi og þá fyrst var rit- ari skurðlæknisins sem átti að framkvæma aðgerðina að fá bréf frá krabbameinslækn- inum en báðir starfa þeir á Landspítalanum. Þessi tími var mjög skrítinn, að vera með krabbamein og tilbúin að fara hvenær sem er í aðgerð og allir mínir nánustu tilbúnir að hjálpa til við að passa son okkar og vinnu- veitandinn að gefa mér frí í vinnunni.“ Rúllað inn í geymslu Krabbameinið var í bæði skiptin fjarlægt með skurðaðgerð og þegar Matta vaknaði eftir aðgerðina árið 2005 komu bæði krabba- meinslæknir og skurðlæknir til hennar og ræddu um hvernig hafði gengið. Núna í haust var raunin önnur og aðeins skurð- læknirinn kom eftir aðgerðina og tilkynnti henni að vel hefði gengið. „Þegar ég vaknaði eftir aðgerðina var mér tilkynnt að ég ætti að jafna mig á annarri deild. Svo hafði sú deild ekki pláss fyrir mig svo ég fór á þriðju deildina og var rúllað þar inn í geymsluskáp sem var fullur af skilrúmum og öðru dóti svo rúmið rétt komst fyrir. Ég vissi ekkert hvar ég var, hvort ég mætti fara heim eða ætti að borga. Það kom enginn og tilkynnti mér formlega að ég mætti fara heim. Ég hugsaði með mér hvort ég ætti að segja einhverjum að ég væri að fara eða hvort yrði kannski auglýst eftir mér – sjúklingur með úfið hár og 18 sauma í hálsinum á rangli í nágrenni Landspítala.“ Eftir leit að fötunum sínum, sem höfðu orðið eftir á fyrstu deildinni, ákvað hún að fara heim þar sem hún var orðin hressari. Lyfin voru svo á annarri deild en á því áttaði hún sig ekki fyrr en hún kom heim. „Svo kom ég út úr geymsluskápnum þegar ég var orðin alklædd og sá starfsmann í fjarlægð sem ég veifaði bless. Svo bara gekk ég út og þetta var allt mjög ruglingslegt og sérstakt.“ Eftir skurðaðgerðina þurfti Matta að taka inn lyf sem innihélt geislajoð. Á meðan lyfið var enn í líkamanum fór hún svo í skanna þar sem kannað var hvort enn væru krabba- meinsfrumur í líkamanum. Sem fyrr beið Matta eftir símtali en henni hafði verið sagt að lyfin kæmu eftir viku til tíu daga úr pönt- un að utan og að haft yrði samband við hana. „Svo liðu tvær vikur og ekki var hringt í mig. Þá hringdi ég sjálf á krabbameinsdeildina og var sagt að lyfið væri komið en að ég yrði að bíða eftir símtali frá lækni. Það kom ekki svo ég hringdi sjálf, aftur. Þá sótti ég lyfið í apótekið á Landspítalanum fór með það á krabbameinsdeildina til að láta sprauta því í mig. Þegar ég mætti þangað vissi enginn hver hefði boðað mig en svo þegar hjúkr- unarfræðingur ætlaði að sprauta því í mig fann hún engan stað í næði svo á endanum fengum við að fara inn á skrifstofu til læknis sem var í símanum og að senda tölvupóst. Ég þurfti því að girða niður um mig þar og fá sprautu í rassinn svo þetta var svona frekar heimilislegt. Bilaður skanni Þegar lyfjunum hafði verið sprautað í Möttu átti hún að fara í skanna sem þá var bilaður. „Ég var sem sagt með rándýrt lyf í rassinum og gat ekki farið í skannann. Þegar hann komst loks í lag fékk ég tíma og á móti mér tók brosandi geislafræðingur sem tilkynnti mér þær góðu fréttir að bilaði armurinn á skannanum væri kominn í lag. Við gáfum hvor annarri fimmu og drifum okkur í verkið. Það er skemmst frá því að segja að þessa fjóra klukkutíma sem ég var í skann- anum var armurinn að detta út og inn og reglulega tilkynnti geislafræðingurinn mér stöðu mála. Þetta var farið að minna á það þegar Samúel Örn Erlingsson datt inn og út af alþingi eina kosninganóttina,“ segir Matta Krabbamein á niðurskurðartímum Matthea Sig- urðardóttir fékk skjaldkirtils- krabbamein árið 2005 og svo aftur síðasta haust. Hún segir mikinn mun krabbameinsmeð- ferðunum en þegar meinið kom í fyrra skiptið var vel haldið utan um hennar mál en núna í haust þurfti hún sjálf að bera sig eftir öllum upplýsingum og fann fyrir óöryggi. Eftir skurðaðgerð þar sem meinið var fjarlægt dvaldi hún í geymslu innan um skilrúm og tæki. Þrátt fyrir allt segir hún meinið hafa verið hressandi reynslu og áminn- ingu um það sem mestu máli skipti í lífinu – heilsuna og allt góða fólkið sem hún á að. Már Másson, forseti lyfjafræði- deildar HÍ, segir mikil- vægt að deildin geti svarað kröfum lyfja- iðnaðarins. ents, Sesselju Ómarsdótt- ur dósents, Elínar Soffíu Ólafsdóttur prófessors og Þorsteins Loftssonar prófessors. og hlær. Allt hafðist þetta þó og nokkrum dögum síðar kom símtal frá spítalanum um að engar krabbameinsfrumur væru sjáanlegar. Of ung fyrir brjóstamyndatöku Þó krabbameinið sem Matta fékk sé í flest- um tilvikum læknanlegt getur það dreift sér í brjóst, lungu og víðar og því er þörf á brjóstamyndatöku að meðferð lokinni. Árið 2005 var slík myndataka hluti af með- ferðinni og en núna í haust var það breytt svo hún reyndi sjálf að panta sér tíma hjá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð. „Ég er ekki nógu gömul til að fá að fara í brjósta- myndatöku svo ég fékk ekki tíma. Þegar ég leitaði eftir aðstoð frá Krabbameins- deild Landspítalans fékk ég þau svör að það væri ekki þeirra hlutverk að útvega mér brjóstamyndatöku. Mér finnst skipta máli að þessum reglum verði breytt því það er mikilvægt fyrir ungt fólk með krabba- mein að fá undanþágu frá aldurstakmark- inu.“ Hressandi reynsla Þrátt fyrir allt segir Matta krabbameinið hafa verið hressandi lífsreynslu og tæki- færi til að einbeita sér að því sem mestu máli skipti í lífinu. „Ég var alltaf að flýta mér og bæði í fullri vinnu og meistara- námi. Ég myndi alveg þiggja að fá svona högg reglulega í lífinu svo lengi sem það er ekki alvarlegra en þetta. Þegar krabba- meinið uppgötvaðist hætti allt að skipta máli nema fjölskyldan og heilsan og það er svo ótrúlega gott. Þetta voru þó ekki nema nokkrar vikur en samt dásamlegur tími.“ Matta finnur það á fólki í kringum sig á hennar aldri að það sé mikill hraði sem fylgir því að gera allt á sama tíma – vinna, mennta sig og ala upp börn. „Manni finnst alltaf að það sé svo margt sem þarf að klára og er með endalaust samviskubit yfir því að ná ekki að klára allt. Þessar vikur sem ég var með krabbameinið var ekkert annað á mínum minnislista en að vakna, anda, knúsa barnið mitt og láta mér batna. Við foreldrarnir vorum að vinna að því að láta son okkar sofna sjálfan en ég hætti því bara og knúsast í honum þangað til hann sofnar. Mér er eiginlega alveg sama þó ég þurfi alltaf að svæfa hann. Ekki að ég hafi haldið að þetta væri mitt síðasta heldur er svo gott að finna hvað skiptir máli. Hann verður vonandi farinn að sofna sjálfur um fermingu.“ Þrátt fyrir að hafa verið með geisla- baug og í brúnum kyrtli í nokkrar vikur viðurkennir hún þó að vera aðeins farin að fussa og sveia og pirra sig á einhverju sem skiptir ekki nokkru máli. „Mér tókst að vera dýrlingur í nokkrar vikur og það var dásamlegt að fá þá gjöf að sjá hvað það er sem virkilega skiptir máli. Svo er það gamla klisjan sem á svo sannarlega við – hvað það var gott að finna að hvað ég á góða að.“ Matthea Sigurðardóttir,

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.