Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.01.2014, Síða 58

Fréttatíminn - 10.01.2014, Síða 58
bakaðar kjúklingabringur Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar með ferskum kryddjurtum og rjómaosti. Gottimatinn.is  Leikhús engLar aLheimsins skapa tækifæri ytra Sýning Þjóðleikhússins á Englum alheimsins í sviðsetningu Þorleifs Arnar Arnarssonar hefur vakið óskipta athygli á undanförnum misserum. Orðspor sýningarinnar hefur borist langt út fyrir landsteinana og hingað hafa erlendir leikhússtjórar og óperustjórar lagt leið sína sérstaklega til að sjá sýninguna, ekki aðeins frá hinum þýskumælandi leikhúsheimi, þar sem Þorleifur hefur verið mikil- virkur undanfarin ár, heldur einnig frá Norðurlönd- unum, að því er fram kemur í tilkynningu Þjóðleik- hússins. „Hanna Tomta, leikhússtjóri Norska þjóðleik- hússins, heillaðist svo af sýningunni að hún gerði Þorleifi umsvifalaust tilboð um að leikstýra í Norska þjóðleikhúsinu. Sömu sögu er að segja af Per Boye Hansen, listrænum stjórnanda Norsku óperunnar. Hann sá sýningu á Englum alheimsins í byrjun janú- ar og nú þegar er afráðið að Þorleifur mun leikstýra einni stærstu óperu næsta leikárs í norsku Þjóðaró- perunni í Osló, Parsifal eftir Richard Wagner. Það má því til sanns vegar færa,“ segir enn fremur, „að tilboðunum rigni yfir Þorleif Örn. Hann hefur þó ekki sagt skilið við Þjóðleikhúsið og mun leikstýra jólasýningunni á Stóra sviðinu að ári. Sýn- ingar á Englum alheimsins eru komnar á sjöunda tuginn og ekkert lát er á aðsókn, svo sýningatíma- bilið hefur nú verið framlengt. Næstu helgi verða að auki tvær sýningar í Hofi á Akureyri.“ - jh Tilboðum rignir yfir Þorleif Örn leikstjóra Sviðsetning Þorleifs Arnar hefur vakið óskipta athygli. Myndir/Þjóðleikhúsið  sirrý og smári Búa á vinnustofunni s irrý og Smári fá hugmyndir á færibandi og reyna að láta þær sem flestar verða að veruleika. Þau búa á vinnustofu sinni, litla hreiðrinu, í Hafnar- firði þar sem þau eru alltaf að pæla og skapa. Þau hafa gefið út tvær bækur, mynd- skreyttu barnabókina Askur og prinsessan, og myndasöguna Vampíra. Þá halda þau úti vefmyndasögunni Mía og Mjálmar og hafa nýlokið við gerð tölvuleiksins Lori&Jitters. „Við erum bara alltaf að búa eitthvað til sama hvaða nöfnum það nefnist,“ segir Smári sem var í óða önn, ásamt Sirrý, að hengja upp sýningu á myndasögum þeirra í Borgarbókasafninu þegar Fréttatíminn náði í skottið á honum. „Við reynum bara að framkvæma flestar hugmyndirnar sem við fáum. Sirrý er teiknimeistarinn og við skrifum sögurnar saman og erum bæði hönnuðir.“ Vinnustofa Smára og Sirrýjar í Hafnar- firði nýtist einnig sem svefnherbergi, borð- stofa og stofa og þar una þau sér öllum stundum við myndasögugerð og þar flæða hugmyndirnar í bland við kaffi og kærleik. Íslenskur myndasögumarkaður hefur ekki enn náð þeim þroska að þau geti lifað á myndasögunum einum saman en Smári segir þau stefna ótrauð að því. „Við erum ekki komin þangað en það er stefnan. Ég veit ekki hversu lengi maður þarf að bíða en einhvern daginn mun það gerast,“ segir Smári og bendir á að jafn- vel þótt bækurnar seljist vel sé þetta ekki auðvelt á litla Íslandi. „En við höfum ekki val um neitt annað. Þetta er bara það sem við þurfum að gera.“ Sirrý og Smári gáfu út ævintýrið Askur og prinsessan 2010 en þar snúa þau upp á hefðina og staðalímyndir ævintýranna þar sem við sögu koma samkynhneigðar pers- ónur og prinsessa sem vill kannski ekkert endilega láta bjarga sér. Myndasagan Vampíra kom svo út 2012 og vefmyndasagan Mía og Mjálmar (http://miaogmjalmar.is) er í gangi af og til. „Svo datt okkur allt í einu í hug að búa til tölvuleik. Það var eitthvað sem við kunnum ekkert á en fiktuðum okkur bara áfram og gerðum þennan litla netleik, Lori&Jitters.“ Í dag, föstudag klukkan 16, opna þau sýn- ingu á verkum sínum í aðalsafni Borgar- bókasafns Reykjavíkur í Tryggvagötu. „Við erum í rauninni að skreyta veggi og hillur með myndasögum, síðum og myndum úr bæði barnabókinni okkar og Vampíru- myndasögunni. Og líka síður úr Míu og Mjálmari og fleiri litlum myndasögum.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Sögusmiðirnir Sirrý og Smári eru allt í senn teiknarar, höfundar og hönn- uðir sem ætla sér að lifa á myndasögugerð. Einhvern tímann. Þau búa á vinnustofunni sinni, litlu hreiðri í Hafnarfirði þar sem hugmyndirnar flæða alla daga í bland við kaffi og kærleik. Þau hafa gefið út tvær bækur, halda úti vefmyndasögu og eru nýbúin að búa til tölvuleik. Þau opna í dag, föstudag, sýningu á myndasögum sínum í Borgarbókasafninu. Sirrý og Smári skreyta mynda- sögudeild Borgar- bókasafnsins með verkum sínum og gefa gestum kost á að kynnast því helsta sem þau fást við í hreiðrinu sínu. Mynd/Hari Þetta er bara það sem við þurfum að gera. Þar sem kærleikurinn, hugmyndirnar og kaffið flæða Teygt á jólunum Grínarahópurinn sem stendur að Mið-Íslandi frumsýnir nýtt efni á föstudagskvöld og ætlar þannig að framlengja jólin. Sem fyrr treður hópurinn upp í varnarþingi sínu í Reykjavík, Þjóðleik- húskjallaranum. Nýja sýningin hefur hlotið nafnið Áfram Mið-Ísland! og strákarnir ganga svo langt að kalla Árna Pál Árnason, formann Samfylkingarinnar, til vitnis um ágæti sitt. Þeir hafa eftir honum að þeir bjóði upp á besta grínið í bænum. Í nýju sýningunni láta þeir Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Björn Bragi, Dóri DNA og Jóhann Alfreð sér ekkert mannlegt óviðkomandi. Sýningin stendur í tvær klukkustundir og á meðan taka þeir meðal annars á ást Íslendinga á sjálfum sér, barnauppeldi, misskilning í fjölskylduboðum, mataræði, fyrirmyndir og margt fleira. Sýningin Mið-Ísland í Kjallaranum sló eftirminnilega í gegn á síðasta ári en áður en yfir lauk var hún sýnd yfir 40 sinnum og voru gestir tæplega 10 þúsund talsins. Allir í bíó Fólk hefur hópast í kvikmyndahús síðustu tvær vikur eða svo enda óvenju margt sem freistar þar þessi dægrin. Þar ber einna hæst aðra myndina í þríleiknum um Hobbitann og The Secret Life of Walter Mitty en drjúgur þáttur Íslands í þeirri mynd kitlar landann greinilega. Þá er sá gamli meistari Martin Scorsese á fleygiferð með Leonardo DiCaprio í The Wolf of Wall Street. Sambíóin náðu þeim áfanga á tíu dögum í lok desember og byrjun janúar að 50.000 gestir komu í kvikmyndahús keðjunnar. Þótt jólin hafi ætíð verið drjúgur bíótími hjá Íslendingum hefur slíkur fjöldi aldrei látið sjá sig áður. Rætt um ullarpíkur Myndlistarkonan Kristín Gunnlaugsdóttir er þekktust fyrir fágaðar og fallegar íkonamyndir með trúarlegri táknmerk- ingu og upphafinni kyrrð. Hún sýndi á sér nýja hlið þegar hún opnaði sýn- inguna Sköpunarverk í Listasafni Íslands í nóvember en sýningin hverfist um þá mögnuðu uppsprettu lífsins, píkuna, sem listakonan útfærir meðal annars með risastórum lopaverkum. Á sunnudaginn klukkan 14 verður heimildarmynd um Kristínu frumsýnd í Listasafninu og að sýningu lokinni tekur við lista- mannaspjall Kristínar þar sem hún fer um sýninguna, ræðir inntak verkanna og svarar spurningum þátt- takenda. Sýningin hefur hlotið mikla athygli og verður framlengd til 9. febrúar og jafnframt má fá nýja bók um listakonuna á tilboðs- verði meðan sýningin stendur. 58 dægurmál Helgin 10.-12. janúar 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.