Fréttatíminn - 10.01.2014, Page 18
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
AFSLÁTTUR AF
VÖLDUM VÖRUM 70%
Allt a
ð
ÚTSALA
Valencia sett 3+1+1 verð 140.900 áður 4
69.900
Písa-Rín Sófasett 3+1 verð 169.900 áður
286.800
Rúm 153x200
frá 99.000
verð áður 218.900
Bast stólar
9.900
verð áður 24.900
Heilsukoddar
2.900
verð áður 6.900
Hillur
15.900
stærð: 80x206x42
Púðar og
fjarstýringavasar
verð frá 2.900
nokkrir litir
Sjónvarpsskápar
33.500
verð áður 47.900
Skenkur 235x80x52
frá 77.000
verð áður 221.900
Tungusófar frá 125.930 kr
Hornsófar frá 143.900 kr
Sófasett frá 140.900 kr
Edda Sif Pálsdóttir
hefur áhyggjur af
meiðslum leik
mannanna en spáir
sigri.
„Þetta fer auðvitað allt eftir því
hverjir spila með. Þetta gæti nú
litið betur út, en að því gefnu að til
dæmis Guðjón Valur og Aron verði
með þá vil ég vera frekar bjartsýn.
Auðvitað hefur þetta oft litið betur
út. Norska liðið spilaði á æfingamóti
um daginn og það gekk ekkert svo
vel en Noregur er svona lið sem Ís-
land vill alltaf vinna og það skapast
oft meiri stemning heldur en gegn
öðrum liðum.
Það væri auðvitað mjög sterkt
fyrir okkur að byrja á því að vinna
Noreg, upp á framhaldið en líka
fyrir móralinn og sjálfstraust liðs-
ins. Ef við vinnum Noreg þá gætum
við spilað gegn Ungverjalandi sem
við töpuðum eftirminnilega gegn
á Ólympíuleikunum svo við ættum
alveg að komast í milliriðla en það
veltur allt á þessum meiddu mönn-
um og því hverjir verða með. Ef þeir
verða með þá spái ég sigri.“
Adolf Ingi Erlingsson
spáir Íslendingum sigri
í ljósi slæmrar frammi
stöðu Norðmanna í
síðustu leikjum.
„Ég er ekkert allt of bjartsýnn
svona ljósi þess hvað margir leik-
menn eiga við meiðsli að stríða. Það
var líka smá spark í rassinn að sjá
hvernig leikurinn við Þjóðverja fór.
Hinsvegar verðum við að líta til þess
að Norðmenn hafa átt í dálitlu basli
sjálfir. Þeir hafa tapað öllum sínum
síðustu leikjum svo þeir virðast
ekki vera í sínu besta formi þessa
dagana. Því miður hefur maður nú
ekki séð leikina þeirra en úrslitin
benda til þess að það sé eitthvað
að hjá þeim því undirbúningurinn
hefur gengið hörmulega. Þeir stein-
lágu gegn Dönum og töpuðu gegn
Frökkum og meira að segja fyrir
Katörum. Hinsvegar gerðu svo Kat-
arar og Danir jafntefli svo kannski
eru Katarar miklu sterkari en við
bjuggumst við.“
Adolf segir þó koma í ljós á sunnu-
daginn hvort Norðmenn séu jafn lé-
legir og síðustu leikir segja til um.
„Við höfum gjarnan unnið þá síð-
ustu ár og ég held að við eigum fína
möguleika gegn þeim. Þeir horfa
væntanlega sömu augum á okkur
eftir tapið við Þjóðverja en á móti
kemur að Íslendingar unnu bæði
Austurríkismenn og Rússa. En þó
okkar lið líti vel út þá er maður skít-
hræddur vegna meiðslanna sem eru
að hrjá. Það hefur bara sýnt sig að
ef við ætlum að ná góðum árangri á
svona móti þá þurfa allir lykilmenn
að vera í góðu standi og það er því
miður ekki þannig núna.“
Adolf er samt bjart-
sýnn, þrátt fyrir
öll meiðslin, og
spáir sigri Ís-
lendinga. „Út-
koman verður
29-27 fyrir Ís-
lendinga.“
Hrafnhildur Skúladóttir
segir nýja ferska leik
menn vera okkar
helstu von í leiknum og
spáir jafntefli.
„Ég er svo brjálæðislega bjartsýn
alltaf en akkúrat núna er ég það
ekki. Þetta hefur bara verið aðeins
of mikið af því slæma hjá þeim upp
á síðkastið. Það eru svo margir
lykilleikmenn meiddir að við erum
í raun að tefla algjörlega nýju liði
til leiks. Auðvitað er mikilvægt að
þessir ungu og óreyndu, sem hafa
lítið verið að spila, fái leikreynslu
og það verður gaman að fá að fylgj-
ast með mönnum eins og Óla Guð-
munds sem er búinn að vera að spila
frábærlega úti í Svíþjóð en hefur
fengið að spreyta sig mjög lítið með
landsliðinu. Þessir gæjar sem hafa
fengið lítinn spilatíma gætu auðvi-
tað bara blómstrað. Þessir strákar
kunna allir að spila handbolta en
vantar bara reynslu.“
Hrafnhildur segir landsliðið hafa
verið mjög sterkt sóknarlega í æf-
ingaleikjunum en hefur áhyggjur
af vörninni. „Ég hef meiri áhyggjur
af vörninni þar sem margir varnar-
menn hafa dottið úr liðinu og þeir
sem hafa verið að koma inn í stað-
inn hafa svo líka verið að meiðast.
Það hlýtur bara einhver að vera
einhverstaðar með vúdúdúkkur að
stinga þá í drasl. Svo heldur þetta
áfram því Óli Bjarki, sem hefur ver-
ið að spila í Þýskalandi og byrjaði
svakalega vel á æfingamótinu, er
núna tognaður í nára. Þetta bara
hættir ekki.“
Hrafnhildur bendir á að EM sé
langsterkasta stórmótið. „Á HM
slæðast inn léleg lið sem hægt er
að vinna auðveldlega en það er ekki
eitt lið á EM sem er ekki gott. Það
er mjög mikilvægt að vinna þennan
leik til að komast upp úr riðlinum
en líka bara til að fá trúna því það
er drulluerfitt þegar svona gengur
yfir liðið. En þeir eru allir rosalega
sterkir karakterar og það verður
hægt að berja þá saman, sérstak-
lega vegna þess að það eru þarna
ungir leikmenn sem vilja sýna
hvað í þeim býr og það getur
komið okkur áfram. Þrátt fyr-
ir öll okkar meiðsl þá hef ég
trú á því að þetta verði mjög
jafn leikur. Saga okkar í
leikjum við Norðmenn er
frekar jöfn svo þetta getur
alveg dottið öðru hvoru
megin. Svo ég ætla að spá
jafntefli.“
Bjartsýni þrátt fyrir
meiðsli lykilmanna
Ástæða er til að hafa
áhyggjur af gengi lands
liðsins því mikil meiðsli hafa
herjað á hópinn. Nú kemur í
ljós hvernig liðinu gengur að
takast á við brotthvarf Ólafs Stefáns
sonar. Fréttatíminn kannaði hug þriggja
sérfræðinga fyrir fyrsta leik.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Það hlýtur bara
einhver að vera
einhverstaðar með
vúdúdúkkur að
stinga þá í drasl,“
Hrafnhildur Skúladóttir.
18 handbolti Helgin 10.12. janúar 2014