Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.01.2014, Page 26

Fréttatíminn - 10.01.2014, Page 26
26 ferðalög Helgin 10.-12. janúar 2014  Áfangastaðir Edmonton, VancouVEr, gEnf og BasEl Bætast Við Fáðu meira út úr Fríinu Viltu afslátt af hótelgistingu, ókeypis morgunmat eða Frítt Freyðivín upp á herbergi? bókaðu sértilboð á gistingu, ódýr hótel og bílaleigubíla út um allan heim á túristi.is T Ú R I S T I Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is Veldu öruggt start með TUDOR. Gott ferðaár fram undan Þ að stefnir í að meirihluti flugfélaganna á Keflavíkurflugvelli fjölgi ferðum sínum í ár. Samkeppnin eykst á nokkrum flugleiðum og fjórir nýir áfangastaðir bætast við. Það eru kanadísku borgirnar Edmonton og Vancouver og Genf og Basel í Sviss. Ferðir til síðastnefndu borgarinnar eru á vegum Easy Jet en það er Icelandair sem bætir hinum þremur við leiðakerfi sitt í ár. Jómfrúarflugið til Edmonton verður farið í byrjun mars en hinar komast á kortið í vor og sumar. Önnur félög halda sig við sömu áfangastaði og á síðasta ári eða blanda sér í baráttuna um farþega á flugleiðum sem nú þegar eru í boði. Nærri 8 ferðir á dag til Bretlands Fyrir tveimur árum síðan var flogið héðan nítján sinnum í viku til London en í ár verða ferðirnar tvöfalt fleiri. Við þetta bætist svo áætlunarflug til Bristol, Ed- inborgar, Glasgow og Manchester og í heildina verður boðið upp á 54 ferðir á viku til Bretlands í ár frá Kefla- vík. Ástæðan fyrir þessari miklu aukningu er kannski sú staðreynd að breskum ferðamönnum hafði fjölgað um 41 prósent hér á landi milli ára í byrjun desember, samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Á fjarlægar slóðir Það er ekki bara Ísland sem nýtur mjög aukinna vinsælda meðal erlendra ferðamanna. Þau í Búrma eru að ganga í gegnum álíka uppsveiflu því eftir að her- foringastjórn landsins gerði útlendingum auðveldara um vik að heimsækja Búrma hefur straumurinn legið þangað. Þeir sem vilja heimsækja landið og njóta leið- sagnar íslensks fararstjóra geta gert það í mars þegar hópur á vegum Bændaferða leggur land undir fót. Þeir sem vilja til fjarlægra landa í ár geta valið úr þó nokkr- um ferðum til Asíu, S-Ameríku og Afríku í ár með ís- lenskum ferðaskrifstofum. En sennilega er óvenjuleg- asta ferðin á vegum Trans-Atlantic því ferðaskrifstofan efnir til hópferðar til N-Kóreu í vor. Aukin samkeppni í sólarlandaferðum Sumarblíðan lét varla sjá sig á suðvesturhorninu í fyrra og mikil eftirspurn var eftir ferðum héðan til útlanda þegar líða tók á júlí. Þrátt fyrir að margir Íslendingar hafi gert sér ferð til útlanda yfir sumarmánuðina þá var október sá mánuður sem flestir Íslendingar flugu frá Keflavíkurflugvelli á síðasta ári. Er þetta í fyrsta skipti, síðan Ferðamálastofa hóf mælingar í byrjun aldarinnar, sem einn af sumarmánuðunum er ekki vinsælasti mánuðurinn þegar litið er til utanlandsferða Íslend- inga. Hvort þetta mynstur er komið til að vera kemur í ljós en það er útlit fyrir að framboð á sólarlandaferðum frá Íslandi eigi eftir að aukast í sumar, til dæmis með tilkomu norrænu ferðaskrifstofunnar Nazar. Allt frá hruni hefur utanlandsferðum Íslendinga fjölgað jafnt og þétt milli ára en ennþá er þó nokkuð í að ferðagleðin nái álíka hæðum og árið 2007. Þá flugu ríflega 406 þúsund íslenskir farþegar frá Keflavík en í lok nóvember í fyrra var talan komin upp í um 340 þúsund. Miðað við framboð á ferðum er líklegt að við nálgumst þetta sex ára met enn frekar í ár. Kristján Sigurjónsson heldur úti ferðavefnum Túristi.is þar sem finna má hátt í fimmtán hundruð ferðagreinar. Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is Ferðaþjónustan í Búrma hefur dafnað síðustu ár og í mars heimsækir hópur á vegum Bændaferða landið. Það verður flogið 54 sinnum í viku til Bretlands frá Keflavík í ár. Framboðið hefur aukist hratt síðustu ár. Þeir sem ætla til útlanda í ár hafa úr miklu að moða og skiptir þá engu hvort þeir vilja fara á eigin vegum eða með fararstjóra. www.fi.is Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Ferðaáætlun FÍ 2 014 er komin út Upplifðu náttúru Íslands

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.