Fréttatíminn - 10.01.2014, Síða 31
Námskeið
Helgin 10.-12. janúar 2014
Skólinn býður auk þess í
fyrsta sinn í langan tíma
upp á námskeið í listasögu
bls. 40
Börnin mín trúa því ekki
hvað mér gengur vel
Svala Arnardóttir breytti lífi sínu til
hins betra þegar hún fór í nám.
I ngibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík, telur símenntun fyrir fullorðna
vera mikilvæga þar sem öll höfum
við gott af því að takast á við eitthvað
nýtt. Hún mælir með því að fólk sem
er að koma í fyrsta sinn í skólann byrji
á einum af grunnáföngunum þremur
sem eru í boði fyrir fullorðna, en þeir
eru teikning, litaskynjun og áfangi
sem kallast form/rými/hönnun. Allir
þessir áfangar eiga það sameiginlegt
að leggja áherslu á mikilvægan þátt
í allri sköpun, sem er að skynja um-
hverfi okkar á nákvæmari og dýpri
hátt.
„Það sem við leggjum ríka áherslu
á hér í Myndlistaskólanum þegar fólk
vill byrja á einhverju, er að mæla með
teikningu, sama hvaða námskeiði
fólk hefur svo áhuga á í framhaldinu.
Teikningin kennir manni að taka betur
eftir og bara nýta þetta stórkostlega
skynfæri okkar, sjónina með markviss-
ari hætti. Með því að læra að teikna þá
lærir maður að horfa á nákvæmari og
yfirvegaðri hátt á umhverfi sitt. Ég er
alveg viss um að þetta hjálpar okkur á
svo mörgum öðrum sviðum.“
Ingibjörg segir líka mikilvægt að
læra að skynja litina í umhverfinu á ná-
kvæmari og dýpri hátt. „Það er verið
að segja manni svo mikið með litum án
þess að við tökum endilega eftir því og
að skilja þessi skilaboð gerir lífið bara
skemmtilegra. Þriðji grunnáfanginn,
Form/rými/hönnun, er svo kenndur af
tveimur kennurum, myndlistarmanni
og arkitekt, og fjallar um það hvernig
við greinum umhverfi okkar og horf-
um á myndbyggingu í öllu manngerðu
umhverfi okkar eins og byggingum,
margs konar hönnun og myndlist.“
Keramik námskeiðin hafa alltaf
verið feikivinsæl hjá Myndlistaskól-
anum og nú eru bara nokkur sæti laus
en skólinn býður þetta misserið upp
á nýjung sem er gifsmótagerð og er
ætluð öllum sem hafa áhuga að vinna
í þrívídd. Skólinn býður auk þess í
fyrsta sinn í langan tíma upp á nám-
skeið í listasögu en hún er kennd af
Einari Garibaldi myndlistarmanni.
Símenntun mynlIStaSkólInn í Reykjavík
Fjölbreytt úrval námskeiða
Ingibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík, er viss um gildi sköpunarkraftsins fyrir okkar daglega líf og
telur teikningu geta nýst okkur vel á mörgum sviðum lífsins.
„Einar er einnig starfandi leiðsögumaður og
er því mjög flinkur í að koma efninu frá sér
á áhugaverðan hátt. Þetta námskeið vakti
mikla lukku fyrir jól og endaði á ferð hópsins
til Parísar.“
Ingibjörg segir eitt það skemmtilegasta
við skólann vera hvað nemendahópurinn sé
breiður og að innan hans sé allskonar fólk
sem lengi hefur dreymt um að virkja sköpun-
arkraftinn. „Það er eitthvað hér við allra hæfi
og við höfum oft verið með þrjár kynslóðir
hérna hjá okkur á sama tíma. Börn, afar og
ömmur, pabbar og mömmur koma svo öll
saman á vorsýninguna sem er sérstaklega
gaman. Hér eru nemendur frá fjögurra ára
aldri til áttatíu og fjögurra ára aldurs. Það er
líka svo fjölbreyttur hópur fólks hér. Eitt sinn
kom hér smiður sem hafði áhuga á að læra að
teikna til að geta komið hugsuninni til skila.
Það getur stundum verið svo erfitt að út-
skýra hlutina með orðum en miklu auðveld-
ara að nota teikninguna. Það getur nýst
mörgum að geta mótað hugmyndir sínar
með teikningu. Svo man ég eftir einum
öldrunarlækni sem lærði hér og sagðist hafa
lært að horfa nákvæmar eftir einkennum hjá
sjúklingum sínum eftir að hafa lært teikn-
ingu. Það er bara öllum hollt og gott að læra
að teikna og horfa á hlutina upp á nýtt.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Með því að læra að teikna þá lærir maður að
horfa á nákvæmari og yfirvegaðri hátt á um-
hverfi sitt“ segir Ingibjörg Jóhannsdóttir, skóla-
stjóri Myndlistaskólans í Reykjavík.