Fréttatíminn - 10.01.2014, Side 32
námskeið Helgin 10.-12. janúar 201432
7. - 20. janúar
ÖFLUGT
FYRIR ALLA
Námskeið Dale CarNegie
D ale Carnegie stofnaði fyrirtækið árið 1912 í Bandaríkjunum þegar hann hélt sitt fyrsta námskeið í ræðulist. Námskeiðið þróaðist
svo smátt og smátt yfir í að bjóða upp á ýmsar leiðir
til að efla sjálfstraust og framkomu en stofnandinn
er auk þess hvað þekktastur fyrir að hafa sett saman
30 gullnar reglur um mannleg samskipti. Þessi boð-
skapur hans hefur verið arftökum hans innblástur
og grunnur starfsins í fyrirtækinu sem sérhæfir sig í
að hvetja fólk til dáða og ná hámarksárangri í leik og
starfi. Reglur Carnegie fjalla um samskipti fólks og
sambönd auk leiðtogahæfni og streitu. Fyrirtækið er
með útibú út um allan heim og hefur íslenska útibúið
vaxið jafnt og þétt í 48 ár við góðan orðstír.
Bókin „Vinsældir og áhrif“ er kjölfestan í nám-
skeiðunum auk hinna 30 gullnu samskiptareglna.
Fyrirtækið býður upp á ýmiskonar námskeið sem
beinast helst að því að efla leiðtogahæfni, ná færni í
samskiptum, framkomu og tjáningu, efla tengslanet,
læra að forgangsraða og minnka stress. Framboðið
er fyrir fólk á öllum aldri, einstaklinga eða fyrirtæki.
Núverandi eigendur Dale Carnegie á Íslandi eru þau
Jón Jósafat Björnsson og Unnur Magnúsdóttir.
Jón Jósafat, annar eigendanna, segir Framakort-
in vera góða leið til að kynnast starfinu. „Frama-
kortið býður upp á stuttu námskeiðin okkar en þau
lengri standa sex til tíu vikur. Tuttugu og tvö þús-
und manns hafa sótt þessi lengri námskeið okkar
og hafa áhuga á að koma aftur en upplifa eitthvað
nýtt. Þessi markhópur sýndi því áhuga að komast
á styttri vinnustofur á sama tíma og leikhúskortin
voru að slá í gegn. Þannig datt okkur í hug að
pakka menntun inn á sama hátt og menn eru að
gera þar. Einu sinni á vori og einu sinni á hausti
setjum við fram fimmtán til tuttugu vinnustofur.
Framakortið er áskriftarleið að þessum vinnustof-
um þar sem þú getur valið þér þrjár af þeim sem
í boði eru en hver vinnustofa tekur 90 mínútur,“
segir Jósafat og bendir einnig á að það séu í raun
tveir markhópar sem þessi kort beinist að.
„Það er annars vegar fólkið sem er búið
að koma á námskeið til okkar og vill fá
meira og þá sérhæfðari leið. Svo eru það
allir hinir sem langar til að koma á langt
námskeið en horfa á tímann og peningana
og ákveða að prófa svona vinnustofu áður
en þeir skuldbinda sig í átta vikur. Mjög
margir af þeim sem prófa framakortið fara
svo á lengra námskeið. Vinnustofurnar
miðast við einstaklinga tuttugu ára og
eldri og efnið er mjög fjölbreytt. Eitt nám-
skeiðið miðast til dæmis við ferðalög og
menningu og hvernig þú eigir að bera þig
að ef þú vilt mynda góð tengsl í ókunnugu
landi. Auk þess eru stjórnendavinnustofur
sem ganga út á að finna þinn eigin stjórn-
endastíl og stíl annarra líka. En auk þess
eru ýmis praktísk námskeið í boði sem
henta öllum eins og tímastjórnunarnámskeið.“
Dale Carnegie á Íslandi hefur tekið þátt í rann-
sóknum á virkni starfsmanna og komist að því að
tuttugu og tvö prósent starfsmanna fyrirtækja
eru það sem kallast „óvirkir“. „Já, við höfum verið
að vinna að þessum rannsóknum síðastliðin 3 ár í
samstarfi við markaðsrannsóknarfyritækið MMR
og mælt með þeim virkni starfandi Íslendinga.
Þetta er gert með úrtaki úr þjóðskrá og netkönn-
un í kjölfarið. Það sem gerir þessa rannsókn ólíka
öðrum vinnustaðagreiningum er að þarna erum
við að búa til gagnagrunn sem við veljum í handa-
hófskennt. Önnur fyrirtæki hafa gert vinnustaða-
greiningu í þrjátíu til fjörutíu fyrirtækjum og taka
svo niðurstöður þeirra og setja saman í pott sem
gefur þá hugmynd um hvað fólki úr þessum til-
teknu fyrirtækjum finnst. Við förum aftur á móti
þvert yfir allt landið. Niðurstaða okkar er sú að
við erum á svipuðu róli og mörg önnur Evrópuríki
varðandi óvirkni starfsmanna. Rúmlega tuttugu
prósent af starfsfólki fyrirtækja er
óvirkt, reyndar er þetta aðeins misjafnt
eftir gerð fyrirtækja. Þetta er fólk sem
finnur ekki til starfsins sem það er í,
er áhugalaust og gjarnan að leita sér
að nýrri vinnu. Það eru margir sam-
verkandi þættir sem gera starfsmann
virkan eða óvirkan og þessir þættir
geta breyst frá einum degi til annars.
Ákveðnir hlutir í umhverfinu stýra
þessari virkni og tengjast oftast næsta
yfirmanni. Við erum með námskeið í
boði sem eru til þess gerð að virkja ein-
staklinga og líka sem hjálpa stjórnend-
um að virkja undirmenn.“
Dale Carnegie er ISO vottað fyrir-
tæki sem þýðir að það þarf að mæla
árangur þjálfunarinnar markvisst
og eru öll námskeið þeirra um allan
heim metin eftir samskonar kvarða. Í flestum
ríkjum Bandaríkjanna eru námskeiðin metin til
námseininga í mennta-og háskólum og unnið er
að því að fá þau metin á sama hátt hér á landi.
Jóni Jósafat finnst að starfsmenn fyrirtækja eigi
að vera duglegir að sækja sér endurmenntun
og eigi auk þess rétt á því, „menntamál snerta
launafólk talsvert og í nýjum kjarasamningum
hefur framlag til menntamála frá atvinnurekend-
um til launafólks hækkað úr 0.2 % í 0.3 %, sem er
50% hækkun á því framlagi, en í sumum geirum
er framlagið upp í 0.6 %. Þetta eru peningar sem
eru aðgengilegir fyrir fyrirtæki og launafólk
sem vill sækja sér einhverskonar endurmenntun.
Þessi menntun þarf að sjálfsögðu að uppfylla
ákveðnar gæðakröfur og við uppfyllum þær hjá
Dale Carnegie.“
Halla Harðardóttir.
halla@frettatiminn.is
Námskeið sem hjálpa fólki
að ná hámarksárangri
Rúmlega
tuttugu
prósent af
starfsfólki
fyrirtækja
er óvirkt.
kyNfræðsla eNDurmeNNtuN HÍ
s igríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur heldur námskeiðið „Kjöftum um
kynlíf við börn og unglinga“
hjá Endurmenntun Háskóla Ís-
lands og er að skrifa bók um
sama umfjöllunarefni sem mun
koma út á þessu ári. Samkvæmt
upplýsingum Sigríðar Daggar
eru íslensk ungmenni yngri en
meðal viðmiðunarþjóða þegar
þau hefja kynmök, eiga fleiri
rekkjunauta, smitast oftar af
kynsjúkdómum og horfa meira
á klám. Þess vegna sé þörf á því
að fræða foreldra sem og upp-
eldisaðila í að ræða við börn og
unglinga um kynlíf. Sigríður
segir virka fræðslu seinka kyn-
ferðislegri hegðun og gera hana
ábyrgari.
„Bókin verður miklu ýtarlegri
fyrir hvert aldursstig og tekur
fyrir dæmi og leiðir í raun for-
eldra eftir því hvaða stigi þau
hafa áhuga á. Námskeiðið legg-
ur meiri áherslu á unglingana
og tekur dæmi um hvernig kyn-
fræðsla í skólum er í dag. Kyn-
fræðsla í skólum þarf að aukast
og það þarf að endurskoða efnið
sem verið er að kenna. Einnig
þarf að styðja betur við kennara
og skólahjúkrunarfræðinga,“
segir Sigríður. Segir hún að
rannsóknir hafi sýnt að hluti
grunnskólakennara eigi erfitt
með að sjá um þessa kennslu
eða ræða þessi mál við börn og
unglinga.
„Kynfræðingarnir geta stutt
kennarana og skólahjúkr-
unarfræðingana því oft fá þeir
spurningar sem þeir vita ekki
hvernig á að svara og ýmis
efni gleymast. Þegar ég hef
verið að hjálpa kennurum hef
ég bent þeim á ýmsa vinkla og
hvernig þeir geta staðið fyrir
svörum og hvað krakkarnir
eru að pæla því ég er komin
með ágætan gagnabanka um
kynhegðun unglinga,“ segir
Sigríður Dögg.
Á Íslandi eru aðeins þrjár
konur sem bera titilinn „kyn-
fræðingur“ en í dag þarf að fara
utan í meistaranám til þess að
fá starfsréttindi sem kynfræð-
ingur.
Hjá Endurmenntun Háskóla
Íslands eru fjölmörg námskeið
í boði til þess að bæta persónu-
lega hæfni, tungumál, starfs-
hæfni, sem og menningu. Sjá á
heimasíðunni endurmenntun.is.
Það þarf að kjafta við
unglinga um kynlíf
Íslensk ungmenni eru yngri en meðal viðmiðunarþjóða
þegar þau hefja kynmök, horfa á meira klám og smitast
oftar af kynsjúkdómum.
Sigríður
Dögg
Arnar-
dóttir
kynfræð-
ingur.
Mynd/Hari
Jón Jósafat Björnsson. Mynd/Hari