Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.01.2014, Qupperneq 38

Fréttatíminn - 10.01.2014, Qupperneq 38
námskeið Helgin 10.-12. janúar 201438 KYNNING S kema er ungt sprotafyrirtæki sem hefur verið starfandi í tvö og hálft ár, en fyrirtækið var stofnað með það að markmiði að uppfæra menntun í takt við tækniþróun. Skema býður upp á námskeið fyrir börn frá 7 ára aldri í tölvu- leikjaforritun auk þess að bjóða kennurum upp á endurmenntunarnámskeið í notkun tækni í skólastarfi og veita skólum ráðgjöf. Á öllum námskeiðum Skema er unnið út frá Skema aðferðafræðinni sem byggir á niðurstöðum rannsókna í sálfræði, kennslufræði og tölvunarfræði og felur meðal annars í sér að notast við jákvæða styrkingu og jafningjakennslu. Mikið úrval námskeiða fyrir börn Skema námskeiðin hafa notið mikilla vin- sælda frá upphafi og býður fyrirtækið upp á fjölda námskeiða fyrir börn á aldrinum 7-16 ára. Á vorönn er boðið upp á byrjend- anámskeið og framhaldsnámskeið í tölvu- leikjaforritun auk námskeiðs í Unity 3D, sem er eitt besta leikjahönnunarforritið í dag og notað er af fagmönnum um allan heim. Námskeiðin vara í 10 vikur og er hægt að nota frístundastyrki sveitarfélag- anna til að greiða fyrir þau. Sem fyrr verður Skema með námskeið víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, til dæm- is í Ingunnarskóla, Lindaskóla, Hofsstaða- skóla, Mýrarhúsaskóla og Háskólanum í Reykjavík. Einnig verður kennt í Hafnar- firði og Kópavogi. Þá verður Skema með námskeið á landsbyggðinni í samstarfi við símenntunarstöðvar. Á Akureyri verður 10 vikna forritunarnámskeið í samstarfi við Símey og í Keflavík verða helgarnámskeið í forritun í samstarfi við Miðstöð Símennt- unar á Suðurnesjum (MSS). Eitt vinsælasta námskeið Skema er án efa Minecraft námskeiðið, en tölvuleikur- inn Minecraft nýtur mikilla vinsælda um heim allan. Námskeiðin eru sex klukku- stunda helgarnámskeið þar sem farið er í öll helstu atriði sem tengjast leiknum, svo sem að „modda“ og að setja upp server. Stefnt er að því að halda þau á sex vikna fresti á vorönninni. Skema skapar kvenfyrirmyndir Skema leggur ríka áherslu á að auka hlut kvenna í tækni og verður því með helgar- námskeið fyrir stelpur á aldrinum 10-13 ára sem ber heitið Tæknistelpur. Á nám- skeiðinu verður farið í undirstöðuatriði forritunar og þau samþætt sjálfsmyndar- vinnu. Markmið þessa sérhannaða nám- skeiðs fyrir stelpur er að útskrifa tækni- stelpur með skýra og jákvæða sjálfsmynd. Meðal kennara verður Kristín Tómasdóttir rithöfundur sem hefur meðal annars gefið út bækurnar Stelpur geta allt og Strákar. Endurmenntun fyrir kennara Auk þess að kenna krökkum á öllum aldri að forrita leggur Skema mikla áherslu á endurmenntun kennara og er því með námskeið ætluð kennurum í notkun upp- lýsingatækni í kennslu ásamt innleiðingu á forritun og spjaldtölvum í almennt skóla- starf. Þá býður Skema skólum á öllum skólastigum ráðgjöf í innleiðingu á for- ritunarkennslu í námskrá auk notkunar tækni í skólastarfi. Framúrskarandi nemendur Frá því starfsemi hófst hefur Skema teymið hvatt nemendur sína til að stíga fram og taka þátt í öllum þeim forritunar- keppnum sem í boði eru. Nokkrir þeirra hafa þar náð góðum árangri og má meðal annars nefna Ólínu Helgu Sverrisdóttur, 13 ára nemanda Skema, sem lenti í öðru sæti í valinu á Tæknistelpu ársins í Evrópu árið 2013 (Digital Girl of the Year Award). Þá sigraði Kjartan Örn Styrkársson í Kodu Challenge sem haldin var á vegum Microsoft á alþjóðavísu í kjölfar þátttöku sinni í íslensku keppninni sem haldin var á vegum Skema í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Microsoft á Íslandi. Skema býst við enn meiri árangri nemenda sinna á næstu misserum og mun að sjálfsögðu hvetja þá áfram til dáða. Fjölbreytt tækninámskeið fyrir börn Helgarnámskeið í forritun fyrir stelpur á aldrinum 10-13 ára og námskeið í Minecraft meðal þess sem í boði er. Flest stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðum okkar Heimilisiðnaðarfélag Íslands Heimilisiðnaðarskólinn Prjón hekl Þjóðbúningasaumur baldýring útsaumur orkering knipl jurtalitun tóvinna víravirki vefnaður leðursaumur og margt eiraVerslun Mikið úrval af íslensku prjónabandi og lopa, prjónum, prjónabókum, og öðrum blöðum. Efni og önnur tillegg fyrir þjóðbúningasaum og jurtalitun. Gjafakort. Verið velkomin. Opið alla daga kl. 12-18 Pantone 137 Námskeið á döfinni við Kvíðameðferðarstöðina Sjálfstyrkingarnámskeið 15. janúar Félagsfælninámskeið 21. janúar Námskeið við athyglisbresti og kvíða 6. febrúar Námskeið við svefnleysi 11. febrúar Öryggi í námi 12. febrúar Nánari upplýsingar má finna á www.kms.is en skráning og fyrirspurnir í síma 534-0110 og kms@kms.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.