Fréttatíminn - 10.01.2014, Page 54
Verk
Rúnu í
hina ýmsu
miðla bera
sterk höf-
undarein-
kenni og
eru alltaf
auðþekkj-
anleg.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Jeppi á Fjalli – lýkur í janúar
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Sun 12/1 kl. 13:00 Fös 24/1 kl. 19:00 Sun 2/2 kl. 13:00 aukas
Fös 17/1 kl. 19:00 Lau 25/1 kl. 13:00 Fim 6/2 kl. 19:00 aukas
Lau 18/1 kl. 13:00 Sun 26/1 kl. 13:00 Fös 7/2 kl. 19:00 aukas
Sun 19/1 kl. 13:00 Fim 30/1 kl. 19:00 Lau 8/2 kl. 13:00 aukas
Mið 22/1 kl. 19:00 aukas Lau 1/2 kl. 13:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Jeppi á Fjalli (Gamla bíó)
Fös 10/1 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Lau 18/1 kl. 20:00
Lau 11/1 kl. 20:00 Fim 16/1 kl. 20:00 Sun 19/1 kl. 20:00
Sun 12/1 kl. 20:00 Fös 17/1 kl. 20:00
Flytur í Gamla bíó í janúar vegna mikilla vinsælda. Síðustu sýningar!
Hamlet (Stóra sviðið)
Fös 10/1 kl. 20:00 fors Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Lau 25/1 kl. 20:00 aukas
Lau 11/1 kl. 20:00 frums Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k.
Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k.
Mið 15/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Sun 2/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Fös 31/1 kl. 20:00 frums Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Þri 25/2 kl. 20:00 15.k
Lau 1/2 kl. 20:00 2.k Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Fös 28/2 kl. 20:00 16.k
Sun 2/2 kl. 20:00 3.k Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k
Þri 4/2 kl. 20:00 4.k Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k
Mið 5/2 kl. 20:00 aukas Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Lau 22/2 kl. 20:00 13.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Sun 23/2 kl. 20:00 14.k
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
TónlisT Töfrahurðinni hrundið upp með hvelli á sunnudaginn
Fjörugir Vínartónleikar í Salnum
v ínartónleikar verða í Saln-um í Kópavogi næstkom-andi sunnudag, 12. janúar
klukkan 13. „Nú verður Töfra-
hurðinni hrundið upp með hvelli
og sprengjum, Vínartónlistin mun
hljóma og dansinn duna. Síðustu ár
hafa Vínartónleikar Töfrahurðar-
innar verið í umsjá flautuleikarans
Pamela De Sensi og slegið rækilega
í gegn,“ segir í tilkynningu en tón-
leikarnir í ár verða með veglegu
sniði, en nú munu tónskáldin
Jóhannes Strauss og Madame
Pirruette verða aðal stjörnur tón-
leikanna.
„Vínarvalsarnir verða leiknir af
Skólahljómsveit Kópavogs undir
styrkri stjórn Össurar Geirssonar
ásamt fjölda gesta; þar má nefna
tenórinn Gissur Pál Gissurarson og
Ragnhildi Þórhallsdóttur sópran
og hina sprellfjörugu listamenn frá
Sirkus Íslandi. Einleikarar á picco-
loflautu verða Margrét Stefánsdótt-
ir og Pamela De Sensi.
Þeir sem ekki kunna vals þurfa
ekki að örvænta vegna þess að
boðið verður upp á danskennslu á
staðnum svo allir geti tekið þátt.
Nemendur úr Dansskóla Sigurðar
Hákonarsonar leiða dansinn af
sinni alkunnu snilld. Kynnar tón-
leikanna eru Kolbrún Anna Björns-
dóttir og Sigurþór Heimisson,“
segir enn fremur.
Á undan tónleikum, klukkan
12.30, verður boðið upp á barnafor-
drykk á torginu, sprell og flugelda.
„Við hvetjum alla, unga sem aldna
að koma í galakjólum og smóking.
Trúðar frá Sirkus Íslandi skemmta
tónleikagestum í forsalnum fyrir
tónleika og einnig verður boðið upp
á andlitsmálun.
Nú í ár fagnar Töfrahurðin 5
ára afmæli og þá er sérstaklega
við hæfi að láta drauminn rætast
og mæta á þessa einstöku Vínar-
tónleika. En síðan er alltaf eitthvað
nýtt og spennandi að gerast í þess-
ari fjörugu og skapandi tónleika-
röð.“ - jh
Töfrahurð – fjölskyldutónleikar – verða í Salnum Kópavogi á sunnudaginn.
Tónleikar BlásarakvinTeTT reykjavíkur
Kvintettar englanna
Blásarakvintett Reykjavíkur hefur nýja
árið í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna
húsinu næstkomandi sunnudag, 12.
janúar, klukkan 15.15.
Kvintettar Englanna er yfirskrift tón-
leikanna en þar verða leiknir Blásara-
kvintettar eftir þrjú ensk tónskáld sem
lifðu mjög frábrugðnu lífi en tónlist
þeirra allra er óumdeilanlega hlustenda-
væn um leið og hún er skemmtilega
krefjandi fyrir flytjendur, að því er
fram kemur í tilkynningu. Tónleikarnir
hefjast á Kvintett í F dúr op. 81 nr. 3
eftir George Onslow (1784–1852). Annar
blásarakvintettinn sem fluttur verður
er Kvintett í As dúr op. 14 eftir Gustav
Holst (1874–1934). Lokaverk tónleikanna
verður fjörugur kvintett eftir Malcolm
Arnold (1921–2006); Þrír sjóarasöngvar
frá 1943. Arnold samdi mörg tónverk
bæði fyrir hljómsveit og kammerhópa og
hlaut Óskarsverðlaun fyrir tónlist sína við
kvikmyndina Brúin yfir Kwaifljótið.
Blásarakvintett Reykjavíkur var
stofnaður 1981. Hópurinn hefur haldið
tónleika um gervalla Evrópu, Bandaríkin,
Asíu og Ástralíu þar sem hann hefur
m.a. leikið í Carnegie Hall í New York,
Wigmore Hall í London og Óperuhúsinu í
Sydney. Hann var tilnefndur til Tónlistar-
verðlauna Norðurlandaráðs árið 1995.
Blásarakvintett Reykjavíkur skipa
Hallfríður Ólafsdóttir flauta, Daði
Kolbeinsson óbó, Einar Jóhannesson
klarínetta, Jósef Ognibene horn og
Darri Mikaelsson fagott.
Rúna og Gestur, eiginmaður hennar, ætluðu sér alltaf að gera listsköpun að ævistarfi og í Hafnarborg gefur nú að líta gott
yfirlit yfir langan og fjölbreyttan feril listakonunnar. Mynd/Íris Dögg Einarsdóttir
hafnarBorg sýning rúnu heldur áfram
Dvalið lengur hjá djúpu vatni
l istakonan Rúna, Sigrún Guðjóns-dóttir, hefur unnið með ýmsan efnivið á löngum ferli og unnið
að listsköpun sinni með margvíslegum
hætti. Hún hefur meðal annars fengist við
skreytingu leirmuna, myndir málaðar á
stein- og postulínsflísar og efnismikinn
japanskan pappír, bókaskreytingar og
auglýsingagerð. Þá hefur hún gert fjölda
veggmynda fyrir opinberar byggingar
og þá oft í samstarfi við eiginmann sinn,
Gest Þorgrímsson.
Sýningin Dvalið hjá djúpu vatni stendur
yfir í Hafnarborg og hefur verið fram-
lengd til 26. janúar. Þar gefur að líta gott
yfirlit yfir feril Rúnu en elstu verkin á sýn-
ingunni eru frá því í kringum 1950 en þau
nýjustu frá þessu ári enda vinnur Rúna
enn ótrauð að listsköpun sinni sem hún
hefur helgað sig algerlega eftir að hún
hætti kennslu upp úr aldamótum. Enn
má sífellt sjá nýja þróun í verkum hennar
enda er hún óhrædd við að gera tilraunir
með myndmál og vinnuaðferðir og sköp-
unarþráin jafnsterk og lifandi og áður.
Heiti sýningarinnar, Dvalið hjá djúpu
vatni, er fengið að láni úr frumgerð
ljóðaflokksins um Tímann og vatnið. Vatn
táknar oft huga eða hugarástand, en það
er líka upphaf og forsenda lífs.
Verk Rúnu í hina ýmsu miðla bera sterk
höfundareinkenni og eru alltaf auðþekkj-
anleg. Maðurinn og mennskan eru áber-
andi yrkisefni en mjúk form og ljóðræna
einkenna verkin. Áberandi myndefni eru
kvenfígúrur, fiskar, fuglar, fjöll og fjara,
speglanir og óræð form, en fíngerðar og
léttar teikningar hennar bera ótvíræðum
hæfileikum vitni.
Á sýningunni má sjá dæmi um fjöl-
breyttan listferil Rúnu, bæði um frjálsa
myndsköpun og hönnunarstörf. Hún
hefur komið víða við, verið frumkvöðull
í gerð leirmuna á Íslandi, starfað með
þekktum og virtum erlendum hönnunar-
fyrirtækjum á borð við danska postulíns-
fyrirtækið Bing & Grøndahl og Villeroy
& Boch þar sem hún hannaði veggflísar á
baðherbergi sem síðar voru settar í fjölda-
framleiðslu. Myndefnið var í anda fyrri
verka hennar, fiskar og fígúrur tengdar
hafinu.
Rúna er fædd 1926 og hóf nám í Hand-
íða- og myndlistarskólanum árið 1942 og
lauk þaðan myndmenntakennaraprófi
árið 1945. Ári síðar héldu þau Gestur til
Kaupmannahafnar og hófu bæði nám við
Konunglegu listaakademíuna, hún í mál-
aralist, hann í myndmótun.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Sýningin Dvalið hjá djúpu vatni í Hafnarborg hefur verið framlengd til 26. janúar en þar gefur að
líta yfirlit yfir fjölbreyttan feril listakonunnar Rúnu, Sigrúnar Guðjónsdóttur. Verkin á sýningunni
ná yfir allan feril listakonunnar. Þau elstu eru frá því um 1950 en þau nýjustu frá þessu ári.
54 menning Helgin 10.-12. janúar 2014