Fréttatíminn - 14.02.2014, Side 2
Heilbrigðismál Kannað Hvort HeilbrigðisKerfið geti orðið undirstöðuatvinnuvegur
Þarna er
bara fullt af
allsberum
konum og
verið að
rasskella
eina með
einhverjum
voða tilfær-
ingum.
Ertu búin að smakka skyr
með bökuðum eplum?
Próteinríkt og fitulaust
Kolvetna
-
skert
Þekkingarfyrirtækið Gekon í sam-
vinnu við heilbrigðisráðuneyti, Fé-
lag atvinnurekenda, Læknafélagið,
Samband sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu og Nýsköpunarmiðstöð
Íslands og fjölda fyrirtækja í heil-
brigðistengdri starfsemi vinna nú
að stofnun íslensks heilbrigðisklasa.
Við undirbúninginn hefur verið
kannað hvort vannýtt tækifæri séu í
heilbrigðiskerfinu og hvort formleg
stofnun á heilbrigðisklasasamstarfi
myndi flýta því að tækifærin yrðu
nýtt. Í gær, fimmtudag, var haldið
málþing undir yfirskriftinni Gæti
heilbrigðistengd starfsemi orðið
ein af undirstöðuatvinnugreinum
Íslands á næstu áratugum? Á mál-
þinginu hélt Stig Jørgensen erindi
en hann er framkvæmdastjóri Medi-
con Valley, heilbrigðisklasa á Kaup-
mannahafnarsvæðinu og Skáni.
Friðfinnur Hermannsson, sér-
fræðingur hjá Gekon, segir ýmsar
áhugaverðar áskoranir í heilbrigð-
iskerfinu á Íslandi á næstu árum.
„Mikil gróska er í starfsemi nýrra
fyrirtækja á heilbrigðissviði og
hér eru sterk fyrirtæki í fremstu
röð á sínu sviði í heiminum. Núna
er unnið að breytingum á heil-
brigðisþjónustu og fara þær vel við
hugmyndir um heilbrigðisklasa.
Til dæmis verða rýmri reglur um
rekstrarform sem bjóða upp á einka-
rekstur.“ Hann segir einnig mikil-
vægt að fyrirtæki í klasasamstarfi
geti talað til stjórnvalda einni röddu.
„Því upplýstari sem umræðan er og
því betri upplýsingar sem berast,
því auðveldara er fyrir yfirvöld að
taka réttar ákvarðanir.“
Meðal þeirra hugmynda sem
skoðaðar eru í tengslum við klas-
ann er að markaður fyrir heilbrigð-
isþjónustu á Íslandi verði stækk-
aður með því að veita útlendingum
í meira mæli þjónustu hér á landi.
„Það er kominn vísir að slíku hjá
augnlæknafyrirtækjum en þennan
þátt mætti efla mikið. Með stærri
markaði yrði umhverfið fjölbreytt-
ara, bæði fyrir notendur þjónust-
unnar og starfsfólkið.“
Sjá nánar Líftímann
í miðju Fréttatímans.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Undirbúa stofnun íslensks heilbrigðisklasa
Friðfinnur Hermannsson, sérfræð-
ingur hjá Gekon.
t alsvert uppnám varð á þrjú sýningu á barnamyndinni Skýjað með kjöt-bollum 2 í Háskólabíói á laugardag
þegar sýnishorn úr hinni vægast sagt ber-
söglu mynd Lars von Trier, Nympomaniac
Volume I, birtist grandalausum bíógestum.
Íslenskur titill myndarinnar gæti helst verið
Brókarsjúklingurinn en hún er frumsýnd í
dag, föstudag, og getur tæpast talist við hæfi
viðkvæmra sála.
„Ég hef nú alveg dálæti á Lars von Trier
og hef séð flestar myndirnar hans en mér
fannst þetta ekki alveg viðeigandi þarna
þegar maður er að fara á laugardagsbíó með
börnin,“ segir Stefán, einn feðranna sem
fékk þessar óvæntu trakteringar.
Aðspurður hvort það sem fyrir augu bar
hafi verið gróft svarar hann: „Já, blessaður
vertu. Ég kem akkúrat inn þegar þetta er
að byrja og það er bara fullt af allsberum
konum og verið að rasskella eina með ein-
hverjum voða tilfæringum. Svo var þarna
lesbíusena. Sem betur fer stóðum við pabb-
arnir strax upp og löbbuðum eiginlega bara
strax út með börnin. Þannig að þau þurftu
ekki að horfa mikið á þetta,“ segir Stefán og
bætir við að svo vel hafi viljað til að fáir hafi
verið í salnum.
„Þetta hefur ekki borist í tal á heimilinu
eftir þetta og maður vonar bara að börnin
hafi horft annað og hafi gleymt þessu,“
segir Skúli Eiríksson um eftirmál innsýnar í
hugarheim von Triers.
„Það sauð svolítið á manni fyrst,“ segir
Magnús Þór Þorbergsson sem var á sýning-
unni með tveimur dætrum sínum. „Yngri
dóttir mín grúfði sig nú bara niður en þeirri
eldri, sem er þrettán ára, var ekki jafn
brugðið en sagði að þetta væri mjög óviðeig-
andi.“
Magnús hafði samband við Háskólabíó og
segist hafa fengið góðar skýringar á hvað
olli þessum ósköpum.
Jón Eiríkur Jóhannson, rekstrarstjóri Há-
skólabíós, segir hugbúnaðarvillu í sýning-
arvél hafa valdið því að hún hljóp yfir þrjú
sýninguna og rúllaði myndinni sem átti að
hefjast klukkan 18 af stað. „Við sendum öll
gögn úr vélinni til Dolby og þeir gangast við
þessu sem hugbúnaðarvillu. Það er búið að
uppfæra hugbúnaðinn þannig að þetta ætti
ekki að gerast aftur.
Þetta er alveg hrikalega vont og eins
slæmt og það getur orðið fyrir okkur. Okkur
þykir þetta mjög miður.“ Auk hugbúnaðar-
uppfærslunnar hefur verið farið yfir verk-
ferla í Háskólabíói til þess að gulltryggja að
svona nokkuð endurtaki sig ekki.
„Fyrst virtust þetta vera mannleg mistök
og við lögðumst bara í þunglyndi en sáum að
allt hafði verið rétt gert þegar við fórum yfir
þetta. En hugbúnaðurinn hljóp einhverra
hluta vegna yfir þessa sýningu.“
Jón Eiríkur og hans fólk í bíóinu vill endi-
lega heyra í þeim sem lentu í hinni óvæntu
nektarsýningu. „Við höfum verið að reyna að
ná sambandi við fólk sem lenti í þessu höfum
ekki upplýsingar um alla en við viljum reyna
að bæta fólki þetta upp. Það voru sextán
miðar seldir á þessa sýningu og við höfum
náð sambandi við um það bil helminginn.
Hinn helmingurinn má endilega hafa sam-
band við okkur,“ segir Jón Eiríkur og prísar
sig sælan að þetta hafi ekki gerst í næsta sal
við hliðina þar sem hundrað manns sátu.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
HásKólabíó stiKla úr nympHomaniac fylgdi barnamynd
Skýjað með klámi á köflum
Foreldrum og börnum sem sátu sýningu á teiknimyndinni Skýjað með kjötbollum 2 í Háskólabíói
brá heldur betur í brún þegar klámfengið sýnishorn úr Nyphomaniac, nýjustu kvikmynd Lars von
Triers, var sýnt á undan barnamyndinni. Feðrum sem voru með börnum sínum á myndinni var
ekki skemmt og hjá Háskólabíói er fólk miður sín. Uppákoman er rakin til hugbúnaðarvillu sem
hefur verið leiðrétt þannig að slík ósköp ættu ekki að endurtaka sig.
Kjötbollurigning var í kortunum á laugardaginn en enginn átti von á klámi.
Charlotte Gainsbo-
urg leikur enga
barnaleiki í opin-
skárri kvikmynd um
kynlífsbrölt brókar-
sjúklings.
Landsnet hefur undirritað samkomulag
um raforkuflutninga við PCC BakkiSilicon
hf., dótturfyrirtæki þýska félagsins PCC
SE, sem hyggst byggja kísilver á Bakka
við Húsavík. Þetta er fyrsti samningurinn
sem Landsnet gerir vegna fyrirhugaðrar
iðnaðaruppbyggingar á Bakka. Áætluð
aflþörf fyrsta áfanga verksmiðunnar er
52 megavött og miðast samkomulagið
við að starfsemin hefjist árið 2017.
PCC SE er alþjóðleg samsteypa fyrir-
tækja með höfuðstöðvar í Duisburg í
Þýskalandi. Áætluð framleiðslugeta fyr-
irhugaðs kísilvers á Bakka er 32 þúsund
tonn af kísilmálmi á ári, með möguleika
á stækkun upp í 64 þúsund tonna árlega
framleiðslu. „Undirbúningur og hönnun
fer á fullan skrið hjá okkur á þessu ári
og áætlað að framkvæmdir hefjast strax
á næsta ári. Það sem gerir okkur kleift
að hefja framkvæmdir svo skjótt er að
nauðsynlegar skipulagsbreytingar og
umhverfismat framkvæmda hefur þegar
farið fram í tengslum við fyrri áform
um uppbyggingu á Bakka,“ segir Þórður
Guðmundsson, forstjóri Landsnets.
Áætlaður kostnaður við tengingu iðn-
aðarsvæðisins á Bakka við meginflutn-
ingskerfi Landsnets með 220 kílóvolta
háspennulínu hljóðar upp á tæpa fimm
milljarða króna.
Þrettán auglýsinga-
stofur tilnefndar til
Lúðursins
Þrettán auglýsingastofur eru tilnefndar
til Lúðursins, Íslensku auglýsingaverð-
launanna, fyrir athyglisverðustu og
árangursríkustu auglýsingar ársins.
Viðurkenningar verða veittar fyrir alls
fimmtán flokka. Lúðurinn 2014 verður
haldinn hátíðlegur í Eldborgarsal Hörpu,
föstudaginn 21. febrúar. ÍMARK, Samband
íslensks markaðsfólks, stendur fyrir við-
burðinum í samráði við Samband íslenskra
auglýsingastofa (SÍA).
Íslenska auglýsingastofan, Hvíta húsið
og ENNEMM fengu flestar tilnefningar
eða tólf hver um sig. Brandenburg fékk
tíu tilnefningar, Janúar Markaðshús og
Jónsson & Le‘macks fengu sex tilnefningar
hvor, H:N markaðssamskipti fékk fimm og
framleiðslufyrirtækið Tjarnargata einnig
fimm tilnefningar. Ármann Agnarsson og
Jónas Valtýsson fengu þrjár tilnefningar,
Pipar/TBWA fékk tvær og Döðlur, Silent og
Vinnustofan og Nielsen eina tilnefningu
hver. Í sumum tilnefningunum er um sam-
starfsverkefni að ræða.
„Þetta er í tuttugasta og áttunda skipti
sem Lúðurinn er afhentur við hátíðlega
athöfn. Tilgangur Lúðursins er að vekja
athygli á vel gerðu auglýsingaefni og veita
aðstandendum þess verðskuldaða athygli.
Keppnin er opin öllum sem stunda gerð
eða dreifingu auglýsinga á Íslandi,“ segir
Friðrik Larsen, stjórnarformaður ÍMARK.
iðnaður landsnet og pcc Samið um orkuflutning fyrir kísilver á Bakka
Guðmundur Ingi Ásmundsson,
aðstoðarforstjóri Landsnets, Þórður
Guðmundsson, forstjóri Landsnets,
Peter Wenzel, aðstoðarforstjóri þró-
unarsviðs PCC SE og Dietmar Kessler,
fulltrúi framkvæmdastjórnar PCC SE.
2 fréttir Helgin 14.-16. febrúar 2014