Fréttatíminn - 14.02.2014, Page 20
E
in af mínum fyrstu minning-
um er þegar ég var ein heima
í herberginu mínu, í mesta
lagi fimm ára gömul, og hélt
tónleika fyrir bangsana mína
og dúkkurnar. Ég raðaði þeim um her-
bergið sem áhorfendum en var sjálf upp í
glugga að syngja, dró gluggatjöldin fyrir
og frá á milli atriða og ég kynnti meira
að segja atriðin,“ segir Guðrún Gunn-
arsdóttir sem um þessar mundir fagnar
þrjátíu ára söngafmæli, auk þess sem
hún varð fimmtug á síðasta ári. „Bróðir
minn dró vini sína heim til að liggja á
gægjum og skoða þessa skrýtnu systur.
Ég man að mér sárnaði mikið þegar
ég komst að því,“ segir hún og hlær. Á
þessum tíma söng Guðrún helst þau lög
sem hún hafði heyrt í útvarpinu, meðal
annars lög hinnar ástsælu Ellýjar Vil-
hjálmsdóttur og bandarísku djasssöng-
konunnar Ellu Fitzgerald. Hún vissi þá
ekki að það ætti fyrir henni að liggja að
syngja lög Ellýjar á fjölda tónleika síðar
meir og gefa út metsöluplötuna Óður til
Ellýjar sem hún hlaut Íslensku tónlistar-
verðlaunin fyrir.
Guðrún hélt sérstaka afmælistónleika
í lok síðasta árs og seldust miðarnir upp
á örskömmum tíma. Vegna þess hversu
mikil eftirspurnin var mikil heldur hún
aukatónleika í Salnum næstkomandi
fimmtudagskvöld og aðra tónleika á
Akureyri tveimur dögum síðar í Menn-
ingarhúsinu Hofi. Á efnisskránni verða
ýmis lög af ferlinum en mörg þeirra var
að finna á plötunni Bezt sem Guðrún
gaf út fyrir síðustu jól í tilefni af þessum
tveimur stórafmælum þar sem bestu
lögin af fyrri plötum hennar voru saman
komin.
Lítur á Ólaf sem velgjörðarmann sinn
Í fyrsta bekk grunnskóla var Guðrún
svo heppin að fá Ólaf heitinn Þórðarson,
oftast kenndan við hljómsveitina Ríó Tríó,
sem tónmenntakennara. „Ég man vel
eftir því þegar hann lét mig koma upp að
töflu og syngja lagið „Ef væri ég söngv-
ari.“ Ég lít á Ólaf sem velgjörðarmann
minn. Við eigum oft velgjörðarmenn í
lífinu sem maður fattar ekki fyrr en eftir
á hvað þeir áttu stóran þátt í að greiða
götu manns á hverjum tíma og opna fyrir
manni dyr. Í gagnfræðaskóla var ég aftur
með Ólaf sem tónmenntakennara. Hann
setti þá saman risastóra hljómsveit og bjó
til heilu söngleikina. Hann var ástríðu-
fullur tónmenntakennari og hreif alla
með sér.“
Guðrún er fædd og uppalin í Kópavogi,
gekk í Digranesskóla, Víghólaskóla og
fór síðan í Menntaskólann í Kópavogi.
Á menntaskólaárunum stofnaði Guðrún
ásamt félögum sínum hinn fornfræga
MK kvartett sem gerði það gott í upphafi
níunda áratugarins, kom fram á skemmt-
unum víða um land, í sjónvarpi og útvarpi.
„Við lágum saman á stofugólfinu heima
hjá hvert öðru með heyrnartól, hlustuðum
á plötur með Manhattan Transfer og pikk-
uðum upp raddirnar. Ólafur Þórðar tók
þennan kvartett upp á sína arma og við
vöktum mikla athygli.“ MK kvartettinn
kemur í fyrsta skipti saman eftir 25 ár á
tónleikunum nú í febrúar. „Við hlustuðum
á upptökurnar um daginn og vorum satt
að segja hissa á því hvað við vorum góð.
Þetta var mjög flott tónlist sem við vorum
að flytja og erfiðar raddsetningar. Þetta
var virkilega skemmtilegur tími. Vonandi
náum við að skapa þessa stemningu aftur
á tónleikunum.“
Söng fyrir bangsana sína
Guðrún Gunn-
arsdóttir byrjaði
á barnsaldri að
halda tónleika fyrir
leikföngin sín. Í
grunnskóla kenndi
Ólafur Þórðarson
úr Ríó Tríó henni
tónmennt og áttu
leiðir þeirra eftir
að liggja saman
um árabil. Á auka-
tónleikum sem hún
heldur í tilefni af
30 ár söngafmæli
sínu kemur hinn
fornfrægi MK
kvartett saman í
fyrsta skipti í 25
ár. Sambýlismaður
Guðrúnar, Hannes
Friðbjarnarson, er í
hljómsveitinni sem
spilar með henni
á tónleikunum en
mikil fjölmiðlaum-
fjöllun um þau
þegar sambandið
var nýhafið kom
afar illa við fjöl-
skyldur þeirra og
börn.
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Fræðslu- og
myndakvöld
Í sal FÍ 19. febrúar, kl. 20:00
Mæling á rýrnun íslenskra jökla með leysitækni
Tómas Jóhannesson eðlisfræðingur fræðir okkur um rannsóknir
sínar á rýrnun íslenskra jökla með leysitækni.
Borgarfjörður eystra, torfærar leiðir á Víknaslóðum
Að loknu kaffihléi mun Þórhallur Þorsteinsson frá Egilsstöðum
fara með okkur um torfærar leiðir í Víkunum á Borgarfirði eystra.
Aðgangseyrir kr. 600, innifalið kaffi og kleinur
Allir velkomnir!
Mæling á rýr
nun íslenskra
jökla með le
ysitækni
Borgarfjörðu
r eystra, torfæ
rar leiðir á Ví
knaslóðum
20 viðtal Helgin 14.-16. febrúar 2014