Fréttatíminn - 14.02.2014, Síða 30
O
fvirkni og athyglis-
brestur höfðu gert
Söru Djeddou lífið
leitt alla hennar
tíð. Sara er les-
blind, ofvirk og með athyglis-
brest. Þessir kvillar hafa háð
henni svo lengi sem hún man
eftir sér en með mikilli hreyf-
ingu og breyttum lífsstíl hefur
hún náð tökum á þessum erfiðu
vöggugjöfum og hnyklar nú vöðv-
ana á móti þeim.
„Mér gengur ágætlega að
einbeita mér en þarf að vera mjög
skipulögð og þetta er í fyrsta
skipti á ævinni sem ég þarf að
nota dagbók til þess að halda
utan um allt sem ég þarf að gera.
Vinnuna, æfingarnar og allt
annað,“ segir Sara Dejddou sem
hefur náð tökum á athyglisbresti
og ofvirkni með breyttu mat-
aræði og stífum fitness-æfingum.
Sara segist hálfpartinn hafa
slysast í tískusportið fitness og
hún hafi alls ekki lagt upp með
að leggja það fyrir sig. En það var
meðal annars ákaft keppnisskap-
ið sem togaði hana í þessa átt.
„Þetta var alveg óvart. Ég
ætlaði ekkert að fara í þetta en
ákvað bara að fara að hreyfa mig.
Ég freistaðist svo til þess að taka
þetta alla leið, ganga skrefinu
lengra og athuga hversu mikinn
sjálfsaga ég hefði.“ Um leið og
Sara byrjaði að hreyfa sig ger-
breytti hún mataræði sínu og
mögnuð áhrif þeirrar ákvörðunar
áttu heldur betur eftir að koma
henni á óvart.
„Það er ótrúlegt hvað mat-
aræðið getur gert fyrir mann og
ég mun aldrei hvika frá þessari
breytingu, “ segir Sara sem losaði
sig við allan sykur og hveiti, nán-
ast allt kolvetni. „Ég borða helst
lífrænt og forðast öll aukaefni.
Ég er með rosalega mikinn
athyglisbrest og hef alltaf verið
á lyfjum. Þetta hefur lagast geð-
veikt mikið og ég get einbeitt
mér mikið betur núna. Ég hefði
ekki búist við þessu en mér líður
alveg tíu sinnum betur og get
hugsað miklu skýrar.“
Að sigra sjálfa sig
Sara segist í byrjun hafa ætlað
sér að æfa af kappi til þess að
keppa í greininni. „Í byrjun hugs-
aði ég mikið um að mig langaði
að vinna keppnir en síðan fattaði
ég að þetta snýst engan veginn
um það heldur bara um mann
sjálfan. Maður er fyrst og fremst
reyna að sigra sjálfa sig og þarf
ekkert endilega að vera í ein-
hverri keppni við aðra.“
Og það tekur á að glíma við sjálf-
an sig í fitnessinu. „Þetta er erfið-
ara en ég bjóst við. Mikið erfiðara.
Maður þarf að vera í mjög góðu
andlegu jafnvægi þegar maður
þarf að huga að mataræðinu og
öllu sem þessu fylgir. Það segir sig
alveg sjálft. Auðvitað er líka hægt
að fara með þetta út í öfgar og það
getur verið varasamt en fitness
hlýtur alltaf að vera hollara en að
fá sér skyndibita á hverjum degi.“
Sara heldur sér við efnið með
því að skrifa allt niður sem hún
gerir og þarf að gera enda veitir
ekki af þar sem hugurinn staldrar
ekki alltaf við þar sem hann á helst
að vera.
„Það er svo mikið að gera og til
að geta fylgst með hvað ég borða
þá skrifa ég það allt niður. Ég held
matardagbók og venjulega dag-
bók.
Að virkja ofvirknina
Athyglisbresturinn og ofvirknin
hafa vitaskuld háð Söru í lífinu en
hún segir þetta þó ekki alslæmt.
„Já, það má segja að þetta sé búið
að há mér í lífinu. Ég er ofvirk,
lesblind og með athyglisbrest og
hef bara alltaf verið svona. Ég er
samt ekki viss um að ég gæti gert
allt sem ég geri og æft af kappi
nema vegna þess að ég er ofvirk.
Og þó. Ég gæti þetta sjálfsagt
en það hjálpar að vera ofvirk.
Það býr kraftur í ofvirkninni og
maður þarf bara að læra að meta
hana.
Athyglisbresturinn er ekki
alveg jafn skemmtilegur og það
þarf að hafa smá húmor fyrir
honum.
Það var til dæmis hægara sagt
en gert fyrir mig að taka bílpróf
með athyglisbrest og ég féll tvisv-
ar á verklega prófinu út af því
að ég datt alltaf út. Hausinn er
stundum einhvers staðar allt ann-
ars staðar eða bara út um allt að
fylgjast með öllu frekar en að ein-
beita sér að einhverju ákveðnu.
Þannig að þetta hafa alveg verið
smá leiðindi að burðast með þetta
og vera í skóla og svona. En það
lærist alveg að lifa með þessu og
ég myndi ekkert endilega segja
að þetta væri galli.“
Eins og fyrr segir náði Sara
góðum tökum á athyglisbrest-
Tæklar ADHD
með fitnessi
og hollum mat
Sara Djeddou hefur alla sína tíð tekist á við ofvirkni og athyglisbrest. Hún segist vera öll önnur
eftir að hún byrjaði að æfa fitness og gerbreytti mataræði sínu. Hún segir fitness fyrst og fremst
vera keppni við sjálfa sig og að ofvirknin sé styrkur á þessu sviði. Athyglisbresturinn er erfiðari
viðureignar og til þess að þola hann sé nauðsynlegt að hafa húmor fyrir meininu.
30 viðtal Helgin 14.-16. febrúar 2014