Fréttatíminn - 14.02.2014, Page 31
inum með breyttu mataræði og
þrátt fyrir að henni hafi oft verið
bent á þennan möguleika kom
breytingin henni virkilega á
óvart.
Laus við sykur og lyf
„Allir hafa auðvitað heyrt að það
sé gott að borða hollan mat og að
mataræðið hafi áhrif og allt það.
Fólk var alveg búið að segja við
mig að það gæti hjálpað að borða
ákveðinn mat og sleppa öðru en
ég lét það bara alveg fram hjá
mér fara og var ekkert að pæla
í því enda var ég búin að heyra
þetta svo oft. En svo fór ég bara
að borða holt og fór bara allt í
einu að sofa rosalega vel í fyrsta
skipti á ævinni og er búin að vera
án lyfja í dágóðan tíma.
Ég er ekkert að segja að lyfin
séu endilega slæm en ég vil ekki
vera á þeim og ætla ekki á þau
aftur. Ég hef fundið fyrir leiðinda
aukaverkunum en þau virka fyrir
fjölda fólks þannig að ég ætla
ekki að segja neitt slæmt um lyf.“
Sara segir að sykur sé að sjálf-
sögðu örvandi og því blasi það
kannski við að hann henti ofvirk-
um ekki en hún er þess þó full-
KAUPTU FJÓRAR
OG FÁÐU SEX
FERNUR
HLEðSLA Í FERNU MEð SÚKKULAðIBRAGðI
ER KJÖRIN EFTIR GÓðA ÆFINGU EðA BARA Í DAGSINS ÖNN.
HÚN ER GÓðUR KOSTUR MILLI MÁLA OG ER RÍK AF PRÓTEINUM.
HENTAR FLESTUM ÞEIM SEM HAFA MJÓLKURSYKURSÓÞOL.
Sara Djeddou hefur snúið ADHD niður
með ströngum fitness æfingum og
breyttu mataræði. Hún hefur í mörg
horn að líta og til þess að halda fókus
skrifar hún allt niður sem hún þarf að
gera og heldur tvær dagbækur, matar-
dagbók og aðra yfir allt annað.
Ljósmynd/Hari
viss að aukaefni í mat séu ekki síður
skaðvaldur í þessu sambandi. „Ég
er ekki viss um að þetta sé endilega
bara sykurinn, heldur líka öll þessi
aukaefni. Mér finnst ekkert eðlilegt
við það að helmingur allra barna séu
allt í einu með ADHD. Það er bara
ekki eðlilegt. Ég held að sykurinn og
aukaefnin geri þetta allt miklu verra.
Það getur ekki annað verið.“
Yrði vart óhætt í Alsír
Sara er alsírsk í aðra ættina en faðir
hennar er frá Alsír. Hún er ekki í
neinu sambandi við hann og hefur
aldrei heimsótt landið og efast um
að henni sé í raun óhætt að fara til
Alsír vegna þess að hún er svo dökk
yfirlitum og yrði varla sýnt nokkurt
umburðarlyndi, ólíkt kannski konum
sem eru greinilega frá Vesturlönd-
um.
„Ég fer vonandi á þessar slóðir á
næstu árum en veit samt ekki hvort
ég hætti mér til Alsír. Ætli ég færi
ekki frekar til Marokkó eða eitthvert
þar sem hætturnar eru ekki jafn
margar. Ég held að það sé meira en
segja það að fara til Alsír en maður
verður náttúrlega bara að virða
siðina í öðrum löndum. Það er bara
þannig.“
Sara vinnur á asíska veitinga-
staðnum Bambus og þar sem hún
er alltaf á þönum fékk hún eigendur
staðarins til þess að bæta réttum á
matseðilinn sem falla að breyttum
lífsstíl hennar. „Það var rosa vesen
fyrir mig að borða og ekki mikið af
stöðum í boði þar sem ég gat farið
og fengið mér eitthvað. Maður hefur
ekkert alltaf tíma til að elda þegar
maður er alltaf á hlaupum, þannig
að ég fékk þau hérna til að setja
eitthvað á matseðilinn sem ég og
fleiri gætum borðað vegna þess að
ég veit alveg að það eru margir sem
borða svipað og ég og þetta er alveg
vandamál vegna þess að það er ekk-
ert mikið í boði. Þau eru rosa góð við
mig og elda fyrir mig sem er mjög
þægilegt og hjálpar mér mjög mikið
að fá góðan, heitan mat,“ segir Sara
sem keppir við sjálfa sig í fitness um
leið og hún notar sportið til þess að
halda aftur af neikvæðum áhrifum
ADHD.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Maður er
fyrst og
fremst reyna
að sigra
sjálfan sig.
viðtal 31 Helgin 14.-16. febrúar 2014