Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.02.2014, Side 33

Fréttatíminn - 14.02.2014, Side 33
 Mannréttindi Milljarður rís í Hörpu Dansað gegn kynbundnu ofbeldi K ynbundið ofbeldið verður ekki stöðvað á einni nóttu. Það er nauðsynlegt að veita þolend- um stuðning til að stíga fram og segja sína sögu. Við gerum það núna með dansi,“ Soffía Sigurgeirsdóttir, fram- kvæmdastýra UN Women á Íslandi. Í dag, 14. febrúar, heldur UN Women viðburðinn „Milljarður rís“ til stuðn- ings þolendum kynbundins ofbeldis og til að vekja athygli og auka meðvit- und á stöðu kvenna og stúlkna í heim- inum. Ein af hverjum þremur konum upplifir ofbeldi á lífsleiðinni og það endurspeglar þann milljarð manna í 207 löndum sem reis upp í fyrra þegar UN Women skipulagði í fyrsta skipti dans fyrir breyttum heimi. Íslending- ar létu þá sitt ekki eftir liggja og 2100 konur, karlar og börn á öllum aldri komu saman í Hörpu og dönsuðu. „Nú er markmiðið að 3000 manns taki þátt. Því hvetur UN Women alla Íslendinga til að taka þátt og dansa af lífi og sál,“ segir Soffía. Dansinn hefst stundvíslega klukkan 12 í Hörpu en í ár verður einnig dansað á Hofi á Ak- ureyri, á Ísafirði og í félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði. Ein af hverjum þremur konum á heimsvísu verður fyrir ofbeldi á lífs- leiðinni. Samkvæmt gögnum UN Women er heimilisofbeldi helsta dánarorsök evrópskra kvenna á aldr- inum 16-44 ára, konu er nauðgað á 26 sekúndna fresti í Suður-Afríku og 40-50% kvenna á evrópska efna- hagssvæðinu hafa orðið fyrir kyn- ferðislegri áreitni á vinnustað. Nýleg rannsókn UNICEF á Íslandi sýnir að líklegra sé að íslensk stúlka í 10. bekk hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni en að hún reyki. UN Women hvetur alla til að taka þátt í Milljarður rís og láta að sér kveða. Samtökin skora jafnframt á fyr- irtæki, stofnanir og skóla til að hvetja starfsfólk sitt að mæta í Hörpu og sýna samstöðu. „Dönsum af gleði og krafti fyrir mannréttindum kvenna, fyrir heimi þar sem konur og stúlkur þurfa ekki að líða ofbeldi vegna kyns síns,“ segir Soffía. Hægt er að taka þátt í herferðinni á samfélagsmiðlunum með því að setja inn myndir/myndbönd með leitarorð- inu/hashtag #milljardurris14 Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Ljósmynd/UN Women {Skápar} {Skenkir} {Myndir} {Styttur} {Postulín} {Silfur} {Stólar} {Borð} 20 – 50 % Afsláttur 552-8222 / 867-5117 30 – 50 % AF húsgögnum 50 % AF bókum 20 % AF smáhlutum Antik útsAlA Helgin 14.-16. febrúar 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.