Fréttatíminn - 14.02.2014, Qupperneq 39
ferðalög 39Helgin 14.-16. febrúar 2014
Gengið
og hjólað
á vit ævin-
týranna
KYNNING
Áhugi landsmanna á
göngu- og hjólaferðum
hefur farið vaxandi
síðustu ár. Um er að ræða
hópferðir þar sem farið er
á milli viðkomustaða og
gist á sögulegum slóðum.
Í ferðunum samtvinnast
fallegt umhverfi, góður
matur, hreyfing og félags-
skapur á einstakan hátt.
F erðaskrifstofan Vita Sport hefur boðið upp á hjólaferðir á Ítalíu
frá upphafi og hefur nú bætt
við hjólaferð í Austurríki, frá
Passau til Vínar, sem verður
farin í ágúst. „Þetta er alveg
ný ferð. Hjólaleiðin fer fram
á flatlendi og í fallegu um-
hverfi meðfram Dóná, fjarri
umferðargötum. Hún er frá-
bær fyrir fólk sem er að fara
í sína fyrstu hjólaferð,“ segir
Silja Rún Gunnlaugsdóttir,
skrifstofustjóri Íþróttadeild-
ar Vita Sport.
Silja Rún segir ferðina fjöl-
skylduvæna og að börn sem
eru vön hjólreiðum njóti sín
vel. „Hjólin eru útveguð úti
og það er passað upp á að fá
mælingar á fólki hvað það
er hátt og þungt þannig að
fólk er að fá hjól sem henta
hverjum og einum,“ segir
Silja Rún.
Í ferðunum er hjólað á
milli staða og gist á mis-
munandi hótelum undir
fararstjórn Kristínar Einars-
dóttur, sem þekkir vel til
svæðisins. Farangurinn er
keyrður á milli staða og eru
hjólin því lítið hlaðin. „Á
kvöldin fer hópurinn saman
út að borða. Það er alltaf
voða spennandi, hópur-
inn er mjög samheldinn,“
segir Silja Rún. Hjólaferðin á
Ítalíu, milli Feneyja og Flór-
ens, fer fram með svipuðu
sniði. „Þetta er 18 manna
hópur sem hjólar sveitaleiðir
og gistir í miðalda borgum
á við Avenna og Flórens,“
segir Silja Rún. „Maður er
að komast yfir ansi margt í
svona ferð.“
Vita Sport býður einnig
upp á þrjár mismunandi
gönguferðir í Toscana-hér-
aðinu og víðar. „Nýjasta
gönguferðin er Pílagríma-
ganga á Ítalíu, frá Lucca
til Siena, þar sem fetað er í
fótspor íslenskra pílagríma
sem voru uppi á miðöld.
Magnús Jónsson sagnaþulur
er leiðsögumaður í þeirri
ferð. Það var farið í þessa
ferð í fyrsta sinn í fyrra og
fólk var ofsalega ánægt,“
segir Silja Rún. „Göngurn-
ar eru svona 4 - 6 tímar á
dag og meðal annars gist í
munkaklaustri ásamt fleiri
spennandi stöðum í miðalda
þorpum. Þetta eru ferðir
fyrir alla.“
Silja Rún Gunnlaugs-
dóttir og hennar fólk
hjá Vita Sport bjóða
upp á skemmtilegar
hjóla- og göngu-
ferðir.
Hjólað er meðfram Dóná í Passau-héraði í stór-
brotinni náttúrufegurð fjarri umferðargötum.
Komið er við í fal-
legum þorpum og
klaustrum á leiðinni
meðfram Dóná Í
Austurríki
TILBOÐSDAGAR
Í LYFJU
Minnkar rósroða strax!
Eucerin Anti-Redness
dagkrem minnkar
rósroða strax.
Færðu bólur?
Eucerin DermoPURIFYER
berst gegn bólum og feitri
húð á fjóra vegu.
Viltu
heilbrigðara hár?
Eucerin DermoCapillaire
hárvörurnar takast á við
erfiðustu vandamálin í
hári og hársverði.
Viltu draga úr húðblettum?
Eucerin EVEN BRIGHTER minnkar
húðbletti þar sem upptökin eru.
Viltu hreina og ferska húð!
Eucerin DermatoCLEAN hreinsilínan
hreinsar og lætur húð þína
sannanlega anda betur.
GILDIR FRÁ 12. - 19. FEBRÚAR
Viltu endurnýja húðina?
Eucerin DermoDENSIFYER eykur
teygjanleika og þéttleika og hraðar
endurnýjunarferli húðarinnar.
Ertu hrædd við hrukkur?
Húðlæknar mæla með Eucerin HYALURON
til að minnka hrukkur.
Endurheimtir stinnleika húðarinnar!
Eucerin VOLUME-FILLER endurheimtir stinn-
leika húðarinnar, gefur henni meiri fyllingu
og endurmótar útlínur.
20% AFSLÁTTUR
AF EUCERIN VÖRUM