Fréttatíminn - 14.02.2014, Qupperneq 66
2
Mandarín kínverska er eitt útbreiddasta tungumálið í heiminum.
Íbúar Hong Kong fá frí úr vinnu einu sinni á ári til að sópa í kringum
grafir forfeðra sinna.
Kínverskar konur giftast oftast í rauðu sem er litur lukkunnar.
Hvítur litur táknar hinsvegar dauðann.
Einn af hverjum fimm íbúum jarðar er kínverskur.
Rúmlega 50.000 tákn eru í kínverska ritmálinu. Þú þarft að kunna
1500-3000 tákn til að vera fær um að lesa kínversk dagblöð. Meðal
menntaður einstaklingur lærir um það bil 5000 tákn.
Í Kína eignast ennþá flestir bara eitt barn þó svo að slakað hafi ver-
ið á reglum um barneignir. Til að koma í veg fyrir fóstureyðingar
í Kína fá verðandi foreldrar ekki að vita kyn barnsins, þar sem
margir foreldrar kjósa að eignast drengi í stað stúlkna.
Það eru 32 milljónir fleiri drengir en stúlkur í Kína. Talið er að um
tugi milljóna karlmanna muni vera ófærir um að finna sér eigin-
konur í framtíðinni.
Samkvæmt sögunni uppgötvaðist tedrykkja af kínverska keisar-
anum Shennong sem einnig er kallaður faðir kínverskra lækninga
árið 2.737 f.Kr. þegar telauf féll í sjóðandi vatn hans. Kínverjar telja
te vera nauðsyn lífsins.
Kínverjar fundu upp flugdreka („pappírs fugla“ eða „Aeolian hörp-
ur“) fyrir um 3.000 árum síðan. Þeir voru notaðir til að hræða óvini
í bardaga.
Í suðvesturhluta Kína, er skemmtigarður sem heitir Konungsríki
smáfólksins. Þar starfa tæplega 200 kínverskir dvergar við að
skemmta ferðamönnum og skólabörnum með söng og dansi. Allur
garðurinn er hannaður með þarfir smáfólksins í huga.
Ein vinsælasta íþróttinn í Kína er borðtennis (Ping Pong).
Stærsta verslunarmiðstöð í heimi, New South China Mall, er í
borginni Dongguan í Kína. Verslunarmiðstöðin er með pláss fyr-
ir 2.350 búðir, en hefur nánast staðið tóm síðan hún opnaði árið
2005. Verslunareigendum finnst leiguverð of hátt og viðskiptavinir
láta ekki sjá sig.
Fyrsta sjálfsala veraldar sem selur lifandi krabbadýr er að finna
í neðanjarðarlestarstöð nálægt Hangzhou, höfuðborg Zhejiang
héraðs. Um 200 krabbar eru seldir daglega og fá viðskiptavinirnir
greiddar bætur ef krabbinn kemur dauður út.
Vissir þú að?
Sex mánaða ferðalag Andreu
Lífar Ægisdóttur varð að þrettán
mánaða dvöl í landinu. Andrea
Líf leggur nú stund á nám í við-
skiptatengdri kínversku við Há-
skóla Íslands.
Andrea Líf Ægisdóttir ákvað að
halda í reisu um Kína árið 2011
þegar pabba hennar bauðst að
fara í skiptinám til Shanghæ.
Stefnan var sett á ferðalag, frá
Peking og yfir til suð-austur Asíu.
Áætlanir Andreu fóru þó út um
þúfur og hún endaði á því að
dvelja 13 mánuði í Kína og leggja
stund á kínverskunám í háskól-
anum í Haikou, í minnsta héraði
landsins.
Skellti sér á kínverskunámskeið
„Fyrsti dagurinn í Peking var
einhver erfiðasti dagur lífs míns.
Það kom mér ótrúlega á óvart
hversu erfitt það var að finna
enskumælandi fólk í höfuðborg
Kína. Enginn gat bent mér á
hvert ég ætti að fara og leigubílar
vildu ekki stoppa fyrir mér,“ segir
Andrea en það var ýmislegt sem
átti eftir að koma henni á óvart á
meðan á dvöl hennar í Kína stóð.
Næsta mánuðinn ferðaðist hún
frá Peking til Tíbet og þaðan til
Shanghæ. „Í Shanghæ fékk ég þá
snilldar hugmynd að taka stutt
kínverskunámskeið til að hjálpa
mér að komast milli staða. Eftir
námskeiðið var ég mikið öruggari
á ferðalaginu svo ég ákvað að
lengja dvölina í Kína og læra kín-
versku.“
Kínverskunámið stundaði
Andrea í Haikou, höfuðborg Ha-
inan eyju sem er í Suður-Kínahafi.
Þar segir hún hafa ríkt rólegt and-
rúmsloft og fólk hafi lítið verið að
flýta sér. „Lífið í Kína er að mínu
mati rólegt og þægilegt og matar-
ins mun ég alltaf sakna!“
Oft bent í ranga átt
Varðandi það hvort þeir Kínverjar
sem Andrea talaði við hafi heyrt
um Ísland segist þessi brosmildi
ferðalangur eiga erfitt með að
svara þeirri spurningu. í Kína er
ekki til siðs að viðurkenna að fólk
skorti þekkingu og því er erfitt að
átta sig á því hvort það veit hvar
Ísland er.
„Ég get ekki talið hversu oft ég
spurði til vegar og mér var bent í
vitlausa átt af fólki sem virtist vita
nákvæmlega hverju ég væri að
leita að. Á svipaðan hátt er ég viss
um að margir hafi kinkað kolli og
sagst vita hvar Ísland væri án þess
að hafa hugmynd legu landsins,“
segir Andrea.
-Hrefna Rós Matthíasdóttir
Heimsreisan breyttist
í háskólanám
Útgefandi: Konfúsíusarstofnunin
Norðurljós, Háskóla Íslands
Greinaskrif: Meistaranemar í blaða-
og fréttamennsku við
Háskóla Íslands
Umbrot: Stefán Drengsson
Andrea Líf á Kínamúrnum.
Mynd: Andrea Líf ÆgisdóttirAndrea fór víða og skoðaði meðal annars Kínamúrinn
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
var stofnuð árið 2008 á Íslandi.
Hún er ein fjölmargra sambæri-
legra stofnana sem reknar eru við
háskóla víða um heim. Tilgangur
hennar er að stuðla að fræðslu um
kínverska menningu, tungu og
samfélag.
Háskóli Íslands rekur Konfús-
íusarstofnunina í samstarfi við
Hanban, undirstofnun menn-
ingarmálaráðuneytis Kína, og
Ningbo háskóla í Zhejiang-fylki í
Kína. Frá Ningbo háskóla koma
kennarar hingað til lands og dvelja
að jafnaði tvö ár við kennslu.
Kennararnir annast að mestu
kennslu í kínversku við Háskóla
Íslands en hafa að auki kennt
námskeið við Endurmenntunar-
stofnun háskólans og Mennta-
skólann við Hamrahlíð.
Konfúsíusarstofnun stendur
reglulega fyrir ýmsum menn-
ingar- og fræðaviðburðum og
annast að auki stöðluð kínversku-
próf. Konfúsíusarstofnunin Norð-
urljós er til húsa í Nýja Garði.
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
Starfsfólk Konfúsíusarstofnunarinnar. Mynd: Stefán Drengsson