Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.02.2014, Síða 82

Fréttatíminn - 14.02.2014, Síða 82
— 10 — 14. febrúar 2014 Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir L ýtalæknirinn Jóhannes Árnason lifir sannkölluðu flökkulífi því hann starfar í þremur löndum. Hann er hluthafi í Teres Medical Group, sem rekur 17 stofur á Norðurlöndum. Jóhannes vinnur fyrir Teres í Kaupmannahöfn og Malmö aðra hverja viku og hér á Íslandi hjá DeaMedica á milli. Á Íslandi býr fjölskyldan – eiginkonan og börnin tvö. Þau bjuggu erlendis í ellefu ár en fluttu heim haustið 2008, stuttu áður en þáverandi forsætisráðherra bað guð að blessa Ísland. „Ætlunin var að ég myndi vinna áfram úti í tvö til þrjú ár í viðbót þó við værum flutt heim. Árin verða orðin sex næsta haust. Það er mjög gaman að starfa í þremur löndum en helgarnar á ég alltaf heima á Íslandi með fjölskyldunni. Flugsamgöngur héðan til Kaupmannahafnar eru fínar og ég nýt góðs af samkeppni flugfélaganna. Aðeins klukkutíma eftir að ég lendi í Kaupmannahöfn er ég mættur í vinnuna.“ Æskudraumur að verða lýtalæknir Jóhannes ólst upp í Breiðholtinu og þaðan lá leiðin í Menntaskólann við Sund. Áður en læknisfræðinámið hófst lærði Jóhannes trésmíði og lauk öllum fögum nema einu. „Ég var aðeins 14 ára þegar ég gerði mér grein fyrir því að lýtalækningar væru mjög spennandi. Frá 10 ára aldri vann ég í Kjötbúðinni Borg við að skera kjöt sem var fínt en mér þykir þó mun skemmtilegra að skera lifandi fólk,“ segir Jóhannes og brosir. Aðspurður hvort margt sé líkt með lýtalækningum og smíðum segir hann bæði vissulega vera handverk. Þessa dagana fæst hann við smíðar á nýju húsi fjölskyldunnar og kveðst sáttur að búa nálægt fjöl­ skyldu og vinum á Íslandi. „Ég hitti einu sinni prófessor í Bandaríkjunum sem hafði tekið eftir því að fólk frá Íslandi og Chile stefndi alltaf að því að flytja heim að námi loknu, ólíkt öðrum nemendum. Einhverra hluta vegna er það ríkt í okkur Íslendingum og er ég þar engin undantekning.“ Æfingin skapar meistarann Í námi og starfi hefur Jóhannes einbeitt sér að fegrunar­ aðgerðum en fæst lítið við lýtaaðgerðir, eins og þær sem gerðar eru eftir slys eða veikindi. Að hans mati er mikil­ vægt að einbeita sér að ákveðnu afmörkuðu sviði til að öðlast færni, með fjölbreytni þó. Frá því námi lauk hefur Jóhannes starfað víða á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Jóhannes Árna- son lýtalæknir býr á Íslandi en starfar í þremur löndum. Frá tíu ára aldri vann hann í Kjötbúðinni Borg við að skera kjöt en segir mun skemmtilegra að skera lifandi fólk. Hann er þeirrar skoðunar að samfélagið hafi áhrif á hugmynd- ir fólks um það hvað er gott útlit og hvað ekki. Jóhannes Árnason lýtalæknir starfar aðra hverja viku í Malmö og Kaupmannahöfn og aðra hverja á Íslandi. Meirihluti þeirra sem til hans leita eru konur en þó eru karlarnir nokkrir og koma þeir helst í fitusog og að láta laga augnlok. „Svo koma eldri karlar líka í andlitslyftingar en þeir leggja alltaf mikla áherslu á að lyftingin sé það lítil að hún sjáist varla,“ segir Jóhannes Árið 2010 var honum og dönskum félaga hans svo boðin staða hjá Teres Medi­ cal Group við að byggja upp starfsemi þeirra í Kaupmannahöfn og Malmö. „Á þeim tíma var ég farinn að hugsa um að flytja alfarið heim en verkefnið var spennandi og krefjandi svo ég lét til leið­ ast að vera með í þessari uppbyggingu og ég er þar enn. Frá árinu 2012 hef ég líka fengist við kennslu fyrir Galderma/ Qmed á Norðurlöndunum sem selur Bo­ tox og fylliefni.“ Karlar í fitusog og augnpokaað- gerðir Jóhannes segir ekki svo mikinn mun á því hvernig aðgerðum fólk sækist eftir í löndunum þremur með einni undan­ tekningu þó. „Í Malmö hef ég mjög mikið að gera í nefaðgerðum, einhverra hluta vegna. Það er hins vegar lítið um þær hjá mér á Íslandi. Annars eru þetta svipaðar aðgerðir en ég finn breyting­ ar eftir því sem árin líða. Til dæmis er minni feluleikur í kringum fegrunar­ aðgerðir núna en áður og margt fólk sem segir hiklaust frá því að hafa farið í slíkt.“ Konur eru í meirihluta þeirra sem leita til Jóhannesar þó karlarnir séu líka nokkrir og koma þeir yfirleitt í fitusog eða að láta laga augnlok. „Þessar tvær aðgerðir þykja ekki vandræðalegar. Svo koma eldri karlar líka í andlitslyftingar en þeir leggja alltaf mikla áherslu á að lyftingin sé það lítil að hún sjáist varla.“ Á árum áður voru konur yfirleitt 55 ára og eldri þegar þær komu í andlits­ lyftingu en Jóhannes segir aldurinn fara sífellt lækkandi og nokkuð um að fer­ tugar konur kanni möguleikann á slíku. „Ég ráðlegg fólki að byrja ekki of seint því þá getur lyftingin verið erfiðari við­ fangs. Það er oft auðveldara að halda sér fínum með því að koma fyrr. Sú elsta sem hefur komið til mín í andlits­ lyftingu var 84 ára. Hún var mjög frísk og hélt sér vel en fannst eitthvað vera farið að láta undan og kominn tími til að athuga með lyftingu. Sú yngsta var 34 ára, ef ég man rétt.“ Samfélagið hefur áhrif Skiptar skoðanir eru um ágæti fegr­ unaraðgerða og er því stundum haldið fram að fjölmiðlar og þrýstingur sam­ félagsins hafi þau áhrif að fólk finni hjá sér þörf til að fara í slíkt. „Hjá því er ekki hægt að horfa að samfélagið hefur áhrif á hugmyndir okkar um það hvað er gott útlit og hvað ekki. Skilaboðin berast víða að og svo má hver hafa sinn smekk. Samt má ekki gleyma því að mikil heilsuvakning hefur orðið hér á landi á undanförnum árum sem hefur meðal annars skilað því að Íslendingar eru farnir að léttast. Aðgerðirnar eru hluti af því að fólk vill líta betur út. Fólk verður vissulega fyrir áhrifum úr sínu samfélagi og það getur haft bæði nei­ kvæðar og jákvæðar afleiðingar.“ Jó­ hannes tekur unnar ljósmyndir í tíma­ ritum sem dæmi og segir fólk almennt gera sér betri grein fyrir því að þær séu yfirleitt ekki raunverulegar. „Slíkar myndir hafa áhrif og vekja upp hjá fólki pælingar um útlit sitt en svo eru auðvit­ að einhverjir sem finna þörfina innra með sér. Ég sé ekkert að því ef fólk vill líta vel út. Þetta byggist fyrst og fremst á því að halda góðri heilsu og líta vel og frísklega út.“ Jóhannes leggur áherslu á að eftir aðgerðir líti fólk eðlilega út og er ekki hrifinn af því þegar fólk sækist eftir því að líta þannig út að langar leiðir sjáist að viðkomandi hafi farið í fegrunaraðgerð. „Ég hef þó haft þannig sjúklinga. Til dæmis man ég eftir tveimur sem fannst nefið á Michael Jackson bara fínt eins og það var orðið. Því var ég nú ekki sam­ mála. Almennt er fólk þó fyrst og fremst að sækjast eftir því að líta vel út eins og það er.“ Gefandi að gleðja Reynsla Jóhannesar er sú að fegrun­ araðgerðir hafi góð áhrif á sjálfstraust fólks og bendir á að ýmsar rannsóknir sýni það. „Það eru margir sem finna að lífið gengur betur – heima við, í vinnunni, samlíf para er innilegra og fólk er ánægðara með sig á allan hátt. Það er mjög gaman að sjá útgeislunina þegar fólk kemur til mín í eftirskoðun eftir aðgerð. Ég sé yfirleitt mikinn mun og það er allt annar ljómi yfir fólki og augljóslega meira sjálfstraust.“ Flakkar og fegrar Kemur næst út 14. mars liggur einnig frammi á heilbrigðisstofnunum. Líftíminn er prentaður í 87 þúsund eintökum og dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Líftíminn fylgir Fréttatímanum og má nálgast blaðið um land allt. HeiLbrigðismáL í brennidepLi Nánari upplýsingar gefur Gígja Þórðardóttir | gigja@frettatiminn.is | 531 3312
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.