Fréttatíminn - 24.01.2014, Page 10
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Ferðaáætlun FÍ 2
014
er komin út
Upplifðu náttúru
Íslands
F imleikar eru önnur vinsælasta íþrótt landsins á eftir fótbolta og sú vinsælasta meðal stúlkna. Fim-
leikafélögin anna ekki eftirspurn vegna
húsnæðisskorts og þurfa sum hver að
deila plássi með öðrum minna vinsælum
íþróttum eða jafnvel hafast við í geymslu,
á meðan fótboltinn er alltaf settur í for-
gang. Þorgerður Diðriksdóttir, formaður
Fimleikasambands Íslands, telur að hér
sé verið að mismuna kynjunum og kallar
eftir hugarfarsbreytingu.
„Það má segja að fótbolti og fimleikar séu
íþróttir sem spegli hvor aðra. Kynjahlutfallið
í þeim er jafnt, 75% stúlkur á móti 25% strák-
ar í fimleikunum og akkúrat öfugt í fótbolt-
anum. Svo er fótboltinn vinsælastur meðal
stráka og fimleikarnir vinsælastir meðal
stúlkna. Það er nóg pláss fyrir strákana
til að stunda sína íþrótt, sem er í alla staði
frábært, en það er aftur á móti ekkert pláss
fyrir stúlkurnar til að stunda sína íþrótt. Ef
við ætlum að hafa jafnræði milli kynja til
íþróttaiðkunnar þá þyrfti auðvitað að vera
sambærileg aðstaða til fimleikaiðkunar og
til fótboltaiðkunar. Fimleikar eru gríðarlega
góð hreyfikennsla og kennir heilbrigðan lífs-
tíl sem dugar út lífið, óháð því hvort börnin
ætli að verða keppnisfólk eða ekki.“
Nú eru 9500 manns skráðir í fimleika-
hreyfinguna en tugur barna er á biðlista
eftir að komast að þar sem hallirnar sem
byggðar hafa verið rúma ekki fjöldann
sem sækir íþróttina. Þorgerður segir að
þrátt fyrir töluvert uppbyggingarstarf síð-
ustu ára og byggingu nýrra fimleikahúsa
vanti enn mikið upp á til að aðstaðan fyrir
þessa gífurlega vinsælu íþrótt sé viðun-
andi. „Ég get nefnt fimleikadeildina á Eg-
ilsstöðum sem dæmi en þar hefur átt sér
stað mikil uppbygging síðastliðin 10 ár.
Nú eru fleiri stúlkur sem stunda fimleika
þar en strákar sem stunda fótbolta. Samt
sem áður er aðbúnaður fyrir fimleika eng-
inn og deildin þarf að deila fjölnota innan-
hússal með öllum öðrum innanhúsíþrótt-
um og leikfimi skólans á meðan fótboltinn
er enn settur í forgang.“
Þorgerður bendir á að það hafi alltaf
verið, þar til nýlega, meiri hefð fyrir því
að strákar stundi íþróttir en að nú sé
vitað mál að heilbrigður lífsstíll er öllum
nauðsynlegur, óháð kyni. „Við þurfum að
gefa í gagnvart þeim íþróttagreinum sem
stelpur vilja stunda því við vitum að hreyf-
ing er jafn nauðsynleg fyrir stelpur og
stráka. Það verður að verða vitundarvakn-
ing hjá sveitarfélögum því það er ekki
hægt að búa við það að ekki sé jafnræði
milli kynja til að stunda íþróttir. Nú þurfa
allir að leggja sig fram við að skoða hvar
og hvernig stúlkur vilja stunda íþróttirnar
og hvernig sé hægt að búa þeim aðstöðu
til þess.“
Þorgerður bendir jafnframt á erfið-
leika sveitarfélaganna þegar kemur að
biðlistum sem börn úr öðrum sveitar-
félögum fylla. „Nú liggja fyrir teikningar
úti á Seltjarnarnesi fyrir nýja aðstöðu en
þá er aðal umræðan sú hvort þeir eigi að
taka endalaust við, og borga undir Reyk-
víkinga, sem ekki hafa sjálfir aðstöðu.
Fjölmargir iðkendur innan Gróttu eru
ekki Seltirningar því það er ekkert fim-
leikahús í boði í Vesturbæ Reykjavíkur.
Svo Seltirningar spyrja sig hvort þeir
eigi að leggja í þennan mikla kostnað,
meðal annars fyrir Reykvíkinga. En
þessi umræða hefur líka verið tekin milli
Reykjavíkur og Kópavogsbæjar. Það er
mjög langur biðlisti í Gerplu, og þá hefur
bæjarstjórinn haldið því fram að börnin
úr Kópavogi eigi forgang fram yfir þau
börn sem koma úr sveitarfélagi þar sem
aðstaðan er engin. En svo er Grafarvog-
ur annað dæmi um hverfi með langan
biðlista. Risastórt hverfi þar sem Fjölnir
hefur frábæra aðstöðu til íþróttaiðkunar
með íshokkísal og fótboltahús og glæsi-
legan útivöll fyrir fótbolta, en fimleika-
deildin þarf að notast við gömlu áhald-
geymslu fótboltans.“
Þorgerður segir það sorglegt að hreyf-
ing sem hafi alla burði til að vaxa og
dafna, sem eigi tækin og tólin og ekki
síst mannskapinn til að bregðast við vin-
sældunum, skuli ekki fá neina aðstöðu.
„Það er alveg ljóst að það þarf að byggja
eða útbúa aðstöðu þar sem að fimleika-
áhöld eru og tækifæri fyrir deildir að
vera með meiri umsvif. Til dæmis hefur
verið rætt í Kópavogi að Gerpla fái bara
aðgang að fleiri sölum, það þurfa ekkert
að vera sérhannaðir fimleikasalir því
mikið af okkar starfsemi getur farið
fram í venjulegum sal með dýnum og
trampólíni. Reykjavík hefur staðið sig vel
sem íþróttaborg en nú þarf að gefa fim-
leikunum pláss. Þetta er að verða eins og
með tónlistarskólana, það þarf að sækja
um pláss á sama tíma og í leikskóla. En
svo er alltaf nóg pláss fyrir fótboltann
því þar hefur verið mikil og frábær upp-
bygging, en nú er bara kominn tími á
fimleikana.“
Halla Harðardóttir
halla@frettabladid.is
Fimleikar FimleikaFélög anna ekki eFtirspurn en verða að víkja Fyrir Fótboltanum
Ekkert pláss
fyrir íþrótta-
iðkun stúlkna
Þorgerður Diðriksdóttir, formaður Fimleikafélags Íslands, segir
ekkert jafnræði milli kynjanna þegar kemur að íþróttaiðkun og
kallar eftir almennri hugarfarsbreytingu.
„Við þurfum að gefa í
gagnvart þeim íþrótta-
greinum sem stelpur
vilja stunda því við
vitum að hreyfing er
jafn nauðsynleg fyrir
stelpur og stráka.“
Ljósmynd/Hari
Það má
segja að
fótbolti og
fimleikar
séu íþróttir
sem spegli
hvor aðra.
Kynjahlut-
fallið í þeim
er jafnt, 75%
stúlkur á
móti 25%
strákar í
fimleikunum
og akkúrat
öfugt í fót-
boltanum.
10 fréttaviðtal Helgin 24.-26. janúar 2014
Phosphatidylserine eru sérhæfð lípíð sem líkaminn framleiðir. Þó að það
sé nauðsynlegt efni til að stýra virkni allra frumna þá nýtist það mest í
heilanum. Phosphatdylserine spilar lykilhlutverk í taugaboðum til
heilans. Rannsóknir hafa beinst að því að hjálpa þeim sem eru byrjaðir að
gleyma einföldum hlutum. Phophatdylserine hefur sýnt fram á mjög
jákvæð viðbrögð í þessum einstaklingum og er því kynnt sem
fæðubótarefni til að auka minni og vitræna frammistöðu. O er það
streita sem veldur minnistapi og Phosphatdylserine hefur hjálpað gegn
streitu. Það er talið hjálpa til að viðhalda réttum taugaboðum og hafa
jákvæð áhrif á minnið. Phosphatdylserine er talið vera örugg og áhrifarík
lausn til að hjálpa gegn minnistapi og til að virkja betur heilastarfsemina.
Útgefnar rannsóknir hafa sýnt fram á að
Phosphatdylserine/PS hefur yngjandi
áhrif á heilafrumurnar og vegna þessa er
það talið:
• Styrkja minnið
• Styrkja athygli og árverkni hjá fólki
• Hjálpar fólki til að læra eitthvað nýtt
• Eykur skerpu
• Eflir einbeitingu
• Dregur úr þunglyndi og bætir skapið
• Minnkar streitu hjá ungum sem öldnum
• Hægir á elliglöpum
Minnið í lag
Rannsóknir hafa sýnt að með því að taka
Phosphatdylserine/PS þá sýna sjúklingar
aukna getu til að læra eitthvað nýtt, muna
nöfn og að þekkja fólk. Guðrún
Bergmann mælir með PS í bókinni sinni
Ung á öllum aldri og segir „Þetta
náttúrulega lípíð eða fituefni er talið vera
næringarefni fyrir heilafrumurnar og þar
með hafa jákvæð áhrif á minni og
einbeitingu. Rannsóknir gefa til kynna að
það dragi úr ótímabærri aldurstengdri
hugrænni hnignun.“
Solaray Ísland
www.heilsa.is