Fréttatíminn - 24.01.2014, Blaðsíða 70
Bergrún Íris Lét eurovision-drauminn rætast
Komst í söngvakeppnina á brotnum gítar
Vinkonurnar Bergrún Íris Sævars-
dóttir og Ásta Björg Björgvinsdóttir
kynntust þegar þær voru sextán ára
í leikhópnum Íslandsleikhús. Strax
þetta sumar byrjuðu þær að semja
lög og grínuðust með að þær ættu að
senda lag í Eurovision. Nú létu þær
slag standa og eru komnar áfram í
Söngvakeppninni 2014 með lagi sem
þær sömdu á brotinn gítar.
„Við erum afskaplega stoltar,“ segir
Bergrún sem er blaðamaður á Séð
og heyrt. „Okkur fannst þetta bara
kjánalegur draumur á sínum tíma
og hlógum að þessu en þegar vin-
kona mín hvatti okkur til að láta
verða af þessu ákváðum við að prófa.
Ásta Björg kom í heimsókn til mín en
gleymdi náttúrlega gítarnum sínum
þannig að við sömdum þetta á brotinn
gítar mannsins míns.“
Útkoman var lagið Eftir eitt lag. „Við
vorum þokkalega ánægðar með lagið
og sendum inn skelfilega hráa upptöku
og höfðum enga von um að þetta færi
áfram. En lagið féll í kramið sem er
rosalega gaman. Við héldum fyrst að
það væri verið að gera at í okkur þegar
við fengum símtalið um að við hefðum
komist áfram. Við erum rosalega hissa
ennþá og brjálæðislega þakklátar.“
Stelpurnar fengu Gretu Mjöll Samú-
elsdóttur, vinkonu Berg-
rúnar og fyrrverandi landsliðskonu í
fótbolta til að syngja lagið. „Þetta er
voða mikið svona vinkonu átak, bara
stelpur eitthvað að vesenast sem er
mjög skemmtilegt. Greta er með mjög
fallega og sérstaka rödd sem við heyrð-
um einhvern veginn alltaf á meðan við
vorum að semja lagið.“ -þþ
Bergrún Íris segir að nú sé draumurinn óhjá-
kvæmilega að komast alla leið í Eruo vison
með lagið og vinkona hennar sem hvatti
hana og Ástu til að semja lag hefur slíka trú
á þeim að hún er þegar búin að kaupa flug-
miðann til Danmerkur. Ljósmynd/Hari
Við erum
afskaplega
stoltar.
Þórir Sigur-
jónsson og
félagar fengu
leikkonuna
Margot
Robbie til
liðs við sig
í myndinni
Z for
Zachariah.
20%
AFSLÁTTUR
Tökur á kvikmyndinni Z for Zachariah hefjast á Nýja-
Sjálandi á mánudaginn. Zik Zak-strákarnir Skúli
Malmquist og Þórir Sigurjónsson framleiða mynd-
ina ásamt Sigurjóni Sighvatssyni og leikaranum Toby
Maguire. Myndin verður stjörnum prýdd og Skúli er
flogin utan til þess að undirbúa tökurnar og taka á
móti stjörnunum en Chris Pine og Chiwetel Ejiofor,
sem tilnefndur er til óskarsverðlauna fyrir leik sinn
í 12 Years a Slave, héldu á tökustað á miðvikudag.
Leikkonan unga, Margot Robbie, var væntanleg til
Nýja-Sjálands á fimmtudag. Þórir bætist í hópinn
síðar og mun halda utan um framleiðsluna fram í
febrúar.
Margot hefur vakið mikla athygli fyrir frammi-
stöðu sína í Wolf of Wall Street þannig að þeir félagar
hafa heldur betur hitt í mark í leikaravalinu og tefla
fram vaxandi stjörnum í myndinni.
Z for Zachariah segir sögu sextán ára gamallar
stúlku sem lifir af kjarnorkustríð í litlum smábæ og
heldur dagbók um það sem á daga hennar drífur.
Zik Zak hefur lengi verið með myndina í undir-
búningi en meðframleiðandi þeirra, Páll Grímsson,
vakti athygli þeirra á skáldsögunni sem myndin
byggir á fyrir nokkrum árum.
Zik Zak stillir
upp stjörnum á
Nýja-Sjálandi
BrynhiLdur Lagði fiðLunni fyrir rafmagnsgÍtarinn
Lífið er blúsaður djass
B rynhildur Oddsdóttir er spreng-lærð í tónlistinni. Hún lærði á fiðlu í Nýja tónlistarskólanum
og lauk 5. stigi í því námi, auk þess
sem hún lærði síðar söng við sama
skóla. Hún lauk BA námi í tónsmíðum
við Listaháskóla Íslands árið 2011 og
stundar nú nám í Tónlistarskóla FÍH í
djasssöng og á rafgítar.
„Ég lagði eiginlega fiðluna á hill-
una, þótt maður búi alltaf að henni, og
rafgítarinn kom í staðinn. Mig langaði
alltaf að læra á gítar. Þetta var leyndur
draumur sem ég lét ekki rætast fyrr en
seint og síðar meir,“ segir Brynhildur og
bætir við að gítarinn hafi smám saman
tekið líf hennar yfir enda sé lífið blús-
aður djass.
Brynhildur hefur í nógu að snúast
með gítarinn á lofti. Hún er að leggja
lokahönd á plötu með hljómsveit sinni
Beebee and the bluebirds og er byrjuð
að vinna að sólóplötu. Þá leikur hún í
Þingkonunum í Þjóðleikhúsinu og er
þar er hún líka með gítarinn á lofti.
Hún lauk einnig tamningaprófi frá
Hólaskóla 2002. „Ég er búin að vera í
hestamennsku síðan ég var átta ára og
var tvítug þegar ég fór á Hóla. Ég vann
síðan við tamningar nokkur ár eftir það.
Tamningarnar eru svo mikið hark samt,
kannski svipað og tónlistin þannig að
það má segja að ég hafi farið úr öskunni
í eldinn.“
Brynhildur ætlar að senda frá sér nýtt
tónlistarmyndband í febrúar og í því
sameinar hún áhuga sinn á hestum og
blúsuðum djassi. „Ég fékk hest lánaðan
hjá kunningja mínum og náði að sam-
eina þetta þannig með því að nota hann í
myndbandinu.“
Brynhildur stofnaði Beebee and the
bluebirds 2010 og þau hafa meðal ann-
ars komið fram á Blúshátíð Reykjavíkur,
Norden Bluesfestival, Eldi í Húnaþingi
og víðar.
Gítarinn kom Brynhildi einnig að á
sviði Þjóðleikhússins þar sem hún leik-
ur eina þingkvennanna í Þingkonunum í
leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
„Ég hafði nú eiginlega enga reynslu
af sviðsleik en er þannig lagað búin að
vera á sviði frá því ég var krakki þannig
að ég get alveg staðið á sviði án þess að
skjálfa á beinunum.“ Hún leikur á gítar
í leikritinu en segir að hlutverk hennar
hafi þróast upp í annað og meira en bara
að vera tónlistarmaður á leiksviði.
„Þetta er búið að vera rosalega gam-
an,“ segir hún um vinnuna í leikhúsinu.
„Það hefur verið mjög gaman að fylgjast
með hvernig leikararnir vinna og bara
að fá að vera í þessum hópi, vinna með
Benedikt og Agli Ólafssyni sem sér um
tónlistina,“ segir þingkonan, tamninga-
konan og blúsgítarleikarinn sem á eftir
að láta mikið að sér kveða á næstunni.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Blúsgítarleikarinn og
tamningakonan Brynhild-
ur Oddsdóttir ásamt 1.
verðlauna stóðhestinum
Pilti frá Hæli sem kemur
fram með henni í nýju
tónlistarmyndbandi sem
er væntanlegt í febrúar.
Tónlistarkonan Brynhildur Oddsdóttir lauk á sínum tíma 5. stigi í fiðlunámi en lagði síðan fiðl-
una frá sér þegar hún lét gamlan draum rætast og tók upp rafmagnsgítarinn. Nú spilar hún
blúsaðan djass af lífi og sál og er að leggja lokahönd á plötu með hljómsveit sinni Beebee
and the bluebirds. Í næsta mánuði ætlar hún að frumsýna nýtt tónlistarmyndband en þar
sameinar hún tvö áhugamál, tónlistina og hesta en hún er lærð tamningakona.
Tamning-
arnar eru
svo mikið
hark
samt,
kannski
svipað og
tónlistin.
70 dægurmál Helgin 24.-26. janúar 2014