Fréttatíminn - 24.01.2014, Blaðsíða 30
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 16.01.14 - 22.01.14
1 2Sandmaðurinn Lars Kepler
5 Almanak fyrir Ísland 2014 Þorsteinn Sæmundsson
Gunnlaugur Björnsson
6
7 Þorsti Esther Gerritsen 8
10 Södd og sátt án kolvetna Jane Faerber9 Vísindabók Villa Vilhelm Anton Jónsson
43 Árleysi alda Bjarki Karlsson
Mánasteinn
Sjón
Iceland small world
Sigurgeir Sigurjónsson
Fiskarnir hafa enga fætur
Jón Kalman Stefánsson
HHhH
Laurent Binet
Þ
að fór allt úr skorðum
og jólatré var ekki
keypt þetta árið. Þetta
var erfiður tími hjá
krökkunum og kon
unni. Hún var í sjokki yfir þessu en
planið var að ég kæmi 23. desem
ber og þá ætlaði ég að koma við í
Hafnarfirðinum í skötu hjá gamla
manninum. Ég fæ örugglega að
fara aftur með því skilyrði að ég
verði kominn heim fyrir jól,“ segir
Arnór Guðjónsson, bifvélavirki hjá
Arctic Trucks, en hann ætlaði að
koma heim í jólahaldið þegar plön
breyttust og hann tafðist á Suður
pólnum.
Arnór var í hópi bifvélavirkja
sem fór á Suðurpólinn í október
síðastliðnum en kom ekki heim
fyrr en í janúar og bjó því í gámi
eða í tjaldi í um tvo og hálfan
mánuð. Arctic Trucks var með
nokkra leiðangra á bílum sínum á
Suðurpólnum en veðráttan gerði
pólförunum erfitt fyrir.
„Þegar við komum til Cape
Town í SuðurAfríku áttum við að
vera þar í tvo daga sem urðu svo að
10 dögum því það var ófært,“ segir
Arnór. Erfitt segir hann að hafi
verið að vinna í gámum þar sem
mikill tími hafi farið í að moka frá
svo að þeir kæmust inn eða lokuð
ust ekki inni vegna fannfergis.
Afgangur í jólamatinn
„Það voru engin jól. Tilbreytingin
var að Arctic Trucks hélt veislu
fyrir viðskiptavini og það voru
tvær nautalundir í afgang. Eftir
að við vorum komin niður á 83
breiddargráðu steiktum við aðra
og fengum kartöflumús með,“
segir Arnór.
„Ég átti að koma heim á Þorláks
messu en það breyttist því að einn
leiðangurinn sem átti að fara frá
Suðurpólnum breyttist. Það átti
eftir að ganga frá öllum tjaldbúð
unum og þar voru bara tveir menn
eftir. Auðvitað langaði mig heim
en mér fannst hitt meira áríðandi,
þó að það dyttu þarna út ein jól
og áramót, að hjálpa til fremur
en skilja þá eftir tvo eina í þessu.
Það var löng vegalengd frá Suður
pólnum að 83 breiddargráðu. Við
vorum þrjá daga að ganga frá sem
menn hefðu ekki ráðið við tveir,“
segir Arnór.
Arnór er mjög ánægður með
ferðina í heild sinni en viðurkennir
að hafa ekki verið búinn að undir
búa sig fyrir svona mikla tjald
útilegu. „Maður aðlagaðist mjög
fljótt. Fyrstu dagana var 36 stiga
frost en minnst fór það í 18 gráður,
það var mildast og þá var skýjað,
en yfirleitt var 24 gráður. Inni
í tjaldinu var 10 gráður en við
rúmstæðið var frostið 3 gráður
en efst voru 15 gráður. Við vorum
með góðan svefnpoka og ég var
með bedda með mér. Það fór bara
vel um mann og maður gat alveg
sofið,“ segir Arnór.
Hæðin breytir öllu
Allar ferðir á Suðurpólinn eru
skipulagðar með að minnsta kosti
árs fyrirvara, að sögn Arnórs.
„Það er svo margt sem þarf að
vera til staðar eins og til dæmis
eldsneyti og heimild til að fara.
Svo þarftu að vera tryggður alveg
í botn ef eitthvað kemur upp á og
það þarf að sækja þig,“ segir Arn
ór. „Á ákveðnum svæðum erum
við allir bundnir í öryggislínur og
förum ekki út úr bílum nema vera
í svifbeltum og öryggislínum við
bílana en sums staðar er mikið af
sprungum. Maður hoppar til dæm
is ekki út úr bílunum heldur rennir
sér fram að þeim. Ef maður tognar
Vill endurtaka erfiða og
spennandi lífsreynslu
Arnór Guðjónsson bifvélavirki tafðist á Suðurpólnum um þessi jól þegar leiðangur Arctic Trucks
tók breytingum. Hann segir að dvölin hafi verið erfið á köflum en þó ánægjuleg líka því að hann
vill fara aftur. Segir hann að flestir sem fari þangað séu að uppfylla langþráð markmið en sumir
sækist í auðnina, náttúrufegurðina og hættuna.
Arnór Guðjónsson stoltur af því að komast á Suðurpólinn.
Arnór Guðjósnsson. „Það bilaði hjá okkur
á versta stað uppi á hásléttunni, á hæsta punkti
jökulsins. Þar var 40 stiga frost og milli 15 til 20
vindstig og mikill skafrenningur. Þar gat enginn
flugvél lent þó að maður hefði kallað á eftir hjálp.
Flugvél flýgur ekki þangað því að hún getur hvergi lent.“
30 viðtal Helgin 24.-26. janúar 2014