Fréttatíminn - 24.01.2014, Qupperneq 26
Pfaff Grensásvegi 13 Sími 414 0400 www.pfaff.is
Pfaff Grensásvegi 13 Sími 414 0400 www.pfaff.is
Út-
sölu-
lok!
HIRO SPOT
Verð áður kr. 19.900
Verð nú kr. 14.900
FOCA GÓLFLAMPI
Verð áður kr. 16.900
Verð nú kr. 7.900
FREYA
Verð áður kr. 68.900
Verð nú kr. 34.500
JOZEF
Verð áður kr. 25.900
Verð nú kr. 19.900
Mikil
verðlækkun á
sýnishornum
í verslun
Hörð keyrsla
Sportið og æfingar taka mikið
pláss í lífi atvinnukonunnar og
ef vel á að vera er lítill tími til að
sinna öðru en Margrét Edda hefur
hagað hlutum þannig að fitnessið
er ekki aðeins helsta áhugamál
hennar heldur einnig lifibrauðið.
„Ég er með fjarþjálfun og það er
rosalega þægilegt vegna þess að þá
ræð ég svolítið vinnutíma mínum
sjálf og það hentar mér vel. Ég vinn
mjög mikið í kringum fitnessið og
er til dæmis alltaf með það sem
kallað er „pósu workshop“ fyrir
bæði stóru mótin sem eru haldin
hérna. Þetta er bara einn dagur,
tveir til þrír tímar, þar sem ég fer
yfir allar pósur og fæ alþjóðadóm-
ara til að fara yfir reglur og ráð. Svo
er ég líka með pósunámskeið og
býð upp á einkatíma í pósum þann-
ig að ég vinn heilmikið í kringum
fitness og heilsurækt.“
Margrét Edda hefur stundað
íþróttir alla sína tíð og byrjaði
snemma að keppa og þjálfa. „Ég
hef alltaf verið rosalega mikið í
íþróttum. Ég byrjaði í listdansi
á skautum og fór strax að keppa
í því. Ég fór svo í tækwondó og
byrjaði að þjálfa í því þegar ég
var bara fjórtán ára. Ég hef unnið
mjög mikið sem þjálfari og vann til
dæmis hjá fimleikafélaginu Björk.
Þar var ég þjálfari í almennings-
deild, fimleikadeild og tækwondó-
deild. Ég hef verið mjög lengi í
svona þjálfarastörfum en byrjaði
með fjarþjálfunina mína fyrir einu
og hálfu ári eða svo. Ég hef líka
verið að einkaþjálfa í Sporthúsinu
en mér finnst fjarþjálfunin henta
mér betur. Sérstaklega núna vegna
þess að ég er að fara að ferðast
mikið á þessu ári og þá er gott að
geta verið meira í samskiptum við
kúnnana mína á netinu.“
Snýst ekki um að vera sexí
Þeir sem sjá myndir af bikini-fit-
ness keppnum hljóta að álykta að
þetta sé fyrst og fremst keppni í
kynþokka þegar fáklæddar konur
hnykla vöðvana á sviðinu, býsna
þokkafullar. Gengur þetta ekki
fyrst og fremst út á kynþokka?
„Nei, alls ekki,“ segir Margrét
Edda og hlær. „Þær stelpur sem
keppa í þessu og eru að reyna rosa-
lega mikið að vera sexí á sviðinu
eru á algerum villigötum vegna
þess að dómararnir fíla það ekki.
Þetta er fitness-keppni þannig að
þeir eru að dæma heildarútlitið
og þá fyrst og fremst vöðvaskil,
skurð og líkamann í heild. Þar sem
þetta er fitness erum við auðvitað
eitthvað skornar en þeir vilja samt
sjá frekar heilbrigt útlit í bikiní-
fitnessinu. Og það var það sem
tryggði mér fyrsta sætið á HM,
að ég sýndi frekar heilbrigt útlit.
Ég segi öllum stelpum sem koma
til mín að læra pósur að reyna alls
ekki að vera sexí á sviðinu vegna
þess að það skilar þeim engu.“
En nú átt þú sjálf þína eigin
einkennispósu sem gæti nú þótt
ansi munúðarfull ef ekki beinlínis
ögrandi?
„Ahhh,“ hlær Margrét Edda.
„Ég er samt ekkert að reyna það.
Ég hugsa meira um þetta sem dans
og að sýna mínar bestu hliðar.“
Og hún segist verða lítið vör við að
fitnessið sé gagnrýnt fyrir að vera
lítt dulbúin kroppasýning. „Ég finn
reyndar ekki mikið fyrir því og
verð lítið vör við stæla, leiðindi og
einhverja neikvæðni og ef það er
einhver neikvæðni þá tek ég lítið
mark á henni.
Það er svo margt mjög jákvætt í
kringum fitnessið. Eins og með at-
hugasemdir sem ég fæ við myndir
af mér á vefnum. Ég fæ kannski
hundrað athugasemdir við eina
mynd og þær eru allar jákvæðar,
nema kannski ein. Það er oftast
þannig og ég tek sjaldnast eftir
neikvæðum athugasemdum.“
30.000 fylgjendur
Margrét Edda hefur vakið mikla
athygli með myndum og mynd-
böndum af sér á Facebook-aðdá-
endasíðu sinni en þegar þetta
er skrifað hefur rúmlega 30.000
manns líkað við síðuna. „Ég veit
eiginlega ekki hvað gerðist en það
varð einhver sprenging. Þetta var
rosalega skrítið. Ég var bara með
26.000 læk í síðustu viku og ég veit
ekki hvað gerðist svona allt í einu,“
segir Margrét Edda sem er að
vonum hæstánægð með athyglina
og þá ekki síst hversu margir í
Bandaríkjunum fylgjast með henni
á Facebook.
„Þetta er sérstaklega mikið
fólk í Bandaríkjunum og flestir
sem hafa lækað síðuna eru þaðan.
Næstflestir eru frá Íslandi og síðan
koma Ástralir, Bretar og eitthvað
frá Austur-Evrópu. Ég er auðvi-
tað mjög ánægð með áhugann frá
Bandaríkjunum sem er óneitanlega
gott veganesti til landvinninga þar,
„Ég er mjög ánægð með það
vegna þess að fitness er lang
stærst í Bandaríkjunum þannig að
mesti peningurinn er þar þannig
að þetta er mjög gott.“
Margrét Edda viðurkennir þó
að ekki fylgist allir með henni á
netinu af einlægum fitness-áhuga
og hún hefur fengið að kynnast því
að inn á milli slæðast karlar með
höfuðið fullt af miður geðslegum
hugsunum. „Maður fær alveg fullt
af skilaboðum á Facebookinu og
þetta er svolítið áreiti. Þetta var
sérstaklega mikið í byrjun þegar
ég samþykkti eiginlega bara allar
vinabeiðnir sem ég fékk á persónu-
legu síðuna mína. Þá lenti ég mik-
ið í svona ruglubullurum og þetta
var rosalegt áreiti en ég passa
mig betur núna og svara aldrei ef
einhver er að senda mér eitthvað
svona. En þetta fylgir þessu enda
eru allar manngerðir á netinu.“
Keppniskonan ætlar síður en
svo að láta staðar numið við 30.000
fylgjendur á Facebook. „Planið er
að koma mér upp í 100.000 læk. Er
það ekki bara? Spyr fitnessdrottn-
ingin og hlær.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Margrét Edda Gnarr er orðin atvinnukeppandi í fitness og stígur á svið í hópi sextán bestu atvinnukvenna í heimi í bikini-fit-
ness í Bandaríkjunum í febrúar. Hún er rétt að byrja og möguleikarnir eru miklir, ekki síst þar sem hún er þegar frekar vel kynnt
í fitness-heiminum vestanhafs. Ljósmynd/Hari.
26 viðtal Helgin 24.-27. janúar 2014